Bræðrabandið - 01.03.1979, Qupperneq 12
saman ættu þau að deila með sér ánægju-
stundum líka. Það kann að vera máltíð
á veitingahúsi eða kvöldstund á vatninu
eða í hljómleikasalnum en bað getur
líka verið klukkustund við að lesa
saman eða hlusta á góða tónlist eða
bara tala saman. Stundum mundi eigin-
kona eða eiginmaður velja sér stund
saman þar sem þau gætu ótruflað talað
saman frjálslega - og sannarlega hlust-
að á hvort annað - velja það fremur en
nokkuð annað. (Að vera góður til þess
að hlusta gæti verið dýrmætasti eigin-
leiki hjá maka.') .
Hvort sem það að gera eitthvað
skemmtilegt saman er gert reglulega eða
öðru hvoru hlýtur það að stuðla að
minningum sem styrkja samfélagið. Allir
sálfræðingar munu samþykkja það að því
ánægjulegri reynslu sem maður tengir
ákveðinum einstaklingi þeim mun sterk-
ari verða böndin við þá persónu.
9. Biðjið - já með kveinstöfum
Guð um að hjálpa ykkur að láta það
besta í tjé svo að hjónaband ykkar
mætti takast. Látið þetta verða ykkar
einlægustu bæn. Stöku sinnum (þó ekki
svo oft að það verði vanabundið) gæti
það verið ágætt að tjá opinskátt þetta
mál á guðræknisstund fjölskyldunnar
Við þörfnumst öll mikið hjálpar
Guðs og ekki síst í hjónabandinu. Svo
oft ætlar fólk það besta af sjálfu sér
handa vinum sínum, nágrönnum og sam-
verka mönnum en láta hrjúfu hliðar
sínar birtast maka sínum (og börnum).
En þeir sem við elskum eiga aðeins hið
besta skilið. En þeir munu oft ekki
hljóta það nema með Guðs hjálp.
Vilt þú að hjónaband þitt dafni?
Þessi níu boðorð geta bent á leiðina.
Þetta er ekki auðveld uppskrift að
fylgja - en enginn ein leið er til auð-
veld að sælu í hjónabandi. Ef við
lifum eftir þessum reglum þýðir það
það að við látum maka okkar sitja í
fyrirrúmi eins og hann á skilið. Ef
til vill má segja um flest okkar að
það er fyrir löngu mál að svo verði. □
LEIÐRÉTTING
Villa slæddist inn í grein í
febrúarblaðinu um drottinguna af Saba.
Á bls. 2 í undirfyrirsögn átti að
standa: Borg frá öðru árþúsundi fyrir
Krist. Sjö lín\m neðar verður svipuð
leiðrétting að koma.
12
GOLGATA
ELLEN G WHITE 1. hluti
"Og er þeir komu til þess staðar
sem kallaður er Hauskúpa krossfestu
þeir hann þar."
"Þess vegna leið og Jeéús fyrir
utan hliðið til þess að hann helgaði
lýðinn með blóði sínu." Heb.13,12.
Fyrir óhlýðni við lögmál Guðs voru Adam
og Eva útrekin úr aldingarðinum Eden.
Kristur, staðgengill okkar, átti að
þjást fyrir utan borgarmörk Jerúsalem.
Hann dó fyrir utan hliðið, á stað þar
sem þjófar og morðingjar voru líflátnir.
Þungvæg eru þessi orð: "Kristur keypti
oss undan bölvun lögmálsins með því að
verða bölvun fyrir oss." Gal.3,13.
Aragrúi fólks fylgdi Jesús frá
dómhöllinni Til Golgata. Fréttin um
dóminn yfir honum hafði flogið um alla
Jerúsalem og fólk af öllum stéttum og
stigum flykktist að krossfestingar-
staðnum. Prestarnir og höfðingjarnir
höfðu bundist heiti um að áreita ekki
fylgjendur Krists ef hann sjálfur yrði
þeim framseldur, og lærisveinarnir og
hinir trúuðu meðal borgarbúa og íbúa
nærliggjandi héraða sameinuðust múgnum
sem fylgdu frelsaranum eftir.
Þegar Jesús fór framhjá hliðinu að
forgarði hallar PÍlatusar var krossinn
sem ætlaður hafði verið Barrabasi lagð-
ur á flakandi og blóðugar herðar hans.
Tveir af félögum Barrabasar skvldu láta
lífið með Jesú, og á þá voru einnig
lagðir krossar. Byrði frelsarans varð
honxim ofraun sakir þess hversu máttfar-
inn hann var og þjáður eftir misþyrm-
ingarnar. Hann hafði hvorki neytt
matar né drykkjar eftir páskamáltíðina
með lærisveinum sínum. Hann hafði
þjáðst af angist í Getsemanegarði í
átökunum við áhrifaöfl Satans. Hann
hafði þolað angist vegna svikanna,
og hann hafði séð lærisveina sína yfir-
gefa sig og flýja. Hann hafði verið
Þessi grein byggist á Matt.27,31-52;
Mark.15,20-38;LÚk.23,26-46;JÓh.19,16-30.