Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Side 6
6 MIÐVIKUDAOUR 2. FEBRÚAR 2005 Fréttir DV Ábyrgð á textavarpi Pétur Gunnarsson, full- trúi Framsóknarflokks í útvarpsráði, vill fá upplýst hvort Ríkisút- varpið hafi farið þess á leit að fá að senda staf- rænt út á Digital ís- land keppinautarans 365. Á fúndi ráðsins í gær var ekki hægt að upp- lýsa um þetta atriði. Var því ákveðið að kanna máhð með þvf að vísa því til þró- unarsviðs RÚV. Á fundinum í gær vildi Pétur einnig fá upplýst hver bæri ritstjórn- arlega ábyrgð á textavarp- inu. Það sagðist Bogi Ágústsson gera og kvaðst fagna ábendingum ífá Pétri varðandi textavarpið. Skoða sölu heimaafurða Nefnd á vegum landbún- aðarráðherra segir að kanna skuli hvort breyta eigi þeim reglum sem í gildi eru um heimasölu mjólkurafúrða. Ógerilsneydd mjólk er til að mynda seld á slflcan hátt og óvíst hvort það verði leyft áfr am. Mælst er til þess að sérfræðingar á sviði smitsjúk- dóma geri áhættumat. Landsamband kúabænda vill halda heimasölu á hrá- efnum sem framleidd og seld eru á búunum áfram en segir ástæðu til hvetja til varfæmi í framleiðslu. Framganga Steingríms Hermannssonar í Silfri Egils Kristinn H. Gunnarsson, þingmaöur Framsóknarflokksins „Mér fannst Steingrímur standa sig vel eins og hann gerir yfirleitt, komst vel að orði íþvísem hann tók fyrir. Ég er sammála honum varðandi umgengni við blaðamenn og kenning hans er athyglisverð þó svo að ég vilji ekki gera hana að minni, að minnsta kosti að svo stöddu." Hann segir / Hún segir „Mér fannst bara gamli Stein- grlmur birtast þarna, hinn blá- eygi heiðarlegi maður. Ftann var mjög góður og ég hefði getað skrifað undir mest allt sem hann sagði. Það eralveg magnað hvernig hann getur ofureinfaldað flóknustu hluti. Það þykir mér góöur kostur hjá fólki, ekki síst stjórnmála- mönnum sem mættu gera það oftar." Katrín Júlfusdóttir þingmaöur Samfylkingarinnar 17 ára piltur réðst fyrirvaralaust á nemanda í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ með skóflu í gærmorgun. Ekkert hefur komið fram sem útskýrir árásina. Fjöldi nemenda varð vitni að því þegar árásarmaðurinn sló með skóflu í hnakka fórnarlambsins. „Maðurþarfekki að vera hissa á þvt að það komi svona tilefnislaus og glórulaus tilfelli þegar fíkniefni flæða um allt" Vettvangur árásarinnar Gunnar Örn var við innganginn þegar árásarmaöurinn kom 1 aftan aö honum. Gunnar Örn Heiðdal, sautján ára nemandi á málabraut, var á leið í kennslustund klukkan níu í gærmorgun. Þar sem hann stóð við inngang Fjölbrautaskólans í Garðabæ var hann sleginn fyrirvaralaust í hnakkann með skóflu og hné niður. „Læknirinn segir að ég sé búinn að missa einhverja heym á öðm eyra. Ég á víst að vera marinn inni á hausnum. Svo er ég slasaður á öxl,“ segir Gunnar Örn Heiðdal. Gunnar var í samræðum við fé- laga sinn þegar ofbeldismaðurinn kom aftan að honum. Fjöldi vitna sá árásina. „Ég hef aldrei talað við þennan mann. Þetta var einstaklega skrítið. Ég hné niður og rankaði svo við mér. Ég leit á vin minn sem sagði við mig, er ailt í lagi með þig? Ég spurði bara: Hvað gerðist?" segir Gunnar. Enginn veit hvers vegna árásarmaðurinn réðst á Gunnar. Viðkomandi er 17 ára gamall og býr í Reykjavflc. Hann er ekki nemandi við skólann, en hafði komið á skólalóð- ina til að hitta vin sinn. Óskiljanlegt ofbeldi Hvorki nemendur, skólayfirvöld né lögreglan átta sig á því hvers vegna 17 ára pilturinn ákvað að ráð- ast á Gunnar Öm. Læknar fullyrða að högg sem þetta á hnakkann geti haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér. Skemmst er að minnast frétta af tveimur mönnum sem lét- ust eftir hnefahögg í fyrra. „Þetta virðist alveg tilefnislaust. Við þurfúm að fá þennan árás- armann í hús,“ sagði Gunnar Hilm- arsson, varðstjóri í Hafnarfirði, um miðjan dag í gær. Þorsteinn Þorsteinsson, skóla- meistari Fjölbrautaskólans í Garða- bæ, segist hafa orðið var við það í samfélaginu að fflcniefiianotkun verði almennari. „Strákurinn sem lendir í þessu botnar ekki neitt í neinu. Sá sem ræðst á hann er sennilega einhver dópsahnn í Reykjavík. Það þarf ekki nema að ganga niður Laugaveginn til að sjá fólk í annarlegu ástandi. Maður þarf ekki að vera hissa á því að það komi svona tilefnislaus og glórulaus tilfelli þegar fíkniefni flæða um allt," segir hann. Þorsteinn segist hvetja alla til að kæra slflcar árásir. „í hvert skipti sem eitthvað svona hefur komið upp í bænum hvetjum við fólk til að kæra svona mál. Svo þekki ég mörg dæmi þess að fólk þori ekki að kæra," segir Þorsteinn. Önnur árás Aðeins er tveir og hálfur mán- uður síðan síðast var ráðist á nem- anda í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ um miðjan dag. Þá réð- ust þrír menn á nemanda við skólann í matsalnum um miðjan dag. Hann var nefbrotinn og rif- beinsbrotinn. Gunnar öm hefur gefið lög- reglunni þær upplýsingar sem hann hefur um málið og hyggst fylgja því eftir. Tengsl hans við árásarmanninn em engin. „Ég veit bara hver hann er eins og ég veit hver Lalli Jones er.“ jontrausti@dv.is Skólameistarinn Þorsteinn Þorstemsson, skólameistari FG, segir ekki hægt að koma i veg fyrir aö fíkniefnaneytendur láti sjá sig á skólalóðinni eins og annars staðar. Stjórnar fjöldasöng á þorrablóti í Kaplakrika Róbert Marshall færvinnu Róbert Marshall, formaður Blaðamannafélagsins og fyrr- um fréttamaður á Stöð 2, hef- ur fengið sitt fyrsta starf eftir uppsögnina á Lynghálsinum. Hefur Róbert verið ráðinn til að stjórna íjöldasöng á þorra- blóti FH sem haldið verður í Kaplakrika á laugardaginn. Róbert er vanur að stjórna fjöldasöng og hljóp sem kunnugt er í skarðið fyrir Árna Johnsen í brekkusöng á Þjóð- hátíð í Vestmannaeyjum þeg- ar Árni var vant viðlátinn vegna fangelsisvistar. Mikið er í lagt í þorrablóti FH. Hljómsveitirnar Brimkló og Papar halda uppi fjörinu og veislustjór- arnir sóttir í hóp skærustu sjón- varpsstjarna landsins; Sirrý á Skjá einum og Gaupi á Stöð 2. Aðgöngu- Róbert Marshall Kominn Igang á ný eftir uppsögn. Hér I Brekkusöng á Þjóöhátlð í Eyj- umþarsemhann leysti Árna Johnsen af. miðaverð er 4.900 krónur en 2.500 krónur ef menn vilja aðeins fara á dansleikinn og sleppa þorramatn- um. Eagles Margir vilja sjá þá í Baltimore I aprii. Uppselt en bullandi eftirspurn Biðlistar á Eagles með Bo Allt útlit er fyrir að færri komist en vilja á tónleika með hljómsveitinni Eagles sem haldnir verða í Baltimore 5. aprfl næstkomandi. Björgvin Halldórs- son, söngvari og fararstjóri á tónleik- ana, segir uppselt en ferðin er skipu- lögð með Icelandair: „Við fengum 50 miða á tónleikana og þeir ruku út. Vandamálið er að nóg er til af flugmiðum en ekki aðgöngu- miðum á tónleikana. Við erum að vonast til að fá 30 miða í viðbót og mæta þannig eftirspurn. Nú þegar eru 25 á biðlista," segir Björgvin Hall- dórsson. Tónleikaferð þessi er boðin á 71 þúsund krónur og er þá allt innifalið, flug, hótel, miði á tónleikana og ferðir tij og frá flugvelli og hóteli. Björgvin Halldórsson leggur áherslu á að sér- staklega góður veitingastaður sé á hót- elinu sem gist er á en Björgvin er, sem kunnugt er, landsþekktur sælkeri og fióður um matargerð og gæði veitinga- húsa víða um heim og þá ekki síst í Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.