Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Síða 32
JT* f í t íl^Jj f 0 í Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar j^nafnleyndar er gætt. sj sj Q iQ [JQ Q SHAFTAHUÐ24, 705REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910] SÍMÍSSO5000 5 690710 TÍTÍ17 • Það færist fjör í leik- v inn í formannsslagn- um í Samfylkingunni. össur Skaiphéðinsson hefur verið duglegur að hringja í alla þá sem hann þekkir í flokknum og spyrja þá hvort hann fái ekki þeirra stuðning. Þá virðast netverjar formannsins hafa tekið við sér. í gær var sagt frá því á þessum stað að Ingibjörg Sólrún hefði tekið afgerandi forystu í net- kosningu hjá Agli Helgasyni. Nú hafa Össurarmenn hins vegar snúið blaðinu við... • í gær var staðan þannig að Ingi- björg Sólrún var með yfir 51 pró- sent en Öss-ur var kominn upp yfir 47 prósentin. Það sem sýnir hversu duglegir menn hafa verið að merkja við, er að í fyrradag vom þeir sem vildu ein- hvem annan en þau tvö 13 pró- sent. Nú er tal-an komin undir 2 prósent. Keppnin heldur áffam og spennan magnast... • Gamalreyndir reflr í sjónvarpsheiminum munu hafa kreppt tærnar í inniskónum í fyrrakvöld undir mynd Evu Maríu Jónsdóttur um Þverárundrin svokölluðu; gamla upplogna draugasögu ffá 1928. Fannst mönnum sem hæfileikum Evu Maríu væri algerlega kastað á glæ þar sem hún eigi heima í beinni útsendingu en ekki sem lesari undir gömlum, slitnum filmubútum... Hani í andnauð Býr með tveimur hænum úti ú svnlum Haninn Ófeigur hefur búið hjá eiganda sínum, Herborgu Sigtryggs- dóttur, og fjölskyldu hennar í Kópa- vogi frá því hann skreið úr eggi, en Ófeigur hefur tvær kvenkyns púddur sér til samlætis. Nágranna þótti Ófeigur hani gala á ókristilegum tíma og kvartaði til lögreglu. „Það var strákur hérna í götunni sem hrökk upp við galið í hananum og virðist hafa kvartað í lögregluna. Hann segir þetta hafa verið klukkan flmm en haninn galar ekki fyrr en lj ósin kvikna í búrinu og þau eru á tíma- stilli. Pabbi stráksins kom svo og við ræddum saman, auðvitað vill maður ekki vera með nein leiðindi í nágranna sinna," segir Her- borg. Að sögn Herborgar er Ófeigur landnámshani og kom úr einu sex eggja sem þau fengu til útung- garð Ófeigur Á það til að gala á ókristilegum timum. unar. Með honum eru hænurnar Lóa og Tóta. Fyrst var þrenningin í stof- unni, síðan í vaskahúsinu og núna í kofa úti á svölum. „Þau hafa allt sem hefðbundin gæludýr hafa. Þetta er í raun ekkert öðruvísi en að hafa hund eða kött nema greindarvísitalan er töluvert lægri," útskýrir Herborg. Ófeigur drapst næstum því þegar hann var ungur. „Það stóð í honum of stór brauðbiti svo það var ekkert annað að gera nema beita „munn við gogg''-aðferðinni. Eftir það hefur hann verið kallaður Ófeigur. Hann er hinn besti vinur okkar og þá sérstaklega barnanna og vina þeirra. Hann er einstaklega gæfur og fallegur og mikill fjöT skyldufugl enda passar hann vel upp á þær Lóu og Tótu,“ segir Herborg. Ófeigur étur alla lífræna af- ganga sem falla til. „En uppá- haldið hans er Newman’s Own poppkorn sem honum Börnin á heimilinu og Ófeigur „Einstaklega gæfur, fallegur og mikill | fjölskylduhani." finnst mesta lostæti," segir Herborg sem viðurkennir að það sé leiðinlegt hvernig málin hafa þróast: „Þegar fer að birta í vor veit maður ekki nema hann fari að gala fyrir allar aldir. Ef það verður raunin og við náum ekki að halda sólarljósinu frá kofanum verðum við eflaust að koma honum fyrir eða slátra honum, hvað annað er hægt að gera? Það fer eftir nágrönnunum og hvort hann er að ónáða þá, en ég ætla ekki að fara út í neinn hanaslag við nágrannana." Næstu nágrönnum Herborgar var hlátur í huga þegar leitað var eftir áliti þeirra. „Ég heyrði í fyrsta skipti á sunnu- daginn hanagal en ég vissi um hanann, finnst það bara fyndið. En auðvitað gæú verið pirrandi til lengdar að vakna upp við hanagal á hverjum morgni en þetta er sniðugt, að minnsta kosú svona á sunnudegi," sagði Kristjana Guðrún Guðmundsdóttir. Halldór verslar í Nóatúni Halldór Ásgrímsson forsætisráð herra fer oft í Nóatún á Selfossi og aðrar góðar búðir í bænum. Hann verslar mikið þar í bæ enda á hann sumarbústað í Grímsnesinu. Frá þessu er sagt í Dagskránni á Sel- fossi en þar vinnur hinn öflugi fréttaritari Magnús Hlynur Hreiðarsson sem er íslend ingum að góðu kunnur úr fréttum Ríkissjónvarpsins. Halldór sagði á opnum fundi með framsóknar- mönnum í Hveragerði að honum þyki gott að versla á Selfossi áður en hann held- ur í bústaðinn með fjöl- skyldu sinni. Á sama fundi var Halldór spurður um það hvað honum fyndist um að ÁTVR væri að opna vínbúðir í bensín- . stöðvum Esso víða um land. j Hann sagðist ekki vera neitt á j móti því en sagðist þó ekki vilja sjá að áfengi eða bjór . væri selt í verslun- um eins og í sumum ná- grannalöndum okkar. Það hugnast hon- um ekki, sam- kvæmt Halldór forsætis- ráðherra Verslará Selfossi þegar hann fer i bústaðinn með fjöl- skytdunni. frásögn fréttarit- arans á Suður- landi. Jenna emjarísímann Klámyndastjarnan íturvaxna Jenna Jamesson býr nú til hringingar í síma. Hún stynur og lætur frá sér kynferðisleg hljóð og í boði eru nokkrar tegundir af ánægjulegum fullnægingarhljóðum frá kyn- bombunni ljóshærðu. Þar að auki æúar Jenna að taka upp klámtal á tveimur tungumálum, ensku og spænsku. Það er farsímafyrirtækið Wicked Wireless sem býður upp á þjónustuna. Einnig er hægt að fá litmyndir af klám- stjörnunni naktri til að hafa sem skjámynd í símanum. „Rokkarar gera tónlist, klám- myndastjörnur stynja," segja forsvarsmenn fyrirtækisins. Jenna Jameson klámstjarna Fyrirsmá pening geturðu fengið hana til að stynja frygð- arlega í simann þinn. í FYRSTA VXNNING LfTTf t Jókerinn kostar 200 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.