Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2005, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
„Mér brá rosalega," segir Óskar Guð-
laugsson, starfsmaður fiskimjölsverk-
smiðjunnar í Grindavík, þar sem stærðar-
innar hitaþurrkari sprakk um miðjan dag
í gær með þeim afleiðingum að verk-
smiðjan brann. 20 manns voru að störf-
um þegar sprengingin varð. Óskar var um
10 - 15 metra frá þurrkaranum sem
sprakk.
„Sprengingin var há og snögg, ég sá
engan eld þegar ég kom að þurrkaranum
og grunaði ekkert. Nokkrum mínútum
síðar fann ég reykjarlykt frá þakinu og
áttaði mig á því að eldur væri kominn
upp, þá var lítið annað að gera en forða
sér,“ sagði Óskar í gær, greinilega í upp-
námi eftir atburði dagsins. „Ég veit ekki
hvað ég á að gera á morgun. Ég er búin að
vinna á þessum stað í 6 ár."
Móðir Óskars, Elsí Sigurðardóttir
segist hafa óttast mjög um son sinn. „Um
leið og ég heyrði af brunanum stökk ég
upp í bíl með dóttur minni og keyrði að
fiskimjölsverksmiðjunni. Ég reyndi strax
að hringja í Óskar en hann svaraði ekki,"
segir Elsí. „Hann hringdi svo loks í pabba
sinn og lét vita að hann væri heill á húfi,"
segir móðirin.
Minnst 35 mínútur liðu frá sprenging-
unni áður en slökkviliðið mætti á stáðinn,
að sögn Alberts Sævarssonar, starfs-
manns í Straumi og markvarðar í knatt-
spyrnu, sem var að störfum í næsta húsi.
Hann segir að sér hafi brugðið mjög við
sprenginguna. „Við vissum ekkert hvað
þetta var,“ segir Albert. „Nokkru síðar
vorum við í kaffi og þá urðum við fyrst
varir við eldinn, það var ekki fyrr en
nokkrum mínútum síðar sem slökkviliðið
mætti á svæðið." Albert segir að þá hafi
eldurinn verið orðinn svo mikill í þaki
verksmiðjunar að engin von hafi verið
fyrir slökkviliðið að bjarga málunum.
Albert Sævarsson Markvóri
iteinsnar frá sprengingunnE