Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2005, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2005
Sport DV
Lampard
kosinn
bestur
Frank Lampard, leikmaðnr
Chelsea, hefur verið útnefndur
besti enski leikmaðurinn í nýlegri
kosningu á heimasíðu enska
knattspyrnusambandsins. Um
20000 manns tóku þátt í kosning-
unni og sigraði Lampard með
nokkrum yflrburðum. Það var
Wayne Rooney sem hafnaði í
öðru sæti í og þriðji varð Steven
Gerrard hjá Liverpool. Það kom
fáum á óvart að Lampard skyldi
verða fyrir valinu í þetta sinn og
lét Sven Göran Eriksson, lands-
liðsþjálfari Englands, hafa eftir sér
að ef að hann hefði haft atkvæðis-
rétt hefði hann LQdega valið
Lampard, þvík hann væri búinn
að leika einstaklega vel allt síðasta
ár. „Það er ekki langt síðan ég
varð fastamaður í Chel- - -
sea og því þykir mér «♦•'
mjög vænt um að ég
hafi orðið fyrir val-
inu. Ég er mjög
stoltur af
þessu",
sagði
Lampardívið-
tali á síðu enska
knattspyrnusam-
bandsins.
lohnsen
leggur skóna
á hilluna
Norski varnarmaðurinn Ronny
Johnsen, sem lengi lék með liði
Manchester United, hefur ákveðið
að leggja knattspymuskóna á hill-
una, 35 ára að aldri. Johnsen var á
mála hjá Aston Villa og Newcastle
um tíma, en samningi hans var
sagt upp þar og því ákvað kappinn
að snúa aftur til heimalandsins.
Þar hafði lið Valerenga gert hon-
um tilboð sem hann hafitaði.
Johnsen getur verið sáttur við feril
sinn sem hefur verið einstaklega
glæsilegur og nægir að neftia að
hann var í liði Manchester United
sem vann þrennuna frægu árið
1999, þegar liðið sigraði í deild,
bikar og Evrópukeppni, þar sem
hann lék lykilhlutverk í hópi Alex
Ferguson. Kappinn hefur sagt að
haxm sé sáttur við að vera hættur
og ætli að setjast að aftur í Noregi.
Brassar sjóð-
heitir gegn
Hong Kong
Lið Brasilíu og Hong Kong átt-
ust við í vináttulandsleik í fyrri
nótt, á heimavelli þeirra síðar-
nefndu. Leikurinn var ekki ýkja
spennandi og í raun var um knatt-
spyrnusýningu að ræða hjá brasil-
íska liðinu, sem hafði sigur f leikn-
um, 7-1. Brasilíumennimirléku án
Ronaldos, sem fékk að hvíla vegna
mikils áiags sem hefur verið á
honum undanfarið, ekki síst í kjöl-
far veikinda í fjölskyldu hans. Það
kom þó aldrei að sök eins og
markatalan gefur til kynna, því
Suður-Ameríkumennirnir rúlluðu
liði heimamanna
upp. Það vom þeir •' i
Alex, Ronaldihno, •. ti'
Robinho,
Lucio og Ro-
berto Car-
los sem ,*
gerðu sitt
markið hver og
Ricardo Olivera
setti tvö mörk.
• ■
m
Það verða Stjarnan og Grótta/KR sem leika til úrslita í SS-bikarkeppni kvenna
þann 26. febrúar næstkomandi. Stjarnan lagði Val á heimavelli, 23-18, en hið unga
lið Gróttu/KR, undir stjórn Kára Garðarssonar, kom geysilega á óvart með því að
leggja atvinnumannalið ÍBV að velli í Vestmannaeyjum, 32-30.
Vantaði hunnriö hjá ÍBV
Einhver óvæntustu úrslit í háa herrans tíð urðu í SS-bikarnum á
þriðjudagskvöldið þegar botnlið DHL-deildar kvenna,
Grótta/KR, gerði sér lítið fyrir og vann sigur á íslandsmeisturum
ÍBV í Vestmannaeyjum, 32-30. Þetta voru úrslit sem fáir reikn-
uðu með enda er Grótta/KR að byggja upp nýtt lið á meðan ÍBV
hefur stillt upp atvinnumannaliði undanfarin ár þar sem lands-
liðsmenn, íslenskir og erlendir, hafa verið í flestum stöðum. DV
Sport sló á þráðinn til hins unga og óreynda þjálfara Gróttu/KR,
Kára Garðarssonar, og spurði hann að því hvernig stelpurnar
hans hefðu eiginlega farið að þessu.
„Það em fáir sem trúa því að okk-
ur hafi tekist þetta. Hungrið í liðinu
var aftur á móti mjög mikið og
stelpurnar vom klárar frá fýrstu
mínútu," sagði Kári en stelpurnar
hans leiddu nánast allan leikinn og
voru einu marki yfir í leikhléi, 15-14.
„Þær vom búnar að fá nóg af þessu
slaka gengi og vildu nýta þennan
leik til þess að sýna hvað í þeim býr.
Ég fann það allan leikinn að þær
gætu klárað dæmið og þær misstu
aldrei trúna. Það kom mér líka á
óvart hversu lítið hungur var í
Eyjaliðinu. Ég beið alltaf eftir því að
þær myndu hrökkva í gang en það
gerðist aldrei. Kannski vanmátu þær
okkur."
Aðeins þremur dögum áður
mættust þessi sömu lið á Seltjarnar-
nesi og þá sigraði ÍBV með þriggja
marka mun. Kári segir ÍBV-liðið
henta sínu liði að mörgu leyti vel.
„Við erum búin að stúdera sókn-
arleik þeirra mjög vel og þekkjum
nánast allt sem þær gera í sókninni.
Það kemur okkur ekkert á óvart í
„Það kom mér líka á
óvart hversu lítið
hungur var í Eyjalið-
inu. Ég beið alltafeftir
því að þær myndu
hrökkva í gang en
það gerðist aldrei.
Kannski vanmátu þær
okkur."
þeirra leik. Þær em líka frekar hæg-
fara. Þær hafa tvær hávaxnar stelpur
fyrir miðju sem em svolítið klunna-
legar. Vörnin þeirra hentar okkur
líka vel því við emm með snöggar og
flinkar stelpur sem gengur vel að
opna vörn IBV-liðsins,“ sagði Kári.
Bjartsýnn fyrir úrslitin
Grótta/KR mætir Stjörnunni í úr-
slitum bikarsins og Kári er nokkuð
bjartsýnn fyrir þann leik þó stelpun-
um hans hafi ekki gengið eins vel
með Stjörnuna og ÍBV.
„Stjarnan er með hörkulið og
spila fínan varnarleik sem er þeirra
aðalsmerki og svo hafa þær líka
frábæran markvörð. Þetta verður
hörkuleikur og ég efast ekki um að
við getum unnið hann líka.“
Kári er aðeins 23 ára gamall og á
sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari í
meistaraflokki. Hann er fæddur og
uppalinn á Akureyri en flutti í bæinn
fyrir þremur ámm síðan. Hann er
tiltölulega nýhættur að spila sjálfur
en hann lék sem markvörður með
KA og Gróttu/KR. Hann byrjaði að
þjálfa hjá KA aðeins 15 ára gamall og
hélt því áfram eftir að hann flutti í
bæinn.
Mikil vinna og keyrsla
Hann aðstoðaði Agúst Jóhanns-
son með karlalið Gróttu/KR í fyrra
þegar Alfreð Finnsson tók við
kvennaliði Gróttu/KR en hann að-
stoðaði Ágúst framan af tímabilinu.
Kári leysti síðan Alfreð aftur af þegar
hann lét af þjálfun kvennaliðsins til
þess að taka við ÍBV-liðinu og Kári
launaði honum greiðann með því að
sigra Alfreð í Eyjum.
Kári nemur íþróttafræði á Laug-
arvatni en er samt búsettur í bæn-
um. Hann keyrir á Laugarvam á
morgnana og síðan heim seinni
partinn þar sem við taka æfingar.
Mikið álag á ungum manni sem
hefur mikinn memað sem þjálfari.
„Ég er rétt að hefja minn þjálfara-
feril og ég býst ekki við öðm en að
þjálfa þessar stelpur áfram á næsta
ári enda emm við að byggja upp nýtt
lið. Mér liggur ekkert á en ég leyni
því ekki að hugurinn stefiiir hátt. Ég
hef mikinn memað til þess að bæta
mig sem þjálfari og reyni að læra af
íslenskum og erlendum þjálfumm.
Markmiðið er alltaf að stefna hærra
og það væri gaman að fá tækifæri
með karlalið seinna meir. Ég geri
mér samt grein fyrir því að það gerist
ekki alveg strax en ef það kemur gott
tilboð þá mun ég skoða það með
opnum huga," sagði Kári Garðars-
son, þjálfari kvennaliðs Gróttu/KR.
henry@dv.is
f’t
ii í Íf
Ungur og efnilegur
Hinn 23 ára gamli
þjálfari kvennaliðs
Gróttu/KR stendur sig
vel með ungt lið
Seltirninga.
DV-mynd Vilhelm
Mikill missir
Chelsea verður
ekki aðeins án
Arjens Robben á
næstunni þvl
læknir liðsins er
hættur vegna
heilsufarsástæðna.
Reuters
Chelsea sendir frá sér tilkynningu um örlog læknisins Neils Frazer
Hætti vegna heilsufars -
var ekki rekinn frá Chelsea
Chelsea segir ekkert til í þeim
orðrómi að læknir félagsins, Neil
Frazer, hafi verið rekinn frá liðinu
eftir að hafa lent í rifrildi við Jose
Mourinho. Yfirlýsing frá félaginu
segir að Frazer og Mourinho hafi
skilið sem mestu mátar og að brott-
hvarf þess fyrrnefnda megi rekja til
heilsufarsástæðna.
„Sökum hrakandi heilsu neyðist
Neil Frazer til að segja starfi sínu
lausu. Félagið vill þakka honum fyrir
vel unnin störf og óskar honum alls
hins besta í framtíðinni," segir í
tilkynningunni.
Eftir að Frazer hætti skyndilega
störfúm fóm af stað sögusagnir um
að Mourinho hefði hreinlega tapað
sér úr reiði eftir að Frazer tilkynnti
honum að Robben myndi missa af
úrslitaleik deildarbikarsins gegn
Liverpool í lok mánaðarins. Kannski
skiljanlegt þegar tekið er tillit til
mikilvægi Robbens í liði Chelsea
eins og vel sést í úttektinni hér fyrir
ofan, en nú hefúr það verið leiðrétt
að reiði Mourinho var orsök
brotthvarfs Frazer.
Robben mun verða frá keppni í
6-8 vikur og bætist á meiðslalista
Chelsea þar sem fyrir eru framherj-
inn Didier Drogba og varnarmaður-
inn Ricardo Carvalho.
Sjúkraþjálfari Chelsea, Mike
Banks, hefúr tekið við starfi Grazer
tímabundið og segir hann að
meiðsli Robbens séu ekki þau sömu
og þau sem ógnuðu þátttöku David
Beckham á HM hér um árið.
„Það em tvö bein brotin í fæti
Robbens en um er að ræða smá-
vægileg brot. Þetta er ekki týpískt
ristarbrot
°g
Robben
ætti að
vera kom-
inn á gott
skrið eftir tvo
mánuði."
vignir@dv.is
Eftir að Frazer hætti
skyndilega störfum
fóru afstað sögu-
sagnir um að Mo-
urinho hefði hrein-
lega tapað sér úr
reiði.