Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2005, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2005
Sport DV
Stewart mætt
til Keflavíkur
Kvennalið Keflavíkur í körfu-
bolta hefur fengið sér nýjan
bandarískan leikmann, Alex
Stewart, til þess að fylla skarðið
sem Reshea Bristol skildi eftir en
lítið hefur gengið hjá íslands-
meisturunum upp á síðkastið.
Stewart er 165 sm hár leikstjóm-
andi og átti mjög farsælan feril
með Georgia Tech-háskólanum á
árunum 2000 til 2004 þar sem
hún var með 7,5 stig, 4,4 fráköst
og 4,2 stoðsendingar að meðal-
tali en tvö síðustu árin gaf hún
5,6 stoðsendingar og skoraði 8,8
stig að meðaltali auk þess að
stela 1,8 bolmm að meðatalí í
leik. Stewart, sem er nýorðin 24
ára, er sögð góður vamarmaður
og ef marka má afrek hennar í
háskólaboltanum þá ætti þessi
leikmaður að gefa Bristol ekkert
eftir (leikstjórnenda hlutverki
Keflavíkurliðsins sem tapaði fjór-
um fyrstu leikjum sínum eftir
brotthvarf Bristol.
Ný byssa í
Grindavík
Grindvíkingar hafa fengið til
sín nýjan bandarískan leikmann
sem verður sjá flmmti hjá liðinu í
vetur. Jeff Boschee heitir maður-
inn en hann lék í Grikklandi fyrr í
vetur en varð að hætta vegna
meiðsla og hefur síðan leikið
með Kansas City Knights f ABA-
deildinni. Boschee var með 10,1
stig og 2,8 stoðsendingar að
meðaltali í 11 leikjum með
Kansas City Knights í vetur en á
árunum 1999 til 2002 spilaði
Boschee lykilhlutverk f Kansas-
háskólanum, en þar lék einnig
Nick Bradford, núverandi leik-
maður Keflavíkur í Inter-
sportdeildinni.
Boschee var með 11,4
stig að meðaltali á
þessum fjórum árum
auk þess sem hann
skoraði 2,5
þriggja stiga
körfur að með-
altali, nýtti 40%
skota sinna fyrir
utan þriggja
stiga línuna auk þess að gefa 3,1
stoðsendingu að meðltali í leik.
Bradford og Boschee léku saman
tvo fyrstu vetur Boschee með
Kansas, Bradford var þá með 8,4
stig, 5,4 fráköst og 3,1 stoðsend-
ingu að meðaltali en Boschee
skoraði 10,4 stig, tók 1,8 fráköst
og gaf 3,3 stoðsendingar. Kansas
vann 47 leiki af 67 með tvíeykið í
aðalhlutverki.
Viljavera
ofar en
Liverpool
James McFadden, leikmaður
Everton í ensku úrvalsdeiidinni f
knattspyrnu, segir að takmark
Everton-liðsins sé í raun fyrst og
fremst að hafna fyrir ofan Liver-
pool í deildinni þegar hún klárast
í vor. „Okkur væri tæknilega
sama þótt við yrðum í 15. sæti í
deildinni, bara ef Liverpool yrði
þá í því 16.“, sagði McFadden, en
eins og flestir vita eru litlir kær-
leikar á milli þessara nágranna-
liða. Hann segir þó Everton að
sjáifsögðu steftia hærra og telur
F.vrópusæti góðan möguleika
fyrir félagið sem er í fjórða sæti
deildarinnar um þessar mundir,
„Eftir að við töpuðum fyrsta
leiknum á U'mabilinu stórt fyrir
Arsenal sögðu allir að við mynd-
um örugglega falla niður í fýrstu
deiid í ár, en við höfum svo
sannarlega þaggað niður í
gagnrýnendum okkar með þessu
góða gengi," sagði McFadden
brattur.
Þrepamót Fimleikasambands íslands fór fram helgina 29. - 30. janúar í Laugardals-
höll. Þetta er eitt Qölmennasta mót ársins og heppnaðist afskaplega vel.
Það var líf og íjör í Laugardalshöll
helgina 29. - 30. janúar síðastliðinn
þegar fram fór Gymnova-þrepamót
Fimleikasambands íslands í áhalda-
fimleikum. Mótshaldari að þessu
sinni var Fimleikadeild Gróttu. Þetta
mót er eitt fjölmennasta fimleika-
mót ársins en þátt tóku 250 stúlkur
og drengir á aldrinum 9-16 ára frá 10
félögum.
Stúlkurnar kepptu í fimm þrep-
um íslenska fimleikastigans en
drengirnir í fjórum. Keppnin var
aldursskipt og voru hóparnir alls 19.
Hjá stúlkum er keppt á fjórum
áhöldum en drengirnir keppa á sex
áhöldum.
Mótið fór vel fram og sannaði að
hér á landi er mikil gróska í fimleik-
um en FSÍ er nú fimmta stærsta sér-
sambandið innan ÍSÍ með um 5000
iðkendur. Á þrepamótinu voru sum-
ir að keppa í fyrsta sinn á stóru móti.
Þarna mátti sjá glæsileg tilþrif efni-
legs fimleikafólks sem stefnir að því
að taka við af því íslenska afreksfólki
í fimleikum sem hefur staðið sig svo
frábærlega á alþjóðlegum mótum að
undanförnu.
Veitt voru verðlaun fyrir árangur
Þetta mót er eitt fjöl-
mennasta fimleika-
mót ársins en þátt
tóku 250 stúlkur og
drengir.
á einstökum áhöldum og fyrir fjöl-
þraut, þ.e. samanlagaðan árangur í
keppni á öllum áhöldum.
Það er ljóst að það er mikil gróska
í fimleikunum á íslandi og gott starf
er unnið hjá félögunum.
ÚRSLIT Á MÓTINU
Stúlkur
1. þrep Harpa Dögg Steindórs-
dóttir, Gerplu 33,53
2. þrep Thelma Rut Hermanns-
dóttir, Gerplu 34,098
3. þrep 11-12 ára TinnaÓðins-
dóttir, Gróttu 35,777
3. þrep 13 ára og eldri Domino
Alma Belanyi, Gróttu 34,359
4. þrep 10-11 ára Rakel Másdóttir,
Gerplu 32,934
4. þrep 12 ára Iris Einarsdóttir,
Björk 33,68
4. þrep 13 ára og eldri Sigurbjörg
J.Vilhjálmsdóttir, Rán 33,555
5. þrep 9.ára Helga Kristín Einars-
dóttir, Gróttu 35,75
5. þrep10. ára UnnurAndrea
Sævarsdóttir, Björk 36,47
5. þrep 11 ára Eva Katrín Frið-
geirsdóttir, Gróttu 35,6
5. þrep 12 ára og eldri Hafdfs
Davíðsdóttir, FA 35,884
Piltar
1. þrep Hlynur Kristjánsson,
Gerplu 54,30
2. þrep yngri atdursfl. Hávar Helgi
Helgason, Ármanni 57,90
2. þrep eldri aldursfl. Tómas Helgi
Tómasson, Gerplu 57,503
3. þrep yngri aldursfl. Garðar Eglll
Gunnarsson, Gerplu 58,34
3. þrep eldri aldursfl. Pálmi Rafn
Steindórsson, Gerplu 54,95
4. þrep 9-10 ára Andri Freyr Jóns-
son, Gerplu 57,75
4. þrep 11-13 ára Ágúst Loftsson,
Gerplu 57,55
Sprækar stelpur af Seltjarnarnesi
Þessar stúlkur úr Fimleikadeild Gróttu ú
Seltjarnarnesi kepptu á fímmta þrepi á
Gymnova-þrepamóti Fimleikasambands
Islands í Laugardalshöllinni.
Stjörnuleikur Evrópusambands alþjóðakörfuboltasambandsins fer fram í apríl
Jón Arnór tilnefndur í stöðu bakvarðar
Við íslendingar eignuðumst full-
trúa í netkosningu Stjörnuleiks
evrópska körfuknattleikssambands-
ins á dögunum því Jón Amór Stef-
ánsson, sem leikur með Dynamo St.
Petersburg í rússnesku úrvalsdeild-
inni, er tilnefndur í bakvarðastöðu
Evrópuúrvalsins. Leikurinn fer fram í
Limassol í Kýpur þann 14. apríl næst-
komandi en þar mun úrval evrópskra
leikmanna mæta úrvalsliði erlendra
leikmanna utan Evrópu.
Ljóst er að heiðurinn er mikill fyr-
ir Jón Arnór og sýnir að hann er á
uppleið í íþróttinni. Þess má geta að
fyrrverandi félagar Jóns í KR hafa lát-
ið hendur standa ffam úr ermum og
fer nú mikil atkvæðasmölun fram í
Vesturbænum. Er stefnan sett á að
koma Jóni í Evrópuúrvalið, hvað sem
það kostar.
Þess má geta að Dynamo St. Pet-
ersburg er taplaust það sem af er í
Evrópukeppninni. Liðið lék gegn
gríska liðinu Iraklis á útivelli í fyrra-
kvöld. Heimamenn byrjuðu betur og
leiddu með 5 stigum eftir fyrsta fjórð-
ung en aðeins munaði einu stigi í
leikhléi, 51-50.
Jón og félagar spýttu í lófana í
seinni hálfleik og náði Iraklis aðeins
að skora 31 stig í hálfleiknum. Loka-
tölur urðu 100-82, Dynamo í vil sem
hélt sigurgöngu sinni áfram í Evrópu-
keppninni. Jón Arnór skoraði 9 stig í
leiknum og tók 2 fr áköst. Áhugasam-
ir geta nálgast slóðina á netkosningu
Stjörnuleiksins á kki.is.