Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 27
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 27
Foreldrar sem lenda í fósturláti eða eignast andvana barn eru stór en þögull hópur í íslensku
samfélagi. Sorg þessa fólks er mikil en þjóðfélagið er ekki tilbúið að viðurkenna hana. Mikil
þögn hefur ríkt um þetta málefni. Umræðan hefur verið þögguð niður jafn skjótt og hún fer af
stað. DV ræddi við nokkrar hugrakkar mæður sem voru tilbúnar að ræða um líðan sína eftir að
hafa misst barnið sitt. Þessar konur vilja rifta þessu tabúi sem ríkt hefur á umræðunni. Þótt
barnið sé enn í móðurkviði hugsa foreldrar og systkini um það og eru á fullu að undirbúa komu
þess í heiminn. Dauði þess er því mikið áfall sem margir eru lengi að ná sér eftir og fæstir ná
sér nokkurn tímann að fullu.
jjÍplÉ
„Ég missti bamið mitt árið 2001 og hafði
þá gengið 22 vikur," segir Hildur Jakobína
Gísladóttir sem stofnaði samtökin Litlir
Englar fyrir foreldra sem hafa misst bam á
meðgöngu, í fæðingu eða eftir fæðingu. ,AUir
sem hafa misst bam em velkomnir, sama
hvað bömin vom gömul. Það er ekki hægt að
meta sorgina og þetta er alltaf ja&i erfitt. Þeg-
ar ég missti bamið mitt vom eidá til nein sam-
tök fyrir fólk með svipaða reynslu. Ég leitaði
uppi konu í Vestmannaeyjum sem ég vissi að
hafði líka misst bam og fann hvað við höfðum
gott af því að tala saman þótt við þekktumst
ekki neitt," segir Hildur en samtökdn hafa nú
breyst í heimasíðu sem hún ritstýrir.
Óskiljanleg sorg fyrir áhorfanda
' Á heimasíðunni tala foreldrar um sameig-
inlega reynslu sína og ákveðnir hópar hittast
reglulega. Fyrsta árið efdr stofnun samtak-
anna höfðu 100 manns skráð sig svo þörfin
DAUÐI
var greinilega til staðar. „Umræðan hefúr
opnast mildð á síðustu þremur árum. Á síð-
unni geta foreldrar hist og talað saman og svo
svörum við fyrirspumum og erum með uppá-
komur og fleira. Ég held að þeir sem hafi
aldrei lent í þessu geti ekld skilið það sem við
göngum í gegnum. Sérstaklega þegar með-
gangan var komin stutt á veg. Þá er oft minni
skilningur fyrir að manni fiði illa. Þær konur
sem em að missa fyrir 12. viku koma líka inn á
síðuna en finnst þær ekki eiga heima þama.
En það er sem betur fer að breytast smátt og
smátt," segir Hildur og bætir við að hún og
þeir sem standi að síðunni hafi haft samband
við kvennadeildina í Reykjavík og á tveimur
stöðum úti á landi auk þess sem hún hafi beð-
ið ljósmæður að benda fólki sem lendi í fóst-
urláti eða vöggudauða á heimasíðuna. „Það
em samt ekki allir sem vita af þessu en ég veit
hvað þetta skiptir miklu máli. Maður sér það á
skilaboðunum þama inni. Fólk er að fá útrás
fyrir tilfinningar sínar og talar oft beint til
bamanna sinna. Heimasíðan er orðinn nokk-
urs konar staður þar sem fólk leitar huggunar
og kemst í nálægð við bamið sitt.“
Meðganga eftir fósturlát erfið
Eins og fyrr segir missti Hildur bamið sitt
þegar hún var gengið 22. vikur og veit því
hversu erfið sú lífsreynsla er. Núna er hún
hins vegar nýbúin að eignast litla stúlku sem
er orðin 4 og hálfsmánaða og auk þess á hún
fjögurra ára son. Hún segir meðgönguna eftir
fósturlátið hafa verið afar erfiða. „Meðgangan
var gífurlega erfið en ég held að það fari mik-
ið eftir ástæðu fósturlátsins. Hjá þeim konum
sem em með veikan legháls getur þetta gerst
í hvert skipti en hjá mér kom upp sýking og
þá em minni líkur á að þetta gerist aftur.
Maður er samt alltaf hræddur," segir Hildur
og bætir við að hún hafi verið undir afar góðu
eftirliti hjá kvennadeild Landspítalans og
Mæðraeftirlitinu. Þar fái konur sem hafi misst
fóstur mikla hjálp á síðari meðgöngu. „Við
fimm sem byrjuðum í samtökunum emm
núna allar búnar að eignast heilbrigð böm.
Lífið heldur
þvíáffam." Z' ~7 ,
indiana@dv.is ( FrCMJnClld G
' . . "....................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................... . r
næstuopnu