Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Page 29
DV Helgarblað
LAUCARDAGUR 12. MARS 2005 29
kkar var alvöru barn
Harpa Guðmundsdóttir fæddi andvana dóttur í febrúar á síöasta ári. Hún hefur haldið á lofti minningu
hennar með heimasíðu sem hefur fengið misjöfn viðbrögð. Hún segir það hafa verið mikilvægt þar sem
hún fann fyrir því að mörgum fannst þetta lítið mál. Hún vildi því gera fólki grein fyrir því að þetta var
alvöru barn sem hún fæddi þó að það hafi verið látið.
„Ég vissi hvernig þetta gekk fyrir
sig. Hafði lesið bækur um þetta og
var undirbúin að því leyti," segb
Harpa Magnúsdóttir sem fæddi
andvana barn fyrir rúmu ári síðan.
„Ég var algerlega dofin og fram-
kvæmdi þetta hugsunarlaust. Eftir á
að hyggja er þetta allt mjög skrítið
hvernig maður fer í einhvern doða
sem verður til þess að maður gerir
þetta svona eins og vélmenni," segir
Harpa.
Hún ákvað að nefna andvana
dóttur sína Perlu Dís í höfuð á móð-
ur sinni sem heitir Margrét sem þýð-
ir Perla. „Það var lítið sem ég gat gert
fyrir hana annað en að gefa henni
failegt nafn,“ segir Harpa. Perla Dís
fæddist þann 14. febrúar 2004 kl
11.05. Hún fæddist andvana, hafði
látist í móðurkviði um það bil tveim-
ur sólarhringum áður. Hún er fædd
2640 gr og 51 cm, myndarlegasta
dama eftir ekki lengri meðgöngu. En
hún hafði aðeins verið í móðurkviði
í 36 vikur rúmar. Perla Dís á bróður
sem heitir Kristófer Darri. Þau eru
sammæðra. Faðir Perlu Dísar heitir
Birgir Freyr Andrésson.
Meðgangan hjá Hörpu hafði geng-
ið vel þar til hún fór að fínna fyrir því
að óvenju rólegt var í bumbunni.
Langaði að vakna af martröð-
inni
„Ég hugsaði að það væri nú
kannski ekkert skrítið, ég væri nú kom-
in rúma 8 mánuði og kannski farið að
þrengja að ört vaxandi krílinu mínu.
Þegar ég fann svo ekkert heldur á
föstudeginum ákvað ég að láta nú at-
huga með þetta. Fór því upp á mæðra-
vemd seinnipartinn og var hlustuð.
Þaðan var ég send í monitor. Eftir að
sérfræðingurinn hafði séð að engan
hjartslátt væri lengur að finna, fengum
við sttax svo mikla hlýju og aðstoð frá
starfsfólkinu á Landsspítalanum, “ seg-
ir Harpa þegar hún rifjar upp þessa
skelfilegu lífsreynslu. „Okkur langaði
mest til að VAKNA af þessari marttöð.
Litla bamið okkar sem við hlökkuðum
svo til að fá var dáið," segir Harpa sem
leitaði svara við óteljandi hugsunum
sem leituðu á huga hennar. Eftir þessi
skelfilegu tíðindi fóm þau heim þar
sem hún knúsaði Kristófer son sinn
sem þá var tæplega tveggja ára og fann
Barnið fæðist látið
Harpa segir starfsfólkið á spítalan-
um hafa sýnt mikin stuðning og nær-
gætni við þessar erfiðu aðstæður. Þau
komu inn á Landsspítala um miðnætti
þar sem fæðingin var sett í gang. „Við
fengum yndislega ljósmóður sem heit-
ir Unnur. Hún talaði við okkur, veitti
okkur upplýsingar og stuðning og
dreifði huganum. Um hálf eitt fengum
við sína svefntöfluna hvort og sofhaði
ég fljótt, Biggi átti erfiðara með að
sofha en svaf fast þegar ég vaknaði
fjórum og hálfúm tíma seinna. Þá hef-
ur undirmeðvitundin vakið mig, og þá
fékk ég annan stll. Svo sofnaði ég lflca
aftur. Biggi svaf fast til morguns en sí-
harðnandi samdrættir vöktu mig mjög
reglulega," segir Harpa.
Fjölskyldan
Harpa og Birgir
ásamt Kristófer
óljóst á sér að eitthvað væri syni Hörpu.
að. Eftir að Harpa og Birgir
Freyr höfðu komið Kristófer í pössun
hvfldu þau sig saman, grétu og undir-
bjuggu sig fyrir fæðinguna þar sem
framkvæma átíi með gangsetningu.
Stóðu saman í sorginni
Um morguninn vom þau svo
færð í aðra stofu þar sem fór að
styttast í fæðinguna. „Yndislegar
hjúkrunarkonur hreyfðu við belgjun-
um og þá fór fæðingin fyrir alvöm af
stað. Ég fékk mænudeyfmgu og leið
betur eftir að hafa fengið mjög harðar
hríðar í einni dembu. Rétt fýrir hádegi
skaust svo daman í heiminn," segir
Harpa sem fékk svo bamið í fangið eft-
ir að hún fæddist rétt eins og tíðkast
um hefðbundnar fæðingar. „Hún var
svo falleg. Alveg eins og bróðir sinn,
bara stelpa. Með mfldð dökkt hár og
ftfllkomin í alla staði. Það er svo sárt að
fá ekki að njóta hennar við,“ segir hún.
Harpa og Birgir Freyr fóm svo heim
seinnipart dags eftir að hafa fengið að
njóta þess að vera með litla baminu
sínu sem hafði fæðst andvana. Hún
segist bæði hafa verið bæði með lítið
hjarta og aum á sál eftir atburði
dagsins.
Alvöru barn sem dó
Harpa er mjög ánægð og þakklát
með þann frábæra stuðning sem hún
fékk frá starfsfólki Landsspítalans við
þessar aðstæður. „Við fengum frábæra
ljósmóður sem hjálpaði okkur mfldð.
Hún kom hingað heim eftir á og talaði
við okkur. Það var mikill stuðningur af
henni," segir Harpa. Hún leitaði lflca til
CFramhaldá |
næstusíðu J
Þrjú skeið meðgöngunnar
Myndir úr móðurkviði eru úr bókinni Barn verður til, birtar
með leyfi útgefanda. Myndir teknar afLennart Nilsson.
Annað skeiðið er frá 14. viku að 29. viku. Með hjálp sónars er hægt að greina kyn
fóstursins i kringum 16. viku. Mismunandi er hvenær móðirin fer að finna fyrir
hreyfingum en algengt er að það byrji i kringum 17. viku. Á 17. viku eru andlits-
drættirnir farnir að þroskast og lengd barnsins er orðin ca 18 cm. Á fjórða mánuði
meðgöngu er hættan á fósturláti verulega minni en áður. Á 28. viku er fóstrið talið
lífvænlegt en með tækninni sem til er i dag hefur tekist að bjarga lífi enn yngri
barna.
wl
Þriðja og síðasta skeið meðgöngunnar
er frá 29. viku fram að 42. Hér þroskast
lungun og nýrun og lifrin tekur til starfa. /
þessum tima fer barnið að skorða sig til gera sig
tilbúið fyrir fæðinguna. Barnið á myndinni er komið
36. vikur á meðgönguna og á aðeins einn mánuð eftir. Áætluð stærð
er um það bil 34 cm og þyngd 2000 til 3000 grömm en barnið mun
liklega bæta á sig kilói i viðbót.