Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Helgarblaö DV
Brúðkaup eru alltaf jafn yndisleg og
ógleymanleg Qölskylduathöfn. DV leit-
aði uppi sex pör sem gengu í það
heilaga síðasta sumar og spurði þau
spjörunum úr. Það er greinilegt að
nýja brumið er alls ekki farið á þessu
eina ári sem ungu brúðhjónin hafa
verið gift og greinilegt að þau eru öll
ennþá ástfangin upp fyrir haus.
„Við gerum þetta allt í réttri röð,“ segir
Bryndís Valdimarsdóttir en hún og eigin-
maður hennar Sævar Þór Helgason giftu sig
sunnudaginn 25. júlí í fyrra. Bryndís er kom-
in 5 mánuði á leið og er skrifuð inn á fæð-
ingadeild 17. júlí og þá munu þau eignast
sitt fyrsta barn. „Þetta er svolítið minn stfll,
ég verð að hafa allt í réttri röð,“ segir Bryndís
hlæjandi. Brúðkaupið var haldið í Hvera-
gerðiskirkju en hjónakomin búa í Hvera-
gerði. Bryndís segir bónorðið hafa verið
sameiginleg ákvörðun í upphafi en hann
hafi síðan komið með lokahnykkinn. „Við
vorum búin að vera saman í fimm ár og
þetta var kannski frekar óformlegt. Við
kynntumst í Kennaraháskólanum en fómm
fýrst að tala saman af viti þegar hann var að
spila á balli um aldamótin," segir Bryndís en
Saévar Þór er gítarleikari í hljómsveitinni á
Móti Sól. „Þetta var alveg yndislegasti dagur
í h'fi okkar sem endaði svo með brúðkaups-
ferð til Barcelona sem var alveg æðislegt.
Veislan var haldin í Hvíta húsinu á Selfossi
og á meðal gesta var náttúrulega fullt af
poppurum svo það vantaði ekki tónlistar-
fólkið," segir Bryndís en viðurkennir að það
sé stundum svoh'tið erfitt að vera gift pópp-
ara þar sem hann sé svo oft að spila um helg-
ar og að taka upp plötur en bætir við að það
sé þó algjörlega þess virði.
Falleg athöfn Biyndis er komin 5 mán
uði á leiö og er skrifuö inn 17.júli og þá
þá munu þau eignast sitt fyrsta barn.
Sævar Þór Helgason og Bryndís
Valdimarsdóttir Brúðkaupið var haldið
í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 25.júli
en hjónakornin búaí Hverageröi.
Astfangin „Þetta var alveg yndis
asti dagur i llfi akkar sem endaði í
með bruðkaupsferð til Barcelona <
var alveg æðislegt," sagði Bryndfs.
Berglind Björk Halldórs-
I dóttir og Hannes Þór Bald-
ursson Falleg brúðhjón á
skemmtilegum degi. Berglind
segir allt hafa verið sam~
kvæmt uppskriftinni og nú sé
hún ófrisk og eigi að eiga i
apríl, nákvæmlega ári eftir
brúðkaupsdaginn.
Stress, læti
en mikil hamingja
„Dagurinn heppnaðist bara ótrúlega vel,“
segir Berglind Björk Halldórsdóttir en hún og
Hannes Þór Baldursson gengu í það heilaga í
Safnakirkjunni í Arbæjarsafni þann 4. apríl á síð-
asta ári. „Fyrir brúðkaupið var búin að vera mik-
il geðveiki í gangi svo ég bjóst ekki við að þetta
myndi ganga svona vel. Ég tel okkur vera afar
hógvært fólk sem er ekki fyrir mikið tilstand og í
fyrstu ætluðum við að hafa þetta afar heimilis-
legt og kósý,“ segir Berglind Björk en bætir við að
eftir því sem á undirbúninginn hafi liðið hafi
stressið og lætin magnast og yfirtekið þau. „Ég
var meira að segja farin að væla yfir því að ser-
víetturnar væri ekki í réttum lit og að allt væri
ekki fullkomið. Síðan þegar kom að stóru stund-
inni gekk þetta bara eins og í sögu og fólk er enn
að tala um að þetta sé skemmtilegasta veisla sem
það hefur lent í,“ segir Berglind Björk brosandi
þegar hún rifjar upp brúðkaupsdaginn. „Ég var
mjög stressuð varðandi kjólinn. Amma heitin
hafði saumað hann á mömmu þegar hún gekk
með mig, svo það má segja að ég hafi klæðst
honum tvisvar. Þegar við skáluðum byrjaði ég
náttúrulega á því að sulla yfir hann en þá var ég
orðin rólegri enda reddaðist það."
Berglind segir Hannes eldd hafa tekið í mál
nema presturinn sem pússaði þau saman væri
gamall og virðulegur. Þau hafi leitað lengi áður
en þau fundu einn sem kominn var á eftirlaun,
með hvítan hökutopp og nægQega settíegur. „í
veislunni fengum við Brúðarbandið tQ að spila
og ég söng með þeim í tveimur lögum og var hk-
lega enn meira stressuð fyrir það en sjálft brúð-
kaupið."
Hún segir aUt hafa verið samkvæmt upp-
skriftinni og nú sé hún ófrísk og eigi að eiga í
aprfl, nákvæmlega ári eftir brúðkaupsdaginn.
„Þetta er allt mjög siðsamlegt enda eru við svo
vel upp alin. Við vorum búin að vera saman í sjö
ár og ætíuðum aUtaf að gifta okkur áður en við
myndum eignast barn," segir Berglind að lokum.
Yndislegur
dagurút í gegn
„Ég fékk kjól af ömmu hans sem
er alveg æðislegur," segir Kristín
Magdalena Ágústsdóttir en hún og
Úlfar Guðbrandsson gengu í það
heUaga þann 12. júní síðastiiðinn.
Brúðkaupið fór fram í Staða-
hraunskirkju sem er lítil kirkja á
Mýrunum í Borgarfirði og það var
séra Guðjón Skarphéðinsson sem
pússaði ungu hjónin saman. Krist-
ín og Úlfar höfðu búið saman í m'u
ár áður en þau ákváðu að láta vígja
sambúðina. Þau eiga saman þrjá
stráka en kynntust er þau léku
saman í leikriti í Borgarnesi. „Við
höfðum vitað af hvoru öðru í ein-
hvern tíma en kynntumst svo al-
mennilega í leikdeUdinni," segir
Kristín sem er leUcskólakennari.
„Núna búum við á Flúðum og
erum að fara að byggja svo það er
rosalega spenna í gangi. Ef ég
hugsa tU baka tíl brúðkaupsdags-
ins þá verð ég að segja að þessi
dagur var alveg yndislegur út í
gegn. Fjölskyldur okkar voru dug-
legar að hjálpa okkur við undir-
búninginn og svo gáfu systkini
hans gistingu um nóttina á hóteli
sem var alveg rosalega flott og
punkturinn yfir i-ið og góður endir
á góðum degi.“