Freyr - 01.05.1945, Blaðsíða 16
66
FRE YR
landið í pólitískum kosningaáróðri og
sitja á Alþingi.
Um „bjálkann í eigin auga“, sem bún-
aðarmálastjórinn minnist á, vil ég segja
þetta: Ég tel mig ekki hafa getað unnið
eins mikið fyrir bændaskólann og skóla-
búið á Hvanneyri, eins og ég feginn hefði
viljáð. Ég sá mér ekki fært að starfa í
milliþinganefnd tilraunamála, þeirri, sem
Steingrímur minnist á, en fékk til þess í
minn stað Pétur Gunnarsson búfræði-
kandidat. Þetta veit búnaðarmálastjórinn,
því hann var sjálfur formaður þessarar
nefndar. Ég hefi starfað allt of lítið í
Verkfæranefnd ríkisins, enda hefi ég frétt,
að búið sé að setja mig þar af og skipa
formann Bf. ísl. í staðinn. Ég hefi neitað
tvívegis að fara í framboð til Alþingis.
Ég verð, því miður, að hryggja búnaðar-
málastjórann með því, að ég er honum
alveg ósammála, að íslenzkir bændvr séu
hreinir snillingar að fóðra búfé, og að við
eigum fjölda bænda, sem séu ágætir jarð-
ræktarmenn, eins og hann segir í And-
svari sínu. Að vísu veit ég ekki við hvað
búnaðarmálastjórinn miðar þetta mikla
álit sitt á bændunum í þessu efni. Ég hefi
á síðastliðnum áratug kynnst mörgum
bændum og búskap þeirra á Norðurlönd-
um, mest í Danmörku og Noregi, og nú
síðustu mánuðina í Bandaríkjum Ameríku.
íslenzkir bændur standa bændum þessara
þjóða hvergi nærri á sporði, hvorki í bú-
fjárrækt né jarðrækt. Því miður. (Fyrir
þessi ummæli mín myndi eflaust enginn
íslenzkur bóndi kjósa mig á þing).
Ég dái skáldin, sem búnaðarmálastjór-
inn minnist á „úr röðum íslenzkra
bænda“, þó kýs ég heldur, að bændurnir
séu bændur og fremur en skáld, því fæstir
munu valda hvorutveggju svo í lagi sé.
Ég hefi nú dvalið hér í Bandaríkjum
Ameríku um nokkurra mánaða skeið. Ég
hefi eftir föngum reynt að kynna mér bú-
fjárrækt, búnaðarfræðslu, störf ráðunauta,
notkun búvéla og búskap bænda hér. Ég
hefi heimsótt allmarga landbúnaðarhá-
skóla, bændaskóla, tilraunastöðvar, ferð-
ast nokkuð með ráðunautum og einn míns
liðs meðal bænda. Eftir þetta hefi ég
sannfærzt enn betur um, að okkur er
mikil nauðsyn á auknum faglegum áróðri
meðal bændanna á íslandi. Búnaðarfé-
lag íslands þarf miklu meira fé til um-
ráða. Það þarf að fjölga ráðunautum og
veita þeim miklu betri starfsskilyrði en
þeir hafa haft hingað til, meðal annars
er þeim nauðsyn að hafa eigin bifreiðar
til umráða. Framhaldsdeild í búnaðar-
fræðslu þarf að komast á fót strax. Hér-
aðsráðunautar í hvert hérað landsins.
Búnaðarblaðið þarf að auka. Koma þarf
á árlegum sýningum og mati á verkum
bændanna o. fl., o. fl.
Það er útúrsnúningur hjá búnaðar-
málastjóranum, að ég ætlist til, að hinn
faglegi áróður sé skrum og ósannindi.
Hann á ekki að vera annað og þarf ekki
að vera annað en hrein sannindi, þ. e.
túlkun á vísindum og tækni nútímans og
á staðreyndum um búskap ýmsra búnaðar-
þjóða, sem standa okkur framar, og mögu-
leika og bættar og nýjar aðferðir búnað-
ar á íslandi. Ef Bf. ísl. segði allan sann-
leikann í þessu efni, myndi faglegur á-
róður þess margfaldast frá því sem nú er.
Með kærri kveðju til íslands.
P. t. University Farm, St. Poul. Minnesota,
15. janúar 1945.
Runólfur Sveinsson.
Kaupir náfiranni þinn Frey?