Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 10

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 10
92 FREYR Innimynd af fjósi í Ul- tuna, Svíþjóö. í loftinu sézt flutningabraut fyrir fóðurvagna. höfðum í jötuna, en milli gjafa er lokað. Sjálfvifkur útbúnaður er hafður til þess að opna fyrir kúnum, þegar tími er til að þær fái fóðrið. Þegar meysarnir koma úr hlöðu, er þeim þannig raðað, að hver meys staðnæmist framan við ákveðna kú og er hann raunverulega meys og jata í senn, því að meysarnir eru í jötu stað unz kýrnar hafa etið, en þá eru þeir dregnir í hlöðu aftur. Segir svo frá um þetta fyrirkomulag, að því fylgi sá mikli kostur, að hægt sé að láta morgungjöf í meysana og flytja þá á sinn stað fyrir kýrnar að kvöld, en með sjálf- virkum útbúnaði geta milligerðir opnazt á ákveðnum tíma að morgni áður en hirðir er kominn í fjósið og geta þá kýrnar byrjað að eta. í ritgerð um þessi efni skrifar Sellergren verkfræðingur í Lantmannen no. 48 1946, eftirfarandi: „Með sjálfvirku fóðrunarkerfi, sjálf- virkri flórhreinsun, hirðingu með hjálp tækninnar, sjálfbrynningu, mjaltavélum og nýtízku útbúnaði við meðferð mjólkurinn- ar, á að vera hægt að skipuleggja fjósverkin á hagrænan hátt. Þegar þessi hjálparmeð- ul eru notuð geta tveir menn hirt 125 naut- gripi og nokkur svín þar að auki. Með aukinni vélanotkun við hirðingu búpen- ings og önnur störf í fjósi, losna menn við erfiðustu verkin og störf hirðanna verða léttari. Einkum þykir það erfitt verk að gefa vothey. Ýmsir hirðar þreytast á því að vega 25 kg. af A.I.V.-votheyi á dag handa hverri kú. — Þess vegna er þörf á því að fá tækni til hjálpar. Það er vitanlegt, að dagsgjöf kýrinnar er vel skömmtuð þegar hún fær á meðal annars 25—30 kg. vot- hey og þessi skammtur vetrarlangt eykur smjörfituna um 25—30 kg. á ári. Með því að fóðra hverja kú eftir þörfum hennar og á þann hátt, sem að framan er greint, sparast fóður og engin skepna er sett hjá, heldur fær sinn skerf nákvæm- lega eins og hún á skilið.“ Af þessum ummælum er það auðsætt, að ýmislegt stendur til bóta hjá þeim, sem finnst það meðalmannsverk að hirða 10 kýr í fjósi. Þótt hér sé ef til vill ofsagt, að því er

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.