Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 31

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 31
FREYR 111 kippur komi í flesta eSa alla unga í hópn- uin, ef smitun er óheft. Veikin gengur all ört yfir og tínir upp flesta ungana á fáum öögum. Sýkjast þeir hvað af hverju, svo að greinilega er um faraldur að ræða. Algeng- ust er þessi sótt í ungum 3—5 vikna að uldri, en hún getur þó einnig komið fyrir i eldri ungum og yngri. I vöxnum fuglum eru sjúkdómsein- kenni hægferðugri eða langvinnari, og sjaldan geisar þessi veiki sem magnaður íaraldur í þeim, heldur tínir hún upp einn °g einn fugl hægt og bítandi. Þeir, sem sýkjast, verða fölir á kamb og sepa, missa smátt og smátt matarlyst, horast, verða úfnir og óhreinir á fjaðrir og sýna af sér litia löngun til hreyfingar. Skitu verður stundum vart en stundum ekki. Oft ber á rnáttleysi í fótum. Líffœrabreytingar í ungunum eru næst- urn eingöngu bundnar við botnlangana. Þeir eru fyllri og úttroðnari en eðlilegt er, dökkrauðir að lit, stundum með svart- bláum blettum. Þegar botnlangarnir eru opnaðir, sézt, að veggir eru þykknaðir af bólgu og slímhúðin blóðrisa. Botnlanga- saurinn er líka allur blandinn blóðdrefj- um og hroða. Þegar sýkin er langvinn þ. e. a. s. eink- um í hálf- eða fullvöxnum fuglum, er líf- færabreytingarnar að finna í mjógörninni. Garnaveggirnir eru þykknaðir og bólgnir, °g litlir, hvítir dílar sjást oft gegnum ytri himnur garnarinnar. Slímhúðin í görn- inni er bólgin og hrjúf og þakin seigu slími. Stundum sjást smáir blóðrisa flekkir í slímhúðinni og þá má einnig finna litlar blóðlifrar í görninni. Sjúkdómsgreining. — Ef brögð eru að veikindum og dauða í hænuungum á þeim aldri og með þeim einkennum, sem getið er hér að framan, má með miklum líkum álykta, að um hníslasótt sé að ræða. Ekki er þó unnt að ákvarða sjúkdóm þennan með fullri vissu, nema sjúkdómsvaldurinn — hnísildýrin — finnist í einhverri mynd við smásjárrannsókn. Sama má segja um sjúkdóminn í fullorðnum fuglum, og er jafnvel hæpið, að menn geri sér grein fyrir, að þar sé um nokkura sérstaka sýki að ræða, því að það mun ekki þykja neitt verulegt tiltökumál, þó að ein og ein hæna hrökkvi upp af öðru hvoru. En þó kann svo að fara, að sjúkdómurinn höggvi til- finnanlegt skarð í fuglastofninn, auk þess sem hann dregur úr varpi. Sýkingarleiðir. — Eins og áður er sagt, berst þessi sýki frá einum fugli í annan með saur, sem í eru þroskaðir hníslar. Lifnaðarhættir hænsna og kropp þeirra og krafs um gólf og grundir gerir það að verk- um, að þeim hættir mjög við að fá hnísl- ana ofan í sig. Vert er að minnast þess, að hænsni, sem lifað hafa sóttina af, halda áfram að vera smitberar mjög lengi á eftir, enda þótt þau virðist vera orðin fullfrísk. Oft hefir verið talið, að sýking gæti borizt með þeim hætti, að hníslar væru utan á skurn klakeggja, og þeir kæm- ust þaðan ofan í ungana. Nýlegar rann- sóknir (einkum í Ameríku) þykja benda í þá átt, að þessi sýkingarleið sé að vísu hugsanleg, en muni fátíð. Þá er einnig hugsanlegt, að flugur, rottur eða önnur aðskotadýr geti borið utan á sér sjúk- dómsvaldinn milli fuglabúa eða úr einni stíu í aðra, og loks má ekki gleyma því, að menn geta borið sóttina á milli t. d. á skítugum skóm, óhreinum fötum, ílát- um eða áhöldum o. s. frv. Varnarráð og meðferð. — Margs konar lyf hafa verið reynd við hníslasóttinni, en við nána rannsókn hafa flest reynzt gagnslaus eða hæpin. Sumir hafa þótzt ná góðum árangri með því að gefa brenni- stein í varnarskyni, en varlega verður að u»

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.