Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 39

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 39
FREYR í 19 °g launalækkun með tilliti hóflegs verðs a iandbúnaðarvörum og möguleikum fyrir sölu þeirra erlendis. í*á var og samþykkt að skora á stjórn sambandsins að beita sér fyrir því, að bú- vörur, sem ekki hafa verið verðskráðar að Þessu, svo sem hrossakjöt, slátur og hey, verði verðskráð framvegis og selt með sama vmði á sambandssvæðinu. Samþykktir voru gerðar þess efnis að auka vélakost þann, sem vinnur að rækt- unarframkvæmdum bænda, og ennfremur að hlutast verði til um það, að á sam- bandssvæðinu verði komið á fót viðgerð- arverkstæði fyrir búvélar. Á fundinum var rætt um hve óréttmætt sé> að gömul tún í kauptúnum skuli ekki ujóta sama réttar um jarðræktarstyrk og samskonar á lögbýlum og skorar því á Búnaðarþing að leita leiðréttingar á þessu atriði. í sambandi við fjárskiptamál héraðs- ms, vegna sauðfjársjúkdóma, samþykkti fundurinn að skora á stjórnarvöldin að verða við óskum búenda, milli Héraðsvatna 1 Skagafirði og Blöndu, um það að fjárskipti fari fram á nefndu svæði haustið 1947. Þá var 0g skorað á búendur A-Húnavatns- sýslu, vestan Blöndu, að fara að undirbúa ^járskipti á því svæði, er fari fram ekki siSar en haustið 1948. Þá var samþykkt yfirlýsing þess efnis, að athuga bæri vandlega í samráði við sauðfjársjúkdómanefnd, hvort ekki sé véttmætt að nefnt svæði sé fjárlaust eitt ár rvtir niðurskurð á mæðiveiku fé, til varnar gegn frekari útbreiðslu garna- veikinnar. Og ennfremur var samþykkt, í sambandi við fjárskiptamálin, að skora á Alþingi að samþykkja lög um útrýmingu íjárkláða í sambandi við fjárskipti í land- inu. Verði ekki úr því, skuli stjórn sam- bandsins vinna að framgangi þess máls í héraði í samvinnu við sýslunefnd. Fengist hefir staðfesting á húsagerð- arsamþykkt sambandssvæðisins en óskir héraðsbúa um fleiri framkvæmdir fylgja, enda samþykkti fundurinn að skora á stjórn rafveitumálanna og alþingismenn kjördæmisins að hraða enn meira en að undanförnu undirbúningi þess, að sem flest byggð býli í sýslunni eigi kost á raf- afli á næstu árum við hæfilegu verði. Þá skal að lokum birta eftirfarandi sam- þykkt fundarins: Fundurinn mótmælir hinu ósvífna slysatryggingargjaldi, sem nú hefir verið dembt á bændur í algjöru ósam- ræmi við þá litlu slysahættu, er staf- ar af landbúnaði. Skorar fundurinn því á Alþingi það, er nú situr, að lækka iðgjald þetta um allt að % hluta. Sami fundur beinir því til félagsmálaráðu- neytisins, að láta ekki fyrstu inn- heimtu þessa slysatryggingagjalds ná til annarra en þeirra, sem skráðir eru sem verkafólk 31. desember 1946 Tillaga þessi var undirrituð' af öllum mættum fulltrúum og er frá fundarins háífu auðvitað miðuð við það verkafólk, sem er á vegum landbúnaðarins. ★ Svo segja bæði yngri og eldri menn, að fágæt sé sú veðrátta, sem sunnanlands ríkir á þessum vetri. Sumarhlýindi til miðs febrúar og upp úr því samfelldar stillur með frosti um nætur og sólskini og sólbráð um daga. Aðeins um nokkurn hluta undirlend- isins hefir snjór legið sem nokkru nam, á- freði, er olli jarðbönnum um skeið, en ann- arsstaðar hefir vart séð snjó á vetrinum. Um jafndægur er því viðhorfið með ágæt- um á þessum svæðum landsins.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.