Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1947, Page 5

Freyr - 01.08.1947, Page 5
FREYR 243 Sjóurriði eftir eins árs dvöl í sjó. % af náttúrulegri stœr'S bændur við neðri hluta stóránna fengu vaxandi hlut samtímis því, að hlutur bænda oiar við þær rýrnaði. Hins vegar hafa framfarirnar orðiö örari á þessari öld, og hefir hin sívaxandi eftirspurn eftir veiðifangi haft sín áhrif á þær. Lagnet voru aðalveiðitækin í stóránum. Ádrátt- arnet voru einnig notuð þar, sem hægt var að koma þeim við. Á seinni árum er farið að veiða á stöng. Kistur hafa og verið notaðar. Rétt eftir 1920 var tekin upp girðingaveiði á leirusvæði Ölfusár og nokkru seinna á leirusvæði Hvítár í Borg- arfirði. Reyndust girðingarnar fengsælar og fjölgaði þeim ört. Veiðirýrnunin í stóránum fór að gera vart viö sig þegar á árunum eftir 1920 í sumum, en ekki fyrr en á árunum eítir 1930 í öðrum, og hafa laxfiskstofn- arnir síðan haldið áfram að rýrna, en misjafnlega ört í einstökum ám. Til þessa hafa menn víðast hvar ekki viljað játa fyrir sjálfum sér, að veiði í stóránum hefir farið rýrnandi á síðustu árum, þó að þeir hafi vitað um það og haii beðið aðgerðar- lausir eða aðgerðarlitlir eftir kraftaverki til að bjarga ástandinu. Fiskiræktar- eða veiðifélög hafa verið stofnuð við allflestar stórárnar, en ekki hafa þau öll orðið þess megnug að koma verulegu til leiðar til úrbóta, að því er séð veröur. Að öðrum félögum ólöstuðum, má telja Veiðifélag Ásne inga, forustufélag við stórárnar. — Þegar eftir stofnun þess, hóf það félags- veiði á félagssvæðinu og vann þarft verk með því að losa veiðisvæðið við þá neta- stöppu, sem þar hafði verið árlega. Nú sýnir félagið enn forustuhæfni sína með því að ákveða að hefja á þessu ári stór- kostlegri fiskiræktarstarfsemi, en þekkst hefir áður hér á landi, til að fá skjótari og betri árangur af uppbyggingarstarfi sínu. Þessar auknu fiskiræktarráðstafanir á að íramkvæma á allt að 10 árum, og verða þær mjög víðtækar. Félögin við hin- ar stórárnar ættu að feta í fótspor Veiði- félags Árnesinga og hefja víðtækar ráo- stafanir til að auka fiskstofnana í sínum ám, og bæta með því fjárhagslega afkomu meðlima sinna og um leið héraðanna. Fiskisæld stööuvatnanna okkar er mjög misjafnlega mikil, og fer hún eftir hrygn- ingar- og uppeldisskilyrðum hvers vatns. Vötnin eru yfirleitt lítil og þola aðeins takmarkaða veiði. Stóru vötnin, eins og Þingvallavatn og Mývatn, þola töluverða veiði, en þau má ofveiða eins og önnur vötn með mikilli veiðisókn. Helztu veiðar- færin, sem notuð eru í vötnum, eru: Lag- net, ádráttarnet, færi og stangir. Þegar

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.