Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1947, Blaðsíða 17

Freyr - 01.08.1947, Blaðsíða 17
FRE YR 255 stigiS var p—H 4,5—4,8. Bezt reyndist maiz-íblöndunin (III—1 III—2). Var not- aður þresktur maiz bæði heill og malaður. Sæmilega gafst að velkja grasið fyrir hirð- ingu (III—6). íblöndun á þurrheyi (III— 5), hafrahálmi (III—4) og hefilspónum (III—3) gafst illa, en hún var gerð í þeim tilgangi að draga úr vatnsmagninu í vot- heyinu. Gerðar voru einnig stærri votheysgerð- ar tilraunir, þar sem reyndar voru betur þær aðferðir, sem bezt gáfust við minni tilraunirnar. Var heyið frá þessum til- raunum síðan reynt til fóðurs handa mjólkurkúm og rannsökuð áhrif þess á líkamsþunga þeirra og nythæð. í hverja tilraun voru notuð 5—20 tonn af fóðurgrasi. Tegundirnar voru: Hafrar, ertur, súdangras, soyjabaunir, alfalfa, loðgresi og maiz. Til blöndunar var notað: Fosfórsýra, melassi, malaðir maiz-kólfar og mysuduft. Ákveðið var þurrefni, sýru- stig (p—H) og karótin eins og áður. Eru niðurstöðurnar sýndar í töflu II. Tilraunir árið 1940. Votheyið í öllum þessum tilraunum var mjög útlitsgott og ázt vel. Sýrustig p—H 3,9—4,5. Rýrnun á karótíni var þó sums staðar mikil (til- raun 2b, 2c, 3a, 3b, 3c). Tilraunir árið 1941. Votheyið í tilraun- unum 4a, 4b og 4c var gott, rýrnun á karó- tíni þó mikil í tveim þeim fyrstu. Vot- heyið með mysuduftinu (tilraunir 5a, 5b, 5c), var líka gott að öðru leyti en því, að karótinrýrnunin var mikil. Við tilraun- irnar 6a, 6b, og 6c, sem allar gáfu gott vothey, er það athyglisvert að karótín- rýrnunin er mjög mikil þar sem engin íblöndun er (6a) og þar sem blandað er 200 kg. af möluðum maiz-kólfum pr. tonn (6b), en lítil þar sem blandað er í 250 kg. af maiz-kólfum pr. tonn (6c). Er talið að malaðir maiz-kólfar verki seint á mjólk- ursýrugerlana, svo að fjölgun þeirra verð- ur ekki nægilega hröð, en mjólkursýran verndar karótínið. Sýrustigið komst hér litlu neðar fyrir íblöndunina. Tilraunir árið 1942. Votheyið í báðum tilraununum reyndist ve1, en þó betur þar sem blandað var í möluöum maiz-kólfum. Karótínrýrnun um 50%. Tilraunir árið 1943. FóðurgrasiÖ var hirt snemma. Var þessi alfalfa miklu yngri en í tilraununum 6a, 6b, og 6c (1942). BæÖi maizinn og alfalfan gáfu ágætt vot- hey (p—H 3 8—4,4). Karótínrýrnun engin í því síðarnefnda (tilraun 10). Við tamanburðarfóðrun með votheyi frá öllum þessum tilraunum (1940—1943) kom ekki fram neinn verulegur munur á líkamsvexti eða nythæð kúnna. Niðurstöður þessara erlendu votheys- gerðartilrauna eru í stuttu máli þær, að bezt reyndist að blanda í heyið melassa (40 kg/tonn) eða möluðum maiz-kólfum (200 kg/tonn). Vel reyndist einnig að blanda í heyið maizmjöli, fosfórsýru og þykktri eða þurrkaðri mysu. Innlendar tilraunir. Á árunum 1941—1946 hefir Atvinnu- deild Háskólans gert nokkrar tilraunir með votheysgerð. Hefir tilraunum þess- um verið lýst í Skýrslu Iðnaðardeildar árið 1941—1944 og í Tímariti V. F. í. 1943, bls. 46. Til votheysgerðarinnar var notaö, taða (fyrri sláttur), háartaða og bygg. og til íblöndunar, mjólkursýrugerlar, maiz- mjöl og mysa. í hverja tilraun fóru ca. 5 tonn af fóð- urgrasi. Fergt var með grjóti, 500—1000 kg. á m'2, nema í tilraun 5c, þar var ekkert farg notað. Mælt var hitastig, þurrefni og sýrustig öðru hverju meðan á tilraun-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.