Freyr - 01.08.1947, Blaðsíða 18
256
FRE YR
inni stóð. Yfirlit yfir þessar tilraunir og
niðurstöður þeirra er gefið í töflu III. —
Eins og þar kemur í ljós, þá hefir í nokkr-
um tilfellum (2a, 2b, 3b, 4,5c) tekizt að
koma sýrustiginu í p—H 4,2—4,5. En bæði
í þessum tilraunum og öðrum hefir p—H
hækkað aftur, og í lok tilraunanna er
það alls staðar komið upp yfir 5, nema
þar sem notað var maizmjöl til íblönd-
unar (2a, 2b).
Við allar tilraunirnar varð góður gróð-
ur af mjólkursýrugerlum í heyinu, að
minnsta kosti fyrst í stað. En er lengra
leið urðu smjörsýrugerlar oft áberandi og
stundum líka rotnunargerlar. Um leið
fór súrinn í heyinu minnkandi. íblöndun
mjólkursýrugerla hafði lítil eða engin á-
hrif, en maizmjölið var greinilega til
bóta.
Mysan, sem notuð var, var skyrmysa,
sýrð með skyrgerlum. Þegar mysan var
þykkt, þá voru settir í hana skyrgerlar á
eftir, til þess að sýra hana betur. Til-
raun 4, sem gerð var með velktri háartöðu
og blandað í mysu, þykktri í y2 af upp-
runalegu rúmmáli, tókst vel. Hitinn fór
þar upp í 40°. Tilraun 6, sem gerð var
einnig með velktri háártöðu og mysu,
þykktri í y3, tókst ekki eins vel. Hefir
hitinn sennilega ekki orðið nógu hár. Bar
talsvert á myglu í heyinu.
Samanborið við amerísku tilraunirnar,
þá hefir bæði maiz-íblöndunin og mysu-
íblöndunin verið of lítil í íslenzku til-
raununum. Með því að blanda í meiri
maiz eða þykkja mysuna meira má senni-
lega gera betra vothey, en fengizt hefir
við þessar tilraunir.
Þess hefði mátt vænta, að auðveldara
mundi að verka töðugras (grös af grasa-
ættinn) í vothey, en fóðurgrös þau af
ertublómaættinni, sem notuð voru við am-
erísku tilraunirnar, vegna þess að þau
síðarnefndu eru jafnan miklu ríkari að
eggjahvítuefnum. Þessi munur á efna-
samsetningu er þó furðu lítill. Er hér
settur samanburður á meðalefnasam-
setningu á alfalfa, eins og hún er -gefin
upp í bókinni Feeds and Feeding eftir
Morrison, (146 sýnishorn), og meðalefna-
samsetningu á háartöðunni, sem notuð var
í íslenzku tilraunirnar (13 sýnishorn).
Alfalfa Háartaða
Þurrefni 25,4 % 25,0 %
Protein 4,6 — 4,17 —
Feiti 1,0 — 0,84 —
Tréni 7,0 — 5,93 —
Aska 2,4 — 3,35 —
Önnur efni 10,4 — 10,71 —
Eins og hér kemur í ljós, þá er háar-
taðan tiltölulega auðug að eggjahvítu-
efnum. í henni var þó enginn smári. Það
má gera ráð fyrir því, að erfitt reynist að
fá mikinn súr í töðu sem þessa, og ekki
veiti af sömu íblöndun og notuð var viö
verkunina á alfalfa í amerísku tilraun-
unum.
Sigurður Pétursson.
Landbúnaðarsýningin.
Landbúnaðarsýningin var opnuð í Reykjavík 28.
júní. Er hún opin almenningi til sýnis í 18 daga,
og hafa tugþúsundir manna þegar séð hana.
Opnunin fór fram tveim dögum siðar en gert
hafði verið ráð fyrir í upphafi, en sú töf stafaði
af verkbanni í Reykjavík, sem einnig olli víð-
tækum truflunum á fyrirkomulagi sýningarinn-
ar. Meðal annars kom fjöldi sýningarhluta aldrei
á sýningarstað. Ýmislegt það, er þangað átti að
koma, lá í skipum á höfninni og birgðaskemmum.
Afgreiðsluvandræði á benzíni ollu einnig nokkrum
truflunum á ferðum fólks. — Frásögn, varðandi
sýninguna, verður annars að bíða næsta blaðs,
þar eð þetta blað er í prentun meðan á sýningu
stendur.