Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2005
Fréttir DV
Hópflug
vesturídag
Flugmenn á suðvestur-
homi landsins hyggjast
reyna að fjölmenna til fsa-
fjarðar um eftirmiðdaginn í
dag. Otto Tynes flugmaður
er einn skipuleggjenda ævin-
týrisins. Hann segir að þetta
verði að fá að ráðast eftir að-
stæðum. Menn muni mæta
út á völl um hádegisbilið og
ráða ráðum sínum. Ef af
verði megi búast við fylking-
unni vestur um kaffileytið.
Spáin er norðaustan 5-10
m/s og skýað með köflum.
Barnaperri
gengurlaus
Barnaperrinn í Reykja-
nesbæ er enn ófundinn
þrátt fyrir mikla leit. Eng-
in ný tilvik hafa borist lög-
reglunni í Reykjanesbæ
um að perrinn hafi verið
að leita á böm, en skóla-
yfirvöld ög.foreldrar hafa
verið mjög á varðbergi
gagnvart manninum.
Fréttir herma að hann
keyri um á rauðum pallbfl
og lokki böm til sín með
nammi. Lögreglan segist
enn vinna að rannsókn
málsins og leitar enn að
perranum sem lætur nú
fara lítið fyrir sér.
Hennannaveiki
á íslandi?
Pétur H. Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokks.
„Hermannaveiki tengist ákveð-
inni tækni við kælingu húsa og
annars staðar þar sem vatn
stendurog má líkja við húsa-
sótt. Það er skrítið hversu lítið
hefur frést aftilfellum sem hafa
komið upp hér á landi, sem
virðast hlutfallslega miklu
stærri I sniðum en svipaðirat-
burðirsem fréttir berast af frá
útlöndum. Það vekur upp
spurningar hvort sé verið að
þegja yfir sjúkdómnum hér."
Hann segir / Hún segir
„Þetta er sjúkdómur sem hefur
verið við lýði nokkuð lengi og
erfítt virðist að koma í veg fyrir.
Hún kemur alltafupp öðru
hvoru og við þurfum að vera
með öflugar rannsóknir hér og
forvarnarstarfsemi. Þegar
svona kemur upp hlýtur það
að vekja athygli og umræðu og
þá þurfum við að spyrja okkur
hvort við erum að standa okk-
ur í þeirri rannsóknar og for-
varnar vinnu sem þarfað vera
tilstaðaren til þess að svo
verði þarfað efla landlæknis-
embættið og sóttvarnir."
Margrét Frfmannsdóttir,
þingmaöur Samfylkingarinnar.
Hermóður Héðinsson, brottrekinn stóriðjugreinir í álveri ísal í Straumsvík, segir
starfsmenn ekki fá sína veikindadaga og að slysalaust ár standist engan veginn.
Hermóði var sagt upp 1. apríl, þegar hann var í endurhæfingu eftir slys i álverinu.
Tveir aðrir fengu að fjúka með honum.
IIMSIISÍ W1 l'Ill
V- -
-- ■,
ij*Uíov&ni
Hermóði Héðinssyni
Var sagt upp störfum
þegar hann var I endur-
hæfingu.
Hrannar Pétursson
Upplýsingafulltrúinn
segir ásakanir
ósmekklega tilraun til
að vega að Isal.
„Mér og tveimur öðrum var sagt upp í gegnum síma 1. apríl.
Okkur var tjáð að við samræmdust ekki starfsmannastefnu fyrir-
tækisins og við fengum uppsagnarbréf sent í pósti. Annars var
engin ástæða gefin fyrir uppsögninni," segir Hermðður Héðins-
son, fyrrum starfsmaður álversins í Straumsvík.
Hermóður segist sjálfur ekki
hafa fengið aðvörun, eins og í
venjulegum fyrirtækjum, og segist
jafnframt hafa lent í þremur
óhöppum í álverinu eftir starf í sjö
ár. Hann vill ásamt öðrum meina
að illúðleg vinnubrögð séu við lýði í
starfsmannastefnu ísal og að starfs-
mönnum sé haldið þar í heljar-
greipum.
Vinnufélagar söfnuðu fyrir
meðferð
„Ég fór í áfengismeðferð á síð-
asta ári og þeir buðu mér sex daga
af 40. Ég neitaði því og starfsmenn á
vakt 5 og bekkur 7 í Stóriðjuskóla
álversins söfnuðu fyrir mig svo að
fjölskyldan gæti haft það af. Ég var
alveg launalaus," segir Hermóður
og segist ekki hafa viljað fórna
sumarfríinu í meðferð eins og hon-
um var boðið af forsvarsmönnum
ísal. „Hann fékk greidd laun meðan
hann var á Vogi í tíu daga,“ segir
Hrannar Pétursson, upplýsingafull-
trúi ísal. „Dóttir mín veiktist svo al-
varlega í september á síðasta ári.
Hún fékk rauða úlfa og kom upp al-
varleg nýrnabilun út af sjúkdómn-
um,“ segir Hermóður og kveðst
hafa látið yfirmenn sína vita af veik-
indum en fengið slæm viðbrögð frá
þeim, þrátt fyrir alvarleg veikindi í
fjölskyldu sinni.
Slysaskýrsla fölsuð
„Ég datt þegar ég fór út úr bað-
hreinsitæki og slasaði mig alvar-
lega. Slysið var skráð en skýrslan
hverfur svo. Ég fékk verk í bak,
mjöðm og hægri fót. Skýrsla var svo
gerð af sjálfum öryggisstjóranum
og ég var sagður hoppa niður og að
ég haíi jafnað mig. Það er ekki rétt.
Ég er enn frá vinnu," segir hann.
ísal setti sér það markmið að fækka
vinnuslysum á síðasta ári en athygli
vekur að einnig átti að fækka veik-
indadögum starfsfólks. „Annað
hvort eru menn veikir eða ekki.
Þetta er bara sýndarmennska hjá
þeim,“ segir Hermóður. „Þetta er
einungis ósmekkleg tilraun til þess
að gera lítið úr frábærum árangri
sem starfsfólk hefur náð í öryggis-
málum," segir Hrannar Pétursson
upplýsingarfulltrúi.
Uppsagnarbréf í endurhæf-
ingu
„Eftir að ég var lagður inn í
endurhæfingu út af bakinu í Stykk-
ishólmi hringir starfsmannastjóri í
mig og boðaði mig í létt störf. Þeir
trúðu ekki að ég væri veikur og boð-
uðu mig í skoðun hjá trúnaðar-
lækni ísal, þrátt fyrir að ég væri í
endurhæfingu hjá mínum lækni. Ég
neitaði því að koma, eftir ráð frá
lækninum mínum," segir Hermóð-
ur. „Viðkomandi naut sem starfs-
maður allra eðlilegra réttinda,
hvort sem þau vörðuðu langvar-
andi fjarvistir frá vinnu eða önnur
mál. Ásakanir um að illa sé farið
með starfsmenn eru fráleitar, enda
héldist okkur ekki á fólki ef sú væri
raunin," segir Hrannar.
Talinn hættulegur
Jafnframt segir Hermóður að
ekki væri hægt að fá slysabætur,
fyrirtækið vildi það ekki. „Vottorð-
in mín hafa svo verið dregin í efa af
yfirmönnum." „Það er búið að
hengja A4-mynd af okkur í hliðinu
og okkur er meinaður aðgangur að
svæðinu. Það eina sem við höfum
til saka unnið var að vinna hjá ísal,“
segir Hermóður. „Þeir sem eiga
ekki erindi inn á svæðið fá ekki að
fara þangað. Hins vegar er öryggis-
gæslu tilkynnt með tölvupósti ef
viðkomandi er af einhverjum
ástæðum talinn hættulegur," segir
Hrannar.
gudmundur@dv.is
Poppstjarnan mætti ekki fyrir dóm
Sterkur orðrómur um breytingar
Einar Ágúst er á
landsbyggðinni
Karl Georg Sigurbjörnsson, lög-
maður popparans Einars Ágústs
Víðissonar, segir það af og frá
að Einar Ágúst sé týndur en
eins og greint var ffá í DV á
fimmtudag hefur lögreglan
gefið út handtökuskipan í
hendur honum þar sem
hann mætti ekki við aðal-
meðferð Dettifossmálsins.
„Ég talaði við Einar Ágúst
í gær og hann tjáði mér
að hann væri úti á
landi,“ sagði Karl
Georg í samtali
við DV í gær. Karl
Georg sagði að
lögreglan hefði
ekki náð að af-
henda Einari
Ágústi stefnu og því hefði hún
gripið til þess ráðs að gefa út
handtökuskipun á hann.
getur verið erfitt að
ná sambandi við Einar
Ágúst. Hann er nýbúinn
að skipta um símanúmer
og er mikið á ferðinni. Mér
finnst þetta heldur fljót-
færnislegt af lögreglunni,"
sagði Karl Georg. Að hans
sögn er Einar Ágúst vænt-
anlegur í bæinn á
mánudag.
Vilhjálmur segist ekki
verða útvarpsstjóri
„Þetta er auðvitað algjör
fjarstæða," segir Viljálmur
Þ. Vilhjálmsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, þegar
hann er spurður að því
hvort hann muni taka við
stöðu útvarpsstjóra. Sögur
þess efnis hafa gengið fjöll-
um hærra síðustu vikur en
ætlunin er sögð vera að
rýma til fyrir Gísla Marteini
Baldurssyni í
og hann muni svo leiða
lista flokksins í næstu kosn-
ingum. Markús Örn Ant-
onsson, núverandi útvarps-
stjóri, átti samkvæmt sögunni að fá
sendiherrastöðu.
„Ég hef margoft lýst því yfir að ég
ætla aftur í framboð í borginni og
, Vilhjálmur Þ. Vil
borgarstjóm hiálJmsson ,
hjálmsson Ætlarað
leiða Sjálfstæðis-
flokkinn til sigurs I
borginni.
vinna að því að Sjálsfstæðis-
flokkurinn komist til valda í
Reykjavík á nýjan leik,“ segir
Vilhjálmur og bætir við að
hann hafi verið orðaður við
alls kyns embætti í gegnum
tíðina.
„Þetta er einfaldlega fjar-
stæðukenndur spuni sem
gárungarnir em afitaf að búa
til um mig og fleiri og ein-
hver embætti. Af hverju ekki
bara forseti Frakklands, það
er alveg eins hægt að segja
það," segir Viljhálmur og
hlær.
Gísh Marteinn Baldursson tók
undir með VUhjálmi og sagði ekkert
hæft í þessari sögu, hún væri í raun
fáránleg.