Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005 Fréttir DV „Viö þurfum aö keyra fram hjá húsinu hans á hverjum degi,“ segir Jón Davíð Ragnarsson um banamann föður síns. „Þá rifjast þetta allt upp.4< Faðir Jóns Davíös varð fyrir hnefahöggi á sveitakránni Ásláki í desember síöastliðnum. Hnefahöggið varð honum að bana. Sá sem greiddi honum banahöggið, Loftur Jens Magnússon, hefur enn ekki greitt skuld sína við fjöl- skyldu Jóns Davíðs, né við þjóðfélagið. Ekki verður réttað yfir honum fyrr enn í fyrsta lagi í september, eöa tæpu ári eftir harmleikinn 1 Mosfellsbæ. Drap föður minn I I „Við viljum aaþessi drengur borgi fyrirþað sem hann gerði. I I Loftur Jens Magnús- I son Varð manni að bana 11 I desember; mál hans verð- 1 ur ekki tekið fyrir fyrr en í I september. I Ragnar Björnsson ■ Fékk þungt högg í höf- 1 uðið og komst alderi ] aftur til meðvitundar. I Áslákur Árásin átti sér stað I! andyrinu.Árásarmaðurinn \býrskammtfrá. Hið örlagaríka kvöld, þegar Ragnar Björnsson lést, hófst á jólahlaðborði hjá Ormsson á Hótel Valhöll á Þingvöllum fyrr um kvöldið. Hann var sölumað- ur fyrir Becks bjór sem Ormsson hefur umboð fyrir og og var vel liðinn. Eft- ir jólahlaðborðið ákváðu Ragnar og eiginkona hans Ásta að bregða sér á sveitakrána Áslák. I f faðmi fjölskyldunar | Ragnar var elskaður fjöl- I skyldufaðir. Hjónin voru nýkomin úr ferðalagi til Flórída. Það hafði verið eins konar brúð- kaupsferð þeirra því þau höfðu ekld kom- ist á sínum tíma. Þegar eitthvað var liðið á kvöldið brotnaði glas í anddyrinu þar sem Ragnar var staddur. Hann hóf að aðstoða stúlku sem starfaði sem dyravörður við að hreinsa upp glerbrotin og passaði upp á að enginn stigi á glerbrot og slasaði sig. Maður sem átti leið hjá lenti skyndilega í einhverju orðaskaki við Ragnar sem end- aði með því að Ragnari var greitt þungt hnefahögg í höfuðið. Komst aldrei til meðvitundar eftir höggið Höggið kom á kjálka Ragnars sem stóð að sögn eftir en féll í gólfið stuttu síðar. Fljótlega gerðu viðstaddir sér grein fyrir því að ekki var allt með felldu og hóf hjúkrunarkona, sem var gestur skemmti- staðarins, lífgunartilraunir meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Sjúkraflutningamenn héldu áfram lífg- „Ég verð aldrei samur, það mundi enginn vera. Það líð- ur ekki sá dagur að ég hugsi ekki um hvað ég gerði" unartilraunum á staðnum og gáfu Ragnari meðal annars rafstuð og fannst púls í kjöl- farið. Ragnar komst ekki aftur til meðvitund- ar eftir höggið og lést af áverkum sínum um klukkan þrjú þessa nótt. Ragnari er lýst sem miklum höfðingja, kátum og skemmtilegum og alltaf boðnum og búnum að aðstoða fólk. Hann starfaði ötullega í björgunarsveitinni Kyndli í Mosfellssveit og Slysavarnarfélag- inu Landsbjörgu, hann var mikill hesta- maður og mikið fyrir fjalla- og veiðiferðir og útivist. Maðurinn sem greiddi Ragnari bana- höggið heitir Loftur Jens Magnússon, 25 ára Mosfellsbæingur. Skömmu eftir reyndi hann að flýja af vettvangi og lenti í kjölfar- ið í átökum við son Ragnars. Loftur hafði verið að skemmta sér ásamt vinum sínum á grímuballi. Hann var klæddur sem jóla- sveinn, í rauðum búningi og með skegg. Biðin eftir réttlæti er löng „Mér var ráðlagt að biðjast ekki afsök- unar,“ segir Loftur aðspurður, hálfu ári síðar. Hann rekur nú ásamt kærustu sinni Bónusvideo í Árbæ. Hann býr enn í Mos- fellsbæ, spölkorn frá sveitakránni sem breytti lífi hans. „Ég kvíði réttarhöldunum. Þá þarf ég að rifja þetta allt upp aftur. Það verður ekki auðvelt," segir Loftur niðurlútur. Hann er hins vegar ekki sá eini sem kvíðir haustinu og réttarhöldunum sem fylgja því. Jón Davíð, sonur Ragnars, segir það óhæfu hversu lengi aðstandendur í svona málum þurfi að bfða eftir réttíæti. „Við viljum að þessi drengur borgi fyrir það sem hann gerði," segir Jón Davíð. „Það er hrikalegt hvað þetta tekur langan tíma. Mér skilst að þetta verði ekki tekið fyrir fyrr en í september. Fjölskyldan þarf því að ganga með þetta í maganum þangað til. Við erum náttúrulega öll vitni og verð- um því að rifja upp þennan harmleik, ganga í gegnum þetta allt aftur." Jón Dav- íð segir það einnig hafa komið sér á óvart hversu stutt Loftur sat í gæsluvarhaldi en hann var leystur úr haldi aðeins fáeinum dögum eftir hinn hræðilega atburð. DV ræddi einnig við Jón Davíð skömmu eftir að faðir hans lét lífið. Þá hafði hann þetta að segjja við þjóðina: „Ég legg til að fólk stingi íukunum í vasann og telji upp á tíu áður en það reiðir til höggs við aðra manneskju. Það þarf ekki nema eitt högg til að eyðileggja líf, ekki bara einnar fjölskyldu, heldur tveggja, eins og í þessu til- viki." Keyrir framhjá heimili morðingj- ans daglega „Þetta breytir manni," segir Loftur og tekur undir varnaðarorð Jóns Davíðs. „Ég verð aldrei samur, það mundi enginn vera. Það h'ður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um hvað ég gerði." Loftur hefur aldrei litíð fjöl- skyldu mannsins sem hann banaði augum. Segist raunar ekki þekkja þau í sjón. Jón Davíð Ragnarsson þekkir hins vegar morð- ingja föður síns í sjón og segist ekki vita hvað hann mundi gera ef hann mundi hitta hann. „Hann hefur ekki beðið okkur afsök- unar eða haft nokkuð samband við okkur, ég veit ekki einu sinni hvað ég mundi gera ef hann mundi hafa samband," segir Jón Davíð. Hann býr við þá raun að þurfa að keyra fram hjá heimili Lofts til að komast til og frá vinnu. „Þá rifjast þetta allt upp." andri@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.