Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005 Helgarblað DV DV Helgarblað LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005 33 Ýmsir kostir við að verða ung móðir „Hann er svo skynsamur svo ég hef ekki haft neinar áhyggjur," segir Sólveig Hallsdóttir um Heið- ar son sinn. Sólveig varð ólétt að Heiðari þegar hún var 14 ára. ( dag er Heiðar að verða tvítugur og býr hjá tengdaforeldrum sín- um. Sólveig segist engar áhyggjur hafa haft af að hann myndi end- urtaka leikinn en óskar þó börn- unum sínum ekki að verða for- eldrar jafn ung og hún var. 21 árs með þrjú börn Sólveig og eiginmaður hennar, Brynjar Zóphoníasson, hafa verið saman síðan þau voru unglingar. Þegar Heiðar fæddist var Brynjar 17 ára og litla fjölskyldan bjó fýrstu tvö árin heima hjá foreldr- um Sólveigar. Nú eru þau gift og komin með fjögur börn. Heiðar er náttúrulega elstur,s(ðan kemur Börkur,svo An(ta og loksTanja Ósk.„Ég var 19 ára þegarég eign- aðist annað barnið mitt," segir Sólveig og bætir við að það hafi hvorki verið planað né ekki. Það hafi einfaldlega gerst. Hún ségist hafa fundið mun á meðgöngun- um enda hafi hún verið meira til- búin (síðara skiptið.„Ef maður hefurfarið (gegnum þetta einu sinni þá veit maður að hverju maður gengur. Þriðja bamið okk- ar fæddist svo þegar ég var 21 árs og svo kom eitt í viðbót þegar ég var 24 ára. Nú er ég samt hætt," segir hún brosandi. „Ég er ung og er hætt að eiga börn svo ég hef það ágætt." Amma 33 ára Sólveig segist hafa fengið mikla hjálp frá foreldrum s(num.„Þetta var náttúrulega sjokk til að byrja með en ég fékk góðan stuðning. Eg reyndi að halda þessu leyndu til að byrja með en það tókst náttúrulega ekki til lengdar. Þeir sem stóðu okkur næst studdu okkur svo ég fann ekki fýrir for- dómum annarra þótt ég hafi kannski vitaö af þeim. Mamma var ekki nema 33 ára þegar hún var orðin amma og það hefur ábyggilega verið erfitt fýrir hana." Fóstureyðing kom ekki til greina Sólveig segir að það hafi aldrei komið til greina af hennar hálfu að fara (fóstureyðingu. Hún segir að þeim möguleika hafi verið velt upp en að enginn hafi þrýst á hana.„Ég hugsa að ég hafi verið þroskuð og sjálfstæð og ég hafði enga löngun til að fara (fóstur- eyðingu og er sátt við það (dag. í rauninni fann ég ekki mikið fýrir því að vera orðin mamma á þess- um aldri, ekki eins og fólk heldur. Foreldrahlutverkið lærðist smám saman hjá okkur og við áttum góða að. Það lærist allt ef maður ætlar sér það. Ég vona samt að dætur mínar verði skynsamari en ég þvl þótt það séu ýmsir kostir í þessu þá vona ég að m(n börn mennti sig og geri það sem þau langar til áður en þau fara að hrúga niður börnum," segir Sól- veig en kostirnir sem hún talar um er að nú geti hún farið að gera það sem hana langartil.„Ég er ung og er hætt að eiga börn svo ég hef það ágætt," segir hún brosandi. Systurnar Rakel Rós og Katrín Ósk Geirsdætur voru 16 og 15 ára þegar þær voru orðnar mæður. Systurnar segja fóstureyð- ingu aldrei hafa komið til greina og eru alsælar með börnin sín í dag. Rakel á þjú börn og Katrín á von á sínu öðru. Ungar systur með ung börn „Ég var búin að leggja grunn- inn svo þetta var ekki eins mikið sjokk fyrir fjökskylduna þegar í ljós kom að litla systir var ófrfsk," segir Rakel Rós Geirsdóttir en hún og systir hennar Katrín Ósk eign- uðust báðar sín börn mjög ungar. Rakel Rós eignaðist sitt bam þegar hún var 16 ára og svo tveimur árum seinna var litla systir hennar líka orðin mamma, aðeins 15 ára. „Þegar Katrín varð ófrísk höfðu allir trú á henni því ég hafði sann- að að þetta væri hægt," segir Rakel sem á þrjú börn. Sigurbjörn Geir fæddist árið 1998, Saga Ýr 2001 og Sebastían Dagur ári seinna. Rakel Rós er enn með sama manninum sem hún eignaðist fyrsta barnið með en hann heitir Benedikt Sig- urbjörnsson. Þau bjuggu fyrsta árið heima hjá foreldrum hennar en komu sér svo fyrir í eigin íbúð. Á von á öðru barni Katrín Ósk eignaðist soninn Bjarna Þór árið 2000 þegar hún var 15 ára og hún segir ekki hafa verið erfitt að hafa orðið móðir svona ung. „Þetta var ekkert svo mikið mál enda var svo mikið af fólki sem hjálpaði manni," segir Katrín Ósk sem á von á sfnu öðm barni í nóv- ember. Móðir systranna var einnig ung þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn, sem var Rakel, eða 18 ára. „Þegar Katrín varð ófrísk höfðu allir trú á henni því ég hafði sannað að þetta væri hægt." „Ég var í 10. bekk þegar Bjarni Þór fæddist og ég held að skólafélög- unum mínum hafi fundist þetta allt voðalega skrítið þótt þeir hafi tekið þessu vel og ég fann aldrei fyrir fordómum. Ég hætti í skólan- um til að hugsa um hann en mætti svo til að taka samræmdu prófin auk þess sem ég tók eina önn í Verkmenntaskólanum áAkureyri," segir Katrín en systumar búa báðar á Akureyri. Fóstureyðing kom ekki tii greina Hún segir það aldrei hafa kom- ið til greina að fara f fóstureyðingu enda hafi hún alltaf verið á móti slíku. Hún hafði líka fylgst með eldri systur sinni og vissi því út í hvað hún væri að fara. Rakel tekur undir orð systur sinnar og segir að enginn hafi reynt að þrýsta á hana. „Það kom aldrei til greina hjá mér og ekki einu sinni þegar ég varð ófrísk í þriðja skiptið með 4 mánaða barn. Ég kom mér í þetta sjálf og hefði getað vitað að þetta myndi gerast. Bæði mamma og tengdamamma báðu mig um að íhuga mjög alvarlega hvað ég ætíaði að gera, sögðu að ég mætti ekki taka neina ákvörðun í fljót- færni og þær voru báðar mjög glaðar þegar ég sagðist ætla að eiga barnið svo ég hef aldrei feng- ið neitt annað en stuðning frá þeim. í rauninni fann ég aldrei fyrir neinum fordómum, mestu breytingarnar voru að sumir vin- anna létu sig hverfa en alvöru vin- irnir studdu mann." Rekur eigið fyrirtæki í dag rekur Katrín Ósk fyrirtæk- ið Tikk takk ásamt vinkonu sinni og eldri systir hennar starfar hjá þeim. „Við vorum að vinna á þess- um matsölustað og þegar eigand- inn ákvað að selja ákváðum við að kaupa," segir Katrín sem er aðeins 21 árs í dag en hefur þegar reynt ýmislegt. Hún og barnsfaðir henn- ar eru hætt saman en hann heldur samt góðu sambandi við soninn. „Ég á annan kærasta í dag sem er bamsfaðir ófædda barnsins. Pabbi Bjarna Þórs er samt duglegur að hitta hann. Hann tekur hann aðra hverja helgi og svo einu sinni í viku." Aðspurð hve mörg börn hún ætli sér að eignast segir hún að þau kærastinn hafi verið að spá í að eignast fjögur. „Maður er ekkert hættur," segir hún hlæjandi. Besta amma í heimi Rakel Rós segir flesta halda að þær systur séu eldri en þær eru og hún segir einnig að þegar mamma þeirra passi fyrir þær telji margir að hún sé ekki amma barnanna heldur mamma þeirra. „Mamma er besta amma í heimi og ef ég bið hana ekki reglulega um að passa þá heimtar hún að ég komi með börnin, sem er stór plús. Ég held að hún hafi engar áhyggjur af því haft að verða svona ung amma, hún hafði meiri áhyggjur af því að þetta yrði erfitt fyrir okkur," segi stefnir á að skella sér á listnámsb- raut í framtíðinni. „Ég ætlaði alltaf að byrja í skóla um leið og elsti strákurinn minn byrjaði og ég stóð við það og fór í fjarnám og vonandi held ég bara áfram að læra." indiana@dv.is „| 2 . ,,nnu aolueig með Almar Tristan og Rakel með Diljá. Stelpurnar eru ánægðar með Iffið og eru allar sammála um aðþærheföu ekki viljaö eignast bornrn seinna. DV-mynd Páll Bergmann „Það kom ekki til greina að fara í fóstureyðingu enda myndi ég aldrei geraþað." mömmuklubb Hins hussins „Lífið er náttúrulega gjörbreytt en í leiðinni miklu skemmtilegra," segja þær Rakel Sófusdóttir, Sólveig K. Eng- ilbertsdóttir og Ingunn Þóra Einars- dóttir en vinkonumar eiga það sam- eiginlegt að hafa allar átt böm ungar að aldri. Rakel eignaðist dótturina Diljá þegar hún var 22 ára, Sólveig eignaðist soninn Almar Tristan þegar hún var 19 ára og Ingunn Þóra eign- aðist Tinnu Mjöll þegar hún var 19 ára gömul. Stelpumar kynntust í gegnum Ungt fólk með ungana sína sem er starf á vegum Hins hússins og vilja benda öðrum ungum foreldrum á þetta starf. „Við mælum hiklaust með því að ungar mæður og ungir feður líka mæti með bömin sín á opið hús á fimmtudögum því það skiptir ótrú- lega miklu máli að umgangast krakka sem em að ganga í gegnum það sama," segir Ingunn sem er að vinna en stefnir á nám í haust. Ing- unn er elst í stórum systidnahópi en pabbi hennar eignaðist dóttur þremur mánuðum áður en Tinna Mjöll fæddist. „Við höfum hlegið mikið að þessu enda skrítið að vera orðinn afi um leið og hann eignað- ist bam," segir Ingunn hlæjandi og bætir við að litía systir hennar og Tinna Mjöll eigi eflaust eftir að verða góðar vinkonur. Ingunn og kærastinn hennar búa í eigin íbúð og sömu sögu er að segja um Sól- veigu og hennar bamsföður. Rakel er hins vegar einstæð en bamsfaðir hennar hittir Diljá reglulega. Stelp- umar em sammála um að það sé ekki svo erfitt að vera ung móðir á íslandi í dag og þær finna ekki fyrir miklum fordómum í sinn garð. „Við erum náttúrulega engin böm og það hafa flestir sýnt manni stuðn- ing," segja þær. Fóstureyðing kom ekki til greina „Það kom ekki til greina að fara í fóstureyðingu enda myndi ég aldrei gera það," segir Sólveig. Rakel segir að hún hafi lent í smá þrýstingi en að hún hafi staðið föst á sínu og hún sér alls ekkert eftir því í dag. Hún faldi sína meðgöngu til að byrja með enda vissi hún að for- eldrar hennar höfðu hugsað sér að hún myndi feta aðra slóð í lífinu. „Þó móðurhlutverkið sé æðislegt þá er svo margt sem mig langar að gera og ég verð bara að passa mig á að leyfa mér eitthvað," segir hún og hinar taka undir og segja að þær djammi ef þær langi til þess. Þá þurfi þær einfaldlega að redda bamapössun. „Þörfin til að fara út á lífið er samt svo miklu minni. Ég hélt að ég myndi sakna þess mun meira," segir Ingunn. Stelpumar em í svokölluðum lokuðum hópi í Hinu húsinu. Þær em átta stelpur í heildina sem hitt- ast reglulega með bömin sín og spjalla. í haust ætía þær á ráðstefnu fyrir ungar mæður sem haldin verð- ur í Þýskalandi. „Við erum einmitt að leita að styrktaraðilum og mun- um meðal annars halda kökubasar í Kringlunni á þriðjudaginn. Einnig ætíum við að halda styrktartónleika í Hinu húsinu í júlí til að fjármagna ferðina og hljómsveitin Á móti sól hefur þegar staðfest að hún ætli að takaþátt." indiana&dv.is Ungar mæður á íslandi 15ÁRA ÓLÉTT Helga Kristjánsdóttir var 15 ára þegar hún varð ólétt að sfnu fyrsta barni. f samtali við DV 5. febrúar 2005 sagðist Helga, sem er 22 ára I dag, hafa fljót- lega hætt með barnsföðurnum og búið hjá foreldrum sfnum til að byrja með. „Við barnsfaðir minn hættum fljótlega saman og ég bjó hjá mömmu og pabba til að byrja með. Þetta gekk mjög vel og strákurinn var vær og góður. Seinna kom f Ijós að hann er ofvirkur og með athyglisbrest," sagði Helga f vlðtali við DV. Þegar hún hafi orðið 18 ára var hún komln f nýtt samband og varð fljótlega aftur ófrfsk. (dag býr hún ein með börnunum og stefnir á nám f snyrtifræði. Strákurinn henntar byrjar f skóla í haust en litla stelpan hennar er 4ára. 18ÁRA EINSTÆÐ MEÐ VEIKT BARN (ris Jóna Gunnarsdóttir eignaðist sinn frumburð á 17 ára afmælinu sfnu. (við- tali við DV 5. febrúar 2005 sagði fris Jóna að hlutirnlr hefðu gengið vel tfl að byrja með en sfðan hefði farið að halia undan fæti. Hún hafi gengið á miili lækna og mætt þar miklum for- dómum þar sem hún þótti ung. Sonur- inn var sfðar greindur með „Williams syndrome" og (ris og foreldrar hennar rifu sig upp og fluttu f borglna að norð- an. (dag er (ris Jóna gift og hefur eign- ast tvö önnur börn. í viðtalinu sagðist fris Jóna hafa hætt með barnsföður sfn- um þegar litli sonurinn var hálfs árs, hún hefði þvf verið einstæð 18 ára móðir með veikt barn. „Foreldrar mfnir sem hafa sýnt mér ómetanlegan stuðn- ing ákváðu þá að flytja suður til að hjálpa mér. Ég er þeim svo ótrúlega þakklát þvf án þeirra hefðf mér aldrei tekist þetta," sagði (ris. NÁNASTNEYDDf FÓSTUREYÐINGU Una Nikulásdóttir varð ófrfsk 16 ára og sagöist f viðtali vlð DV þann 5. febrúar sl. ekki hafa notið meðgöngunnar af sökum æsku. Hún hefði gengið f vfðum fötum svo það sælst sfður að hún væri með kúlu. Hún bar heilbrigðlskerfinu ekki góða söguna og sagðist þar nán- ast hafa verið neydd til að fara f fóstur- eyðingu. „Ég fór tfl ráðgjafa á sjúkra- húslnu þegar ég vissi að ég var ófrfsk og hann nánast sagði mér að fara f fóstureyðingu. Sagði að ég væri svo ung að ég myndi aldrei ráða vlð þetta. Ég gekk út af skrifstofunni, staðráðin f þvf að ganga með þetta barn," sagði Una sem er að vonum ánægð með ákvörðunina enda gæti hún ekki fmyndað sér lífið ef hún væri ekki með dóttur sfna hjá sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.