Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005 Helgarblað DV Kíkt 'S'flUf't{/>({(/(/(t/Hf Hyljari frá Dior „Þessi Skin flash-penni fráj Dior hylur mjög vel. Mamma t gaf mér hann og ég held aðj hún hafi keypt hann í flug- vélinni á leiðinni heim frá k útlöndum. Þetta er æðis- leg græja." Bronspúður frá MAC „Ég nota þetta púður með bursta. Þetta er rosalegai fi'nt en ég set það meira á| mig þegar ég er að fara að ^ syngja en hversdags." No Name Brush on brown „Þetta er mjög fínt til að skerpa augabrúnirnar og sér í lagi þegar er að fara upp á að syngja. Þegar ég þurrkubletti set ég á mig ólívuolíu því svínvirkar sama blettirnir eru.“ Maskari frá Loreal „Ég var í New York á dögunum og fann þennan maskara sem heitir Panoramic curl. Hann krull- ar upp augnhárin og gefur þeim sveigju. Ég mæli með þessum, hann er mjög fínn. Ég mála mig meira núna en ég gerði þar sem ég er að syngja eitthvað í hverri viku því maður verður að vera snyrtilegur. Svo finnst mér voðalega gott að vera heima ómáluð en ég reyni alltaf að hafa mig aðeins tfl." Varalitablýantur frá Body Shop „Ég hef notað þennan varalita- blýant í mörg ár. Hann er orðinn svo lítill að ég sé ekki hvað liturinn heitir en ég hef notað þennan síðan hann kom fyrst til ís- lands. Þetta er mjög náttúruleg- ur litur sem hægt er að nota undir hvaða varalit sem er til að skerpa varirnar." Kristjana Stefánsdóttir söngkona er að fara að mixa nýja plötu sem kemur út um mánaðamótin ágúst/september. Hún er nýkomin frá New York þar sem platan var tekin upp f samvinnu við Agnar Má Magnússon og tvo erlenda lista- menn. Á plötunni eru gömul '80s lög og popplög í djassútsetningum, allt frá Police, Yes og Duran Duran. Kristjana er einnig á leiðinni til Japans að syngja á Heimssýningunni auk þess sem gamla platan hennar mun koma þar út í júlf. í sumar verður hún löggiltur listamaður á listamannalaunum svo það er nóg að gera hjá henni. „Timabilið framundan er mjög skemmtilegt og skapandi og það er nóg að gera." Matilda Gregersdotter rekur fyrirtækið Leiðtogi ehf. þar sem hún þjálfar meðal annars stjórnendur fyrirtækja sem vilja ná auknum árangri í starfi sínu. Matilda segir þessa tegund leið- togaþjálfunar ekki hafa þekkst hér á landi fyrir um ári en vera afar vinsæla í Evrópu og Bandaríkjunum. Vellnan starlsmanna skipOr fyrirtækiö mali Matilda Gregersdotter Fyrirtækið Leiðtogi hefur verið starfrækt sfðan í mars 2004 en Matilda flutti hingað frá Svfþjóð árið 1998. „Starf okkar snýst um að þjálfa leiðtoga og við sérhæfum okkur í „coaching" sem er nýtt hér á landi," segir Matilda Gregersdotter sem rekur fyrirtækið Leiðtogi ehf. ásamt Berg- steini R. ísleifssyni. Fyrirtækið hefur verið starfrækt síðan í mars 2004 en Matilda flutti hingað frá Svíþjóð árið 1998. Hún hefur ýmsa menntun tengda leiðtogaþjálfun sem hún öðl- aðist bæði hér á landi og í Svíþjóð. Rekstrarumhverfið ekki allt „Stjómendur gera sér í vaxandi mæli grein fyrir því að sambönd og samskipti innan fyrirtækisins eru mjög verðmæt, þetta snýst ekki bara um rekstrarumhverfið heldur einkalífið líka þar sem manneskjan er heil,“ segir Matilda og bætir við að vellíðan í starfi skiptir miklu máli. Mathilda og Bergsteinn bjóða upp á leiðtogaþjálfun fyrir stjórn- endur fyrirtækja, framkvæmda- stjóra og einstaklinga sem vilja ná auknum árangri í starfi. „Það eru mismunandi ástæður fyrir því að fólk kemur í coaching. Sumir vilja búa til framtíðarsýn á meðan aðrir þurfa að bæta sig eða annan sem stjórnanda svo fyrirtækið geti feng- ið sem mest út úr viðkomandi. Árangursríkasta leiðin til að taka á vandamálum Þessi hugsun var ekki til hér á landi fyrir rétt um ári en starfsgreinin fer sívaxandi í Evrópu og Bandaríkj- unum og er að mfnu mati árangursrí- kasta leiðin til að taka á vandamál- um. Með coaching er hægt að snúa við viðhorfum og hegðun á stuttum tíma.“ Hægt er að lesa meira um leið- togaþjálfunina á leidtogi.is og ná sambandi við Matildi í gegnum tölvupóstinn matilda@leidtogi.is. indiana@dv.is Valentína Björnsdóttir ætlaöi sér alltaf aö veröa eigin herra Byrjuðum smátt enhug „Ég hafði alltaf haft áhuga á eig- in atvinnurekstri og það var aldrei spurning hvort heldur hvenær," segir Valentína Björnsdóttir sem rekur fyrirtækið Móðir náttúra ásamt eiginmanni sínum. Valentína segir hugmyndina hafa kviknað þegar hún vann við að elda á leik- skóla. „Ég var alltaf með augun opin fyrir skemmtilegum viðskiptatæki- færum og á meðan ég hrærði í súp- unni handa krökkunum mótaði ég þessa hugmynd," segir Valentína en fyrirtækið býður upp á hollan og góðan mat. „Mér fannst mjög mikið framboð af tilbúnum matvælum en alls ekki af hollustuvörum og þarna fannst mér tækifærið liggja. Við fór- um strax að vinna að hugmyndinni og bauðst fljótlega gott húsnæði svo það var bara að hrökkva eða stökkva." Valentína og eiginmaður henn- ar, Karl Eiríksson, eru með 11 manns í vinnu og selja í margar af stærstu matvöruverslunum lands- ins. „Við byrjuðum smátt en hugs- uðum stórt og erum alveg á því að það sé komið út fyrir að bara þeir sem aðhyllast grænmetisfæði borði réttina okkar. Þeir eru frekar orðnir viðbót við annað." Valentína Björnsdóttir „Við byrjuðum smátten hugsuðum stórt og við erum atveg áþv/aðþaðsé
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.