Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005
Helgarblað DV
Þótt ekki hafi allt gengið að óskum í
Eurovision í ár hefur Selma Björns-
dóttir nóg fyrir stafni. Atriði hennar
Úkraínu vakti athygli víða og nú er
hún á leið til Svíþjóðar, Noregs og
Þýskalands til að flytja lagið. Þá fer
hún til Kína ásamt Birgittu Haukdal
og Jónsa síðar í sumar. Þess á milli
ætlar hún með fjölskyldunni í frí til
Spánar og ferðast um landið á nýja
jeppanum sínum.
Selma með Wíg Wam Selma
sést hér í Úkraínu í síöasta mán-
muöi ásamt söngvara Wig Wam
sem tók þátt fyrir hönd Noregs
og hefur notiö mikilli vmsælda
um alla Evrópu í kiölfariö.
' i ; % Selma í sólskinsskapi
’ Á leiðtil Svlþjóðar, Noregs,
n- . Þýskalands og Kína til að
syngja.Síðanáaðslappa
S'v.. ' afífaðmi fjölskyldunnar
uppi á hálendi og f hlýj-
Nv unniáSpáni.
„Þetta hefur náttúrlega verið
mikil törn upp á síðkastið en það
verður samt nóg að gera í sumar
líka,“ segir dansarinn og söng- og
leikkonan Selma Björnsdóttir. Hún
kom nýverið heim eftir þátttöku í
Eurovision-keppninni margfrægu
þar sem ekki gekk alveg sem skyldi.
Þrátt fyrir það gaf keppnin Selmu
ýmislegt og er þegar búið að bóka
hana á nokkrum stöðum erlendis í
sumar.
Á faraldsfæti í allt sumar
„Ég fer til Noregs núna í júní þar
sem ég ætla að syngja Eurovision-
lögin og kannsld eitthvað fleira.
Þetta er á vegum gay pride-hátíðar-
innar en þeir settu sig í samband
við mig og vildu fá mig til að syngja
þar. Það verður eflaust mjög gaman
enda er þetta 10 þúsund manna
viðburður sem ég mun syngja á,"
segir Selma en eins og þeir sem til
þekkja vita nýtur Eurovision-
keppnin af einhverjum ástæðum
meiri hylli meðal samkynhneigðra
en gagnkynhneigðra. Selmu verður
þess vegna væntanlega tekið eins
og hverri annarri alþjóðlegri stór-
stjörnu þegar hún mun troða upp á
Hinsegin dögum frænda okkar
Norðmanna.
„Svo fer Ávaxtakarfan til Kína á
barnaleikritasýningu sem er ein sú
stærsta sinnar tegundar í heimin-
um. Það er náttúrlega mikill heiður
og frábært tækifæri fyrir okkur að
heimsækja landið. Kína er land
sem fæstir fá að sjá um ævina og
þess vegna er bara frábært að kom-
ast þangað f tengslum við vinnuna,
annars hefði maður kannski aldrei
farið," segir Selma og staðfestir að
allir sem þátt taka í sýningunni
hérna heima fari með til Kína. Þess
vegna verða margar af helstu stór-
stjömum íslands fjarri góðu gamni
um miðjan júlímánuð því auk
Selmu taka Birgitta Haukdal og
Jón Jósep Snæbjömsson, betur
þekktur sem Jónsi í í svörtum
fötum, þátt í uppfærslu barna-
söngleiksins.
Syngur fyrir 20 þúsund
Svía
„Við sýnum leikritið
fjórum sinnum en verð-
um þarna í Sjanghæ í
eina viku í það heila,"
segir Selma en spurð að
því hvort hún, Jónsi og
Birgitta ætli sér að setja
saman eitthvert Euro-
vision-prógramm þarna
úti segist hún ekki búast
við því.
„Ég efast um að það sé
einhver gmndvöllur fyrir
því þarna úti. Þeir hafa ör-
ugglega ekki hugmynd um
hvað þetta er og ég held að
við séum ekki fólkið til þess
að breyta því,“ segir hún og
vonast til að geta skoðað sig |j
eitthvað um í Kína á meðan á
dvölinni þar stendur.
„Svo var fólk að hringja í
mig frá Svíþjóð og ég fer
þangað seinna í sumar til að
syngja á stórri Eurovision-há-
tíð sem er haldin þar á hverju
ári. Þetta er haldið á risaleik-
vangi með 20 þúsund
áhorfendum þannig að ég
er nokkuð spennt fyrir
því. Þarna koma fram
gamlir og nýir sænskir
Eurovision-söngvarar
auk þess sem þeir
bjóða oft sigurvegur-
um síðustu ára að
mæta líka. Svo
sögðu þeir mér að
þeir reyndu alltaf að
fá nokkra sem hefðu
verið í uppáhaldi hjá
Eurovision-stjörnur síöustu ára Eru allar á
leið til Kína með Ávaxtakörfunni. Selma dregur
þó íefa að Eurovision-lögin verði flutt fyrir Kín-
verjana að þessu sinni.
„Þetta er haldið a rísa-
leikvangi með 20 þús-
und áhorfendum
þannig að ég er nokk-
uð spennt fyrir því."
Svíunum það árið til að troða upp
og sögðu að ísland hefði án vafa
verið í þeim hópi þetta árið. Lagið
hefur verið spilað mikið þarna úti
og fólki virðist líka vel við það,"
segir Selma og viðurkennir að það
sé vissulega gaman að finna
svona stuðning þótt ekld hafl
gengið sem skildi í sjálfri
Eurovision-keppninni þetta
árið.
Frí á fjallabílnum
„Annars er stefnan líka
að fara svolítið út á land í
sumar og reyna að skoða
eitt og annað. Loksins get
ég nýtt mér nýja bílinn
sem ég var að kaupa mér
en ég var búin að vera föst á
litíum fólksbíl í nokkur ár.
Núna keyptí ég mér Ford
Escape-jeppa sem við
ætlum að nýta sem best í
sumar. Við ætíum að
reyna að fara Vestfirð-
ina og m.a. langar mig
að skoða Kvígindis-
fjörð en þangað
kemst maður ekki
nema á vel búnum
bH,“ segir Selma
sem hefur verið
dugleg að ferðast
um landið í
gegnum árin en
langar til að sjá
meira.
Ég hef farið víða
um ísland og séð allt
þetta helsta en
núna er kominn
tími til að skoða
nokkra staði sem
eru kannski ekki
alveg í alfaraleið,"
segir Selma sem er
greinilega mjög
ánægð með
„Það er náttúrlega
mikill heiður og frá-
bært tækifæri fyrir
okkur að heimsækja
landið. Kína er land
sem fæstir fá að sjá
um ævina og þess
vegna er bara frá-
bært að komast
þangað í tengslum
við vinnuna
nýja bílinn og möguleikana sem því
fylgja að eiga jeppa.
„Það er þess vegna nóg um að
vera hjá mér og svo ætía ég l£ka í frí
til Spánar með fjölskyldunni seinna
í sumar. Svo var reyndar verið að
hringja í mig frá Þýskalandi núna
fyrir stuttu þar sem ég var beðin
um að koma fram og syngja
Eurovision-lögin þar líka," segir
Selma þannig að ljóst má vera að
frammistaða hennar hefur vakið
athygli margra sem máli skipta í
tónlistarbransanum, þótt evrópsk-
ur almenningur hafi ekki verið á
sama máli.
„Síðan er búið að hafa samband
við mig út af nokkrum hlutum sem
eru að fara að gerast hérna heima í
haust en það er eitthvað sem er of
snemmt að tala um núna. Það
stendur margt til boða en ekkert er
niðurneglt enn þá. Að vísu mun ég
taka að mér einhverja kennslu í
Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna,
en það er svona það eina sem er al-
veg pottþétt. Annað verður bara að
koma í ljós síðar," segir Selma að
lokum.