Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 16
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★'fr'Ff'&^'w'lír
7 6 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005
Helgarblað DV
Aldrei ot s
Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir hefur
náð af sér 20 kílóum á einu ári. Jó-
hanna er að nálgast sjötugsaldurinn
og hefur aldrei liðið betur.
TILBOÐ NR. 2
ÞJÓÐLAGAGÍTAR KR. 14.9M
POKI, ÓL, STILLITÆKI 0G GÍTARNEGLUR
¥
¥
*
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
TILBOÐ NR. 3
KLASSISKUR GÍTAR KR. 10.900
POKI, STILLITÆKI OG GÍTARNEGLUR
TILBOÐ NR. 4
RAGMAGNSGÍTARTILBOÐ KR. 22.900
RAFMAGNSG. MAGNARI, POKI, ÓL, SNÚRA, NEGLUR
OG STILLITÆKI
TILBOÐ NR. 5
BASSATILBOÐ KR. 42.900
BASSI, MAGNARI, POKI, ÓL, SNÚRA, STILLITÆKI,
NEGLUR OG STANDUR
OFURTILBOÐ
Trommusett með öllu
49.900 kr.
TILBOÐNR.1
MAPEX TROMMUSETT MEÐ
RÉTTVERD 79.900
TILBOÐSVERÐ R.59.900
„Ég er sönnun þess að það er
aldrei of seint að byrja að hreyfa sig,“
segir Jóhanna Sigríður Sigurðardótt-
ir, sem náð hefur af sér 20 kílóum. Jó-
hanna Sigríður er að nálgast sjötugs-
aldurinn og segist alltaf hafa verið of
feit. Á einu ári náði hún hins vegar af
sér 20 kflóum og stefnir á að taka tíu í
viðbót. „Ég var lengi búin að vera 30
kflóum yfir minni réttu þyngd og er
nú loksins að ná mér af þeim í róleg-
heitunum. Ég geri þetta skynsamlega
og er aldrei svöng og hefur aldrei lið-
ið jafn vel á ævinni," segir Jóhanna og
bætir við að hreyfingin hafi gert
meira fyrir hana. „Ég hef þjáðst af
slitgigt í gegnum árin en í dag finn ég
ekki fyrir henni og get því sagt með
sönnu að Jireyfingin breytti öllu
mínu lífi því ég er laus við aílan sárs-
auka,“ segir Jóhanna en hún hefur
náð þessum glæsilega árangri í TT-
námskeið hjá Dansrækt JSB þar sem
hún dansar af sér spikið ásamt öðr-
um konum á öllum aldri.
Mætti tábrotin í ræktina
Jóhanna er sex barna móðir og
hafði varla stigið inn í leikfimisal
síðan hún var 14 ára. „Ég sá flotta
mynd af söngkonunni Diddú og
vissi að hún hefði farið á þetta
námskeið og því ákvað ég að gera
það sama,“ segir Jóhanna, sem hef-
ur þó ekki verið í algjöru hreyfing-
arleysi þar sem hún gengur reglu-
lega á fjöli. Henni hafði einu sinni á
ævinni áður tekist að losna við
aukakílóin en fór þá þá óskynsam-
legu leið að hætta að borða. „Þá var
ég á barneignaraldri og þurfti að ná
af mér 20 kflóum eftir barnsburð.
Núna er ég mun skynsamari enda
er ég starfandi sjúkraþjálfari og
þekki líkamann vel. Ég vissi alveg út
í hvað ég væri að fara og hvað er
það besta fyrir mig og ég passa mig
á því að fara eftir því sem kennar-
arnir segja okkur. Svona þjálfun
krefst aga og ég mæti nánast und-
antekningarlaust 5 sinnum í viku
og mætti meira að segja tábrotin,"
segir Jóhanna hlæjandi og bætir við
að hún hafi þá þurft að gera allar
æfingarnar skökk og skæld.
Hreyfingin skiptir öllu
„Ég er að sjá ungar stelpur á aldr-
inum 16 til 20 ára sem eru að byrja að
missa kflóin. Offita er orðin að heil-
brigðisvandamáli hér á landi og því
er þetta algjört kraftaverk. Þegar mér
hefur tekist að ná markmiðinu mínu
æda ég að halda áfram því þá verður
komið að því að styrkja vöðvana. Ég
mun aldrei hætta í leikfiminni því
þetta er svo dásamlegt og vellíðanin
er svo mikil þegar maður er búinn
með æfingamar." Jóhanna segist
sannfærð um að hreyfing og breytt
mataræði skipti öllu máli. „Fyrir tíu
árum gerði ég tilraun á sjálfri mér og
tók mig til og púlaði á þrekhjóli í
klukkutíma á dag án þess að breyta
mataræðinu. Þá léttist ég um heil 10
kfló á einum mánuði svo það er
greinilegt að hreyfingin skiptir höfuð
máli. Við verðum að brenna það sem
við borðum." Jóhanna segist stund-
um svindla í mataræðinu en vill þó
ekki kalla það svindl. „Maður verður
að velja á mflli. Ef ég fæ mér
súkkulaði þá sleppi ég kvöldmarnum
í staðinn."
: m ■ ■ L. .
„Eg safÍQttamyng af
söngkqnunhi Diddú og
vissi að hújrhefði farið
á þetta nqrhskeið dg
því ákvað ég áð gpra
það sárna;" seglr Jó-* ‘
hann'a, semhefur þój.
ekki verið í qigjöru
hreyfingarleysi þar
sem hún gengyr reglu-
lega á fjöli.
f dag Heilbrígð,
hress og kát.
DV-mynd Stefán