Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005
Sport DV
'Kluivert valdi
Valencia
Sóknarmaðurinn Patrick Klui-
vert hefur ákveðið að ganga til
liðs við spænska liðið Valencia en
hann fer til liðsins á frjálsri sölu
frá Newcastle. Kluivert fann sig
aldrei ahnennilega í svart/hvftum
búningi Newcastle og skoraði sex
mörk í ensku úr-
valsdeildinni.
Hann mun
gangast undir
læknisskoðun í
vikunni og
efhann
stenst .1 1. 1%-::
:=
hann ^r' f I f / II
skrifa ’ ? £ W § |
undir | II I /gtek
þriggja ára ® fl
samning .»■
við félagið.
Quique
Sanchez Flores mun stýra Val-
encia á næstu leiktíð en hann
þjálfaði Getafe. Kluivert er annar
leikmaðurinn sem Valencia fær á
innan við viku en hinn brasilíski
Edu gerði fimm ára samning við
félagið á miðvikudag og kemur frá
Arsenal.
Del Horno og
Kaladze tll
Chelsea
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
hefur staðfest að Chelsea sé ná-
lægt því að kaupa spænska lands-
liðsmanninn Asier Del Homo frá
Athletic Bilbao og hann er einnig
á höttunum eftir Georgíumannin-
um Kakha Kaladze sem spilar
með AC Milan. Báðir eru þeir
varnarmenn en Del Homo er ívið
dýrari en hann er metinn á 12
milljónir punda. „Við erum að
ræða við hann og við ætlum
einnig að kaupa miðju- og sókn-
armann," sagði Mourinhoe en
Kaladze getur ekki beðið eftir að
ganga í raðir félagsins. „Það er allt
klárt milli mín og Chelsea og nú
er vonandi að félögin nái saman.
Ég er ekki búinn að pakka niður
en verð fljótur að því þegar kallið
kemur," sagði Kaladze.
Chelsea að
missa sig?
Michael Essien er ekki eini
leikmaðurinn hjá Lyon sem Jose
Mourinho, framkvæmdastjóri
Chelsea, vill fá fyrir næsta tímabil.
Hann hefur einnig áhuga á liðsfé-
laga hans, Mahamadou Diarra,
sem er miðjumaður. Diarra spil-
aði stórt hlutverk hjá Lyon sem
varð franskur meistari á leiktíð-
inni en hann er landsliðsmaður
frá Malí. Jean-Michel Aulas
stjórnarformaður franska liðsins
hefur sagst ekki ætla að selja lykil-
menn liðsins en ekki er ólfldegt að
honum snúist hugur þegar Rom-
an Abramovich leyfir honum að
skoða í budduna sína.
Emre til
Newcastle?
Þær sögusagnir eru nú orðnar
ansi háværar að tyrkneski miðju-
maðurinn Emre sé á Ieið til
Newcastle United. Hann yrði þá
fyrstu sumarkaup Graeme Sou-
ness. Ernre sló í gegn á Heíms-
meistaramótinu 2002 en hefur
ekki orðið sú stjarna hjá ftalska
liðinu Inter Milan sem vonast var
eftir. Talið er að kaupverðið á
leikmanninum verði fjórar millj-
ónir punda en Everton var einnig
að reyna að fá hann í sínar raðir.
Souness veit af því að töluverð
pressa er á honum að gera mun
betur á næsta tímabili en á því
sem nú er nýliðið.
Þjálfari ungverska landsliðsins var valinn besti knattspyrnumaður heims 1991, ári
eftir að hann varð heimsmeistari með Þýskalandi þar sem hann tók við bikarnum
sem fyrirliði. Atli Eðvaldsson þekkir vel til kappans og rýnir hér í hans stíl.
Meiddur Meiðsli Dwayne Wade gætu sett strik Ireikninginn fyrir Miami
Úrslitakeppni NBA í fyrrinótt
Miami ívænlegri stöðu
Miami Heat lagði Detroit 88-76 í
fimmta leik liðanna í fyrrinótt og
þarf því aðeins einn sigur íviðbót til
að tryggja sig í úrslitaleikina gegn
San Antonio Spurs, sem sigruðu
Phoenix örugglega 4-1 á dögunum.
Það var ekki síst fyrir frábæran
leik minni spámanna liðsins sem
þeir náðu að leggja meistarana í
fimmta leiknum, því Shaquille
O’Neal er enn aðeins hálfdrættingur
vegna meiðsla, þótt hann hafi að
vísu verið stigahæstur hjá Miami
með 20 stig.
Liðið varð fyrir nokkru áfalli í
byrjun síðari hálfleiks, þegar Dway-
ne Wade, oft kallaður Hvell-Geiri,
tognaði á vöðva og varð að fara af
leikvelli. Wade gat lítið beitt sér eftir
það og hafa meiðsli hans sett nokk-
urt strik í reikninginn fyrir Flór-
Liðið varð fyrir
nokkru áfalli í byrjun
síðari hálfleiks, þegar
Dwayne Wade, oft
kallaður Hvell-Geiri,
tognaði á vöðva og
varð að fara afvelli.
ídaliðið, sem stefnir nú á að komast
í lokaúrslitin í fyrsta sinn í sögunni.
Meistararnir voru langt frá því að
vera sannfærandi í leiknum og eru
nú komnir með bakið upp að vegg í
einvíginu. Líklegt verður þó að telj-
ast að þessi sería fari alla leið í sjö
leiki eins og margir hafa spáð, því
liðin eru mjög jöfn. baidur@dv.is
„Þegar Lothar Matthaus var að
koma upp, 16-17 ára gamall,
var það mál manna að þarna
væri eitt mesta efni sem sem
sést hafði í þýska boltanum.
Hann hafði eiginlega allt sem
þarf til að prýða toppleik-
mann, mikinn hraða, tækni og
frábæra skottækni. Hann var
duglegur að vinna boltann og
fara síðan fram völlinn af
miklum krafti og endaði oft á
skoti. Hann skoraði mörg
glæsileg mörk af 20-30 metra
færi.“ sagði Atli Eðvaldsson,
fyrrum landsliðsþjálfari,
spurður út í Lothar Matthaus,
þjálfara Ungverjalands.
Lothar Matthaus hefur tekið þátt
í fimm Heimsmeistarakeppnum
með Þýskalandi sem leikmaður, þar
á meðal 1990 þegar liðið vann
heimsmeistaratitilinn með hann
sem fyrirliða. „Þetta er maður sem
býr yfir miklum tilfinningum varð-
andi fótboltann og hefur oftar en
ekki lent í útistöðum vegna þeirra.
Hann er rosalega umdeildur og má
eiginlega segja að annaðhvort líkar
manni mjög vel við hann eða gjör-
samlega þolir hann ekki."
Matthaus þjálfaði áður Partizan
Belgrade en lenti í útistöðum við lið-
„Það eru mjög skiptar
skoðanir á honum
sem þjálfara í Ung-
verjalandi. Hann hef-
ur þurft að takast á
við harða gagnrýni en
staðið ágætlega eftir
hana."
ið og sagði upp. „Það eru mjög skipt-
ar skoðanir á honum sem þjálfara í
Ungverjalandi, hann hefur fram-
væmt margar umdeildar ákvarðanir,
til að mynda tekið ýmsa yngri leik-
menn framyfir eldri og reyndari
menn. Hann hefur þurft að taíkast á
við harða gagnrýni en staðið ágæt-
lega eftir hana.“
Vel spilandi lið
Atli reiknar með að Matthaus láti
Ungverjaland spila 3-5-1-1 í leikn-
um gegn íslandi.
„Ég sá þá spila gegn Frakklandi
og þar léku þeir þetta kerfi. Þetta er
vel spilandi lið, eru fastir fyrir og
hafa mjög fljóta menn. Lothar legg-
ur áherslu á að menn séu óhræddir
við að skjóta og að sóknirnar endi
allar með skoti. Þeirra mesta hætta
skapast þegar þeir stinga sér inn í
gegnum miðsvæðið enda eru snögg-
ir leikmenn í þeirra röðum.
Imre hættulegur
Þeir hafa Imre Szabics í ffemstu
víglínu og þar fer mjög hættulegur
leikmaður, hann spilar með Stutt-
gart og er einn skemmtilegasti leik-
maður þýsku deildarinnar. Þetta er
leikmaður sem þarf að stöðva,
sömuleiðis er Zoltan Gera stór-
hættulegur en hann verður líklegast
þarna rétt fyrir aftan. Ég býst við því
að þeir leiki með þriggja manna
vörn og tveir detti þá niður. Varnar-
mennirnir eru ekki menn sem við
þekkjum en eru þó góðir. Við eigum
alveg ágætis möguleika gegn þeim
en þá þarf flest að ganga upp.
Pressan er ávallt mikil á íslenska
landsliðinu en áhorfendur þurfa að
sýna þolinmæði í þessum leik. Leik-
menn þurfa að koma ákveðnir til
leiks og þurfa að gæta þess vel að
tapa boltanum ekki á miðsvæðinu
því þá gætu þeir verið fljótir að
refsa." sagði Atli Eðvaldsson, fyrrum
landsliðsþjálfari.
elvar@dv.is
Lothar Matthaus Þessi stórkostlegi knattspyrnumaður hefur ekki átt eins farsæian feril sem
knattspyrnuþjálfari, en hann hefur verið mjög umdeildur frá því hann byrjaði að þjálfa. Hann
sést hérá æfingu Ungverja I Laugardalnum ígær.
Lothar Matthaus Mjög
umdeildur bjálíari