Freyr

Volume

Freyr - 01.02.1951, Page 5

Freyr - 01.02.1951, Page 5
XLVI. ARGANGUR NR. 3-4 REYKJAVIK, FEBRUAR 1951 Eínlembur — Tvílembur Eftirfarandi greinar eru svör við spurningunni: Hvort er betra að ærnar séu einlembdar eða tvílembdar? Töluleg dæmi óskast með svarinu. Spurningin var ein á meðal þeirra, sem Freyr beindi til lesendanna vorið 1950 og var nr. 3 i samkeppn- inni. Þess ber að minnast, að svörin voru skrifuð í fyrra vor. Ritstj. I. Ef bóndinn er öruggur með að hafa nægan fóðurforða handa búfénu, er það augljóst, að hann hefir hag af því að fá sem flestar ær tvílembdar. Hitt er erfiðara að finna, hvaða hlutfall sé á milli arðs tvílembunnar og arðs ein- lembunnar. í skýrslum Búnaðarritsins, um sauðfjár- ræktarbúin, er tilgreind þyngd þyngstu tvílembinganna og þyngsta einlembingsins á hverju búi og hverju ári. Ef gert er ráð fyrir, að hlutfallið milli meðalþyngdar allra tvílembinganna og allra einlembinganna sé til jafnaðar það sama á hverju búi fyrir sig eins og meðal- hlutfallið milli þyngstu einlembinganna og þyngstu tvílembinganna, má fá nokkra hugmynd um hlutfallið milli tvílembinga og einlembinga á hverju búi fyrir sig. Hér er tekið meðaltal af þessum tölum um átta ára bil (1938—46) á þeim búum, sem eru á skýrslu öll árin, og auk þess á Grænavatni, sem er á skýrslu fimm ár af þessum átta. Þessar tölur sýna, að tvílemban virð- ist gefa 50—60% meiri afurðir (brúttó) en einlemban og fá þær þó báðar sama fóður. Til þess að finna nettóarðinn eftir á þarf að meta bæði fóður og hirðingu. Er þá rétt að gera ráð fyrir, að tvílemban fái meira fóður en einlemban.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.