Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1951, Side 9

Freyr - 01.02.1951, Side 9
FREYR 33 J'JL’arÁi Maðurinn er: Jón G. Guðmann og bújörð- in, sem hann hefir skapað, heitir Skarð. ★ Á svæðinu neðan Glerár, þar sem hún fellur til norðurs neðan við Rangárvelli, en sunnan rafstöðvarinnar, sem fyrir all- mörgum árum var byggð, þegar Glerá var virkjuð, eru hamraborgir allstórar, heflaðar af skriðjöklum, sem endur fyrir löngu hafa markað för sín í stein- harðar klappirnar. Á milli borganna voru mýrasund fyrr og umhverfis þær, í brekkum, vallgresi vaxnar þúfur — ágæt- is haglendi. Þarna voru hestahagar Akur- eyringa fyrrum og svo þeirra, sem erindi áttu til Akureyrar með lestir, haust og vor, úr nærsveitum eða um langvegu. Þarna var frjáls hestahagi eða hægt að hafa þar hesta í vörzlu eftir vild allt fram undir 1930, og sagt er mér, að þarna hafi fé ver- ið haldið til beitar á haustin þegar það kom til Akureyrar, þreytt af langri eða skammri för frá markaðsrétt til síðasta áfangastaðar. Það mun hafa verið laust fyrir 1930, að ég hafði þarna hesta í haga, eins og fleiri ferðamenn, á meðan dvalið var á Akur- eyri, og þar missti ég eitt sinn fola úr girðingu og varð að leita hans lengi. Ráf- aði ég þá um þessar slóðir, skyggndist um af klöppunum og horfði yfir umhverfið, hljóp yfir mýrasundin og óð votar lendur eða hoppaði frá þúfu til þúfu. Þessi hesta- geymsla og folaleit rifjaðist upp fyrir mér þegar ég kom á sömu slóð síðastliðið haust og stiklaði þar dagstund á þessum sömu lendum. í þá daga hljóp ég einn um þetta sund- urleita land, en nú var ég í fylgd með eig- anda þessara klappa og sunda. í þá daga var hann kaupmaður á Akureyri, seldi allt það, sem fólk fýsti að eignast, eins og góð- um kaupmanni sæmir, en nú hefir hann skilið við kaupmennskuna og valið sér það hlutskipti að brjóta land og yrkja, rækta jurtir og búfé og byggja heilt sveitabýli. Jón G. Guðmann. Jón G. Guðmann er Skagfirðingur að ætt og uppruna, fæddur að Breiðsstöðum í Gönguskörðum, en fluttizt þaðan barn til Sauðárkróks.. Þar ólzt hann upp, hóf und- irbúning undir æfistarf sitt, sem verzlun- armaður, en strax í æsku stóð þó hugur hans til annars frekar, sem sé til þess að yrkja jörð. Hið fyrsta framtak hans á því sviði var að fá sér landspildu til ræktunar, rétt inn- an við Krókinn, í nánd þar sem nú er að rísa hið nýja mjólkurbú Skagfirðinga, en þeirri spildu fékk hann ekki að halda nema skamma stund; með aðstoð yfirvalda var nún af honum tekin og ræktunarstarf Jóns féll svo niður um alllangt skeið. Árið 1921 flutti Jón búferlum til Akur- eyrar, hóf sjálfstætt starf, og var þar kaup- maður þegar ég hefti hesta á því landsvæði, sem á er minnst. Hér var hann kaupmaður í 20 ár, en árið 1940 lét hann af kaup- mennsku til þess að helga búskapnum alla krafta sína og umhýggju. Og hérna á hæstu borginni stöndum við nú báðir tveir og lítum yfir þetta landnám Jóns J. Guð- manns, bónda að Skarði, en ríki hans eru hin áminnstu sund og brekkur, ásamt hin- um miklu borgum, sem eflaust hafa verið

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.