Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1951, Qupperneq 12

Freyr - 01.02.1951, Qupperneq 12
36 FRE YR verið upp skorið á annað hundrað tunnur árlega, — „og svo hefi ég stundum haft geysilegt magn af rabarbara", bætir Jón við. Þar að auki er sitt af hverju matjurta í laukagarði, en hvað fjölskyldan ræktar í glerhúsinu láðist mér að spyrja um. Aftur á móti leit ég inn í hænsnahúsið og sá þar falleg og vel hirt hænsni 2—300 að tölu. „Þau voru nú einu sinni 5—6 hundruð, en það borgar sig ekki að hafa hænsni nú, svo að ég hefi fækkað þeim. En þau hafa alltaf gefið góðar afurðir greyin, enda hefi ég haft afurðatalningu og aðeins valið til und- aneldis þær hænur, sem mestar afurðir hafa gefið“, tjáir bóndi, þegar við göng- um frá hænsnahúsinu. ★ Sá sem kemur að Skarði hlýtur að veita því eftirtekt, að umgengni þar er önnur en almennt gerist í sveitum og gildir það bæði utan húss og innan. Ég hygg, að ýmsir hefðu gagn og gaman af því að hitta Jón bónda á Skarði og sjá búskap hans og um- gengni alla. Ekki vil ég með orðum þessum hvetja þorra manna til þess að tefja fyrir Jóni við bústörfin, því hann hefir langan starfs- dag og í mörgu að snúast. En bændur hafa gott af að hittast og spjalla um hlutina og allt of lítið er gert að því, að bændur heim- sæki hvorir aðra, fámennir hópar úr næstu sveit, sem hittast dagstundir til þess að skoða hver annars búskap og kynnast að- ferðum við dagleg störf, og svo til þess að ræða dægurmálin. Búskapurinn á Skarði er í ýmsu eftirtektarverður, en þó tel ég hitt sérstæðast, að kaupmaður, sem alla tíð hefir átt láni að fagna í því starfi sír.u, hverfur frá kaupmennsku og gerist „bcira bóndi“, eins og það er svo oft orðað í lítils- virðandi merkingu. En Jón G. Guðmann hefir fundið hið mikilvæga í því að vera bóndi. Hin skapandi hugsjón og hið eflandi starf hefir hrifið hug hans allan og hann hefir megnað að gera hugsjónina að veru- leika, sem sannarlega er svo mikils um vert, að aðrir mega og skulu líta. Það mun næsta fátítt á landi voru, að maður, sem aldrei hefir lært að plægja, hverfur frá kaupmennsku, beitir þrem hest- um fyrir plóg, brýtur landið og vinnur, ræktar það og fær góða uppskeru á hverju ári, en búfé hans breytir jarðargróanda í ýmsar nytjar. Til eru kaupmenn, sem eiga bú og láta aðra stunda þau. Það gerir Jón Guðmann ekki. Hann er sjálfur með í öllum störfum. Hitt er algengt, að bændur flytja frá mold til malar, og ekki er dæmalaust, að þeir gerist kaupmenn. Jón hefir farið öfugt að. Máttur moldarinnar hefir dregið hann frá mölinni og við moldina neytir hann ávaxta erfiðis síns og hyggst að gera það fram- vegis. Á hverju vori sáir hann frækornum í mold, sér nýgræðing af þeim vaxa og ávöxtu þeirra uppsker hann að hausti. Launin fyrir starfið eru eitt, og nokkurs virði, en gleðin og gæfan, sem sannur ræktunarmaður finnur og er þátttakandi í, við sólrás og við aftanroða, sem vefur land hans og gróanda í faðm sinn, það eru þætt- ir, sem færa hinn fædda ræktunarmann frá möl til moldar og veita styrk í hverju starfi, svo að erfiðleikar eru að engu hafðir. Bóndinn, Jón G. Guðmann, á Skarði, er í hópi þeirra, er efla virðingu fyrir starfi því, sem bændur inna af hendi. ★ I framhaldi af ofanskráðu spinnur Arnór Sigurjóns- son þráð í eftirfarandi grein. Út frá nánum kynnum af búskap Jóns notar Arnór tækifærið til þess að kveða sér hljóðs viðvíkjandi ákveðnu viðhorfi, sem snert er í niðurlagi greinar hans. Ber því að skoða hana sem forspjall að efni, er reifað mun betur síðar og verður vonandi til þess að ýnrsir biðja um rúm til þess að koma skoðunum sínum á framfæri.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.