Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1951, Side 17

Freyr - 01.02.1951, Side 17
FRE YR 41 Mámikeið fyrir triiiiadarmcnn Itúnaðnrfélagi Islamls Með gildistöku jarðræktarlaganna 1923 og framkvæmd þeirra, var stórt spor mark- að í ræktunarmálum og ræktunarmenn- ingu íslenzkra bænda. Áður hafði að vísu verið veitt viðurkenning og lítilsháttar að- stoð vegna framkvæmda á sviði jarðyrkju, en með jarðræktarlögunum var fjölþætt- ari starfsemi tryggð aðstoð, enda um leið gert ráð fyrir að framkvæmdirnar væru þannig af hendi leystar, að til frambúðar yrðu. Um sömu mundir og umrædd lög voru í smíðum, fluttust til landsins mikilvirk ræktunartæki og tækni, sem einnig var fyrsta sporið á þeirri braut tækninnar, sem rudd hefir verið síðar og nú er orðin bæði breið og löng. Með vélknúðum tækjum vannst miklu meira en fyrr, þegar hand- verkfæri ein voru notuð, og með vélknúð- um tækjum voru skilyrði búin til þess að inna verkin af hendi miklu betur en áður. En jafnframt gat sú hætta vofað yfir, að undirbúningur fyrir sjálfa ræktunina yrði ekki svo mikill né góður, sem vera þyrfti. Þetta hefir mönnum eflaust verið Ijóst, sumum hverjum að minnsta kosti, og reynslan leiddi það í ljós og sannfærði þá, sem ef til vill höfðu ekki trúað fyrirfram. Þúfnabanarnir unnu sín verk sómasamlega eða vel, en þúfnabanavinnslan varð ekki alltaf að jafngóðu gagni af því að vanrækt hafði verið að ræsa landið fram áður en unnið var eða þegar unnið hafði verið. En hvað um það. Á nýsmíðum eru oft einhverjir gallar eða annmarkar og end- urbætur eru eðlilegar. Svo fór og hér. Áður en umrædd lög komu til fram- kvæmda þurfti að gera ráðstöfun til þess, að árangur þeirra yrði svo sem til var ætl- ast. Framkvæmdir þær, sem styrkja skyldi, varð að mæla og meta. Til þess skyldi velja hæfa aðila og til þess að gera þá enn hæf- ari var efnt til námskeiðs í Reykjavík. Námskeið þetta mun hafa verið haldið ár- ið 1924. ★ Minni háttar breytingar á jaröræktar- lögunum hafa verið gerðar á því tímabili, sem að baki er, en stórfelldustu breyting- arnar voru gerðar eftir gagngerða endur- skoðun laganna á árunum 1947—49, með staðfestingu þeirra í nýrri mynd árið 1950. Frá því hefir Pálmi Einarsson, landnáms- framtakssamur og snjall ungur maður hef- ir viljandi leitað viðnáms krafta sinna í íslenzkum landbúnaði. Fyrir síðustu aldamót fór framtakssam- asta fólkið vestur um haf, eftir aldamót hvarf það að sjávarútvegi, verzlun, iðnaði eða flutningum á sjó og landi, en bezta námsfólkiö settist við skrifborð eða í kenn- arastól, meðan landbúnaðinum blæddi út vegna skorts á snjöllu fólki. Fram að þessu hefi ég aðeins séð eina bót á þessu böli: Við íslendingar erum svo ,,demokratiskir“ í blóðblöndun okkar sem í annarri um- gengni, að hér er enginn hæfileikamun- ur ætta, heldur aðeins einstaklinga, og má af þessum ástæðum vænta afreksfólks nýrrar kynslóðar í öllum atvinnustéttum jafnt, ef uppeldisskilyrðin ieyfa. En ef ís- lenzk bændastétt á þess kost að fá úr öðr- um atvinnustéttum marga menn á borð við Jón Guðmann, hillir þar undir nýja von. Þá mundi hún, þrátt fyrir þá blóð- töku, er hún hefir orðið að þola, rísa eins og kirkjugarður á nýársnótt, undir eins og á hana er kallað til dáða.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.