Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1951, Side 18

Freyr - 01.02.1951, Side 18
42 FREYR stjóri, greint í grein sinni í Frey nr. 22, 1950. í tilefni af breytingum þeim, sem nú hafa á orðið og svo af því, að megin þorri hinna eldri trúnaðarmanna hefir nú lát- ið af störfum eða er i þann veginn að hætta, og nýir menn koma í staðinn, þótti tíma- bært að efna til námskeiðs fyrir trúnaðar- mennina. Búnaðarfélag íslands hefir frá upphafi haft umsjón með framkvæmd þess- ara laga og var því eðlilegt, að það hefði einnig á hendi framkvæmd og fyrirkomu- lag námskeiðs þess, sem efnt var til, fyrir trúnaðarmennina, seint á árinu 1950. Til þátttöku í þessu námskeiði var boðið þeim 28 trúnaðarmönnum, sem starfandi voru á árinu 1950. Námskeiðið var haldið dagana 27. nóv- ember til 7. desember 1950. Var fyrirkomu- lagið það, að erindi voru flutt um hin ein- stöku efni en síðar voru umræður. Tóku umræðurnar jafnan miklu meiri tíma en erindin, enda höfðu trúnaðarmennirnar sitt af hverju að segja um reynslu sína frá vettvangi starfsins á liðnum árum. Erindin voru ekki aðeins bundin við þau verkefni, sem beinlínis snerta framkvæmd jarðræktarlaganna og mat framkvæmd- anna, heldur og um almenn efni búfræði Þessir fimm-menningar hafa verii') trúnaðarmenn frá upp- hafi. Þeir eru: Kristófer Grímsson, Rcykjavík; PáU Páls- son, Þúfum; Jón Jónsson, Volaseli, og að balci þeim standa: Jóhannes Davíðsson, Hjarðardal, og Benedikt Grímsson, Kirkjubóli. og búskapar, eins og sjá má af eftirfarandi lista yfir þau erindi, er flutt voru: Efni: Framræsla. Nýrækt. Áburður. Dreifðar áburðartilraunir. Fóður og fóðurverkun. Athuganir viðvíkjandi súgþurrkun. Sauðfjárrækt. Jarðabótaskýrslur. Belgjurtir, grænfóður og fræblöndun. Þróun landbúnaðarins. Nautgriparækt. Byggingar í sveitum (2 erindi). Erindi fiuttu: Ásgeir L. Jónsson, ráðunautur: Björn Bjarnarson, ráðunautur: Dr. Björn Jóhannesson: Gísli Kristjánsson, ritstjóri: Hjalti Gestsson, ráðunautur: Halldór Pálsson, ráðunautur: Hannes Pálssson, fulltrúi: Ólafur Jónsson, ráðunautur: Steingr. Steinþórsson, forsætisráðherra: Páll Zóphóníassoon, búnaðarmálastjóri: Þórir Baldvinsson, húsameistari: Þá 10 daga, sem námskeiðið stóð, var starfsdagurinn langur. Byrjað var kl. 9 á morgnana og fundum að jafnaði lokið um kl. 7 að kvöldi, en hlé var jafnan haft nokkurt í sambandi við matartíma. Hins- vegar voru kvöldfundir haldnir suma dag- ana. Þátttakendur í námskeiðinu voru: Trúna&armenn: 1. Hjálmar Jónsson, Hvanneyri, Borgarf. 2. Gunnar Jónatansson, Stykkishólmi. 3. Elías Melsted, Grund, V.-Barð. 4. Jóhannes Davíðsson, Hjarðardal. 5. Hjörtur Sturlaugsson, Fagrahv., ísaf. 6. Páll Pálsson, Þúfum, N.-ísafjarðars. 7. Benedikt Grímsson, Kirkjubóli, Strand. 8. Guðm. Jósafatsson, Austurhlíð, Hún. 9. Egill Bjarnason, Sauðárkróki. 10. Ólafur Jónsson, Akureyri.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.