Freyr - 01.10.1951, Qupperneq 12
298
FREYR
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda, Hólum,
Hjaltadal.
Þykir mjög leitt geta ekki mætt á aðalfundinum.
Oska störfum aðalfundarins megi fylgja gagn og
heiður fyrir bændastéttina og þjóðina.
Hermann Jónasson."
Fundarmenn risu úr sætum til að votta
ráðherranum þakkir sínar.
Formaður flutti fundinum orðsendingu
frá bæjarstjóra Siglufjarðar, þar sem hann
bauð fundarmönnum til Siglufjarðar til að
skoða bæinn og þiggja kaffiboð hjá bæj-
arstjórn.
Var fundarmönnum gefinn frestur til um-
hugsunar og síðan gengið til dagskrár.
6. Álit fjárhags- og reikninganefndar.
Stefán Diðriksson var framsögumaður og
sagði að nefndin heíði athugað reikninga
sambandsins og legði til að þeir yrðu sam-
þykktir.
Síðan ræddi hann um fjárhagsáætlun
sambandsins fyrir árið 1952 og skýrði frá
þeim breytingum, sem nefndin gerði á
henni.
Út af fjárhagsáætluninni spunnust
nokkrar umræður og tóku margir til máls.
Á meðal annars kom fram álit þess efnis,
að Stéttarsambandið gerðist hluthafi í
hinni fyrirhuguðu áburðarverksmiðju.
Frá reikninganefnd kom síðan fram eft-
irfarandi tillaga:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn að
Hólum í Hjalladal dagana 27. og 28. ágúst, telur
að lánsfjárskortur til landbúnaðarins standi veru-
lega í vegi fyrir eðlilegum og bráðnauðsynlegum
framkvæmdum í sveitum landsins. Skorar fundur-
inn þvi á stjórn sambandsins að vinna af fremsta
megni að því við löggjafarvald þjóðarinnar og rík-
isstjórn, að fjármagn Búnaðarbankans verði aukið,
svo að hann geti að fullu sinnt eðlilegri lánsfjár-
þörf landbúnaðarins, bæði hvað snertir lögboðin
lán til jarðakaupa, jarðræktar og byggingarfram-
kvæmda, svo og til bústofnunar og aukningar.
Til viðbótar erlendu lánsfé, sem nauðsynlegt
væri að útvega, vill fundurinn í þessu sambandi
benda á að réttmætt og æskilegt væri að ríkis-
stjórnin sæi um að Búnaðarbankanum væri falin
geymsla þess fjár, sem runnið er úr sveitum lands-
ins og safnast fyrir hjá Tryggingastofnuuum rík-
isins og Brunabótafélagi íslands."
Tillagan var samþykkt með samhljóða at-
kvæðum.
7. Álit allsherjarnefndar.
Bjarni Halldórsson flutti framsögu og
gerði grein fyrir tillögum allsherjarnefndar
og talaði fyrir þeim.
Tillögurnar voru þessar:
Rafmagns- og símamál.
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda skorar á
stjórn sína að vinna að því, að dreifbýlið fái sem
fyrst rafmagn með sömu kjörum og þéttbýlið. Enn-
fremur felur fundurinn stjórn sambandsins að
vinna að því, að símalagningu í dreifbýlinu verði
hraðað meira en verið hefur hingað til."
Samþykkt með samhljóða atkvæðum.
Almannatryggingar.
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1951 beinir
því til stjórnar sambandsins að vinna að því, að
tryggingalögin verði endurskoðuð og breytt f það
horf, að hver slysatryggður einstaklingur greiði
sjálfur slysatryggingargjald sitt."
Samþykkt með samhljóða atkvæðum.
Bifreiðar og dráttarvélar.
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1951 skor-
ar á stjórn sína að vinna ötullega að því í sam-
ráði við ríkisstjórn og fjárhagsráð að fullnægt
verði nú á næstunni eftirspurn bænda eftir hent-
ugum bifreiðum og dráttarvélum.
Ennfremur æskir fundurinn þess, að stjórn sam-
bandsins beiti sér fyrirr því að fylgt verði sett-
um reglum og lögum um innflutning og úthlutun
landbúnaðarvéla og heimilisdráttarvéla."
Samþykkt samhljóða.
Fóðurhœtir.
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1951 felur
stjórn sinni að vinna ötullega að því í samráði við
ríkisstjórn og fjárhagsráð að nægjanlegt af fjöl-
breyttum fóðurbæti verði til í landinu á næsta
vetri, þar sem heyfengur er nú almennt með
minna móti.
Ennfremur felur fundurinn stjórn sambandsins
að aLhuga sem bezt, hvort ekki sé hægt að finna