Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.10.1951, Qupperneq 13

Freyr - 01.10.1951, Qupperneq 13
FREYR 299 leiðir til að lækka verð á erlendum fóðurbæti t. d. með hagkvæmara fyrirkomulagi um innflutning o.fl. og sé þá um framtíðar fyrirkomulag að ræða, enda sé unnið að þessum málum í samráði við S.Í.S." Samþykkt samhljóða. 8. Fjárhagsmál. Sverrir Gíslason, formaður sambandsins, gerði grein fyrir því, að stjórnin hefði fall- izt á þá tillögu fjárhags- og reikninga- nefndar, að Stéttarsambandið verji 50 þús- und krónum til kaupa á hlutafé áburðar- verksmiðju. Þá komu tillögur nefndarinnar til at- kvæða. 1. „Fjárhags- og reikninganefnd leggur til að þóknun til fulltrúa á aðalfundi Stéttarsambandsins 1951 verði kr. 75.00 á dag í 4 daga og kr. 100.00 á dag fyrir þá daga, sem þar eru fram yfir.“ Samþykkt samhljóða. 2. „Fundurinn samþ)kkir að verja allt að kr. 50.000.00 til kaupa á stofnhlutabréfum í væntan- legri áburðarverksmiðju og heimilar stjórn Stétt- arsambandsins að taka lán til þess til jöfnunar á fjárhagsáætlun fyrir árið 1952." Síðan var fjárhagsáætlunin borin undir atkvæði, lið fyrir lið, og var hver einstakur liður samþykktur með samhljóða atkvæð- um, nema 8. gjaldaliður með 23:2 atkvæð- um. Var þá áætlunin á þessa leið: Fjárhagsáœtlun Stéttarsambands bœnda jyrir árið 1952. Tekjur: 1. í sjóði frá fyrra ára ......... kr. 20.000.00 2. Tekjur úr Búnaðarmálasjóði .... — 260.000.00 3. Vaxtatekjur .................... — 2.500.00 4. Lán tekið á árinu ............... — 37.500.00 Samtals kr. 320.000.00 Gjöld: 1. Laun og ferðakostnaður stjórnar kr. 15.000.00 2. Laun og ferðakostnaður fram- kvæmdarstj. og sendimanna og erindreka á fundi ............... — 25.000.00 3. Aðalfundur .................. - 70.000.00 4. Útgáfukostnaður Freys og rekst- urshalli ......................... — 30.000.00 5. Kostnaður við skýrslusöfnun .... — 3.000.00 6. Þátttaka í Í.F.A.P.................. - 10.000.00 7. Þátttaka í N.B.C.................... - 10.000.00 8. Úthlutun dráttarvéla og jeppabif- reiða ................................ - 7.000.00 9. Skrifstofukostn. (húsnæði, ljós, hiti o. fl.) .............................. - 10.000.00 10. Framlag til Tryggingasjóðs .... — 50.000.00 11. Framlag til Húsbyggingasjóðs.. .. — 30.000.00 12. Til hlutafjárkaupa í áburðar- verksmiðju ............................ — 50.000.00 13. Óviss gjöld ........................ — 10.000.00 kr. 320.000.00 Áætlunin í heild var samþykkt með sam- hljóða atkvæðum. 9. Aðalfundur N.B.C.: Formaður lagði fram þessa tillögu frá stjórninni og talaði fyrir henni: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn að Hólum 28. ágúst 1951, heimilar stjórn Stéttarsam- bandsins að bjóða Bændasambandi Norðurlanda (N.B.C.) að halda aðalfund sinn hér á landi næsta ár og að verja til þess fé á svipaðan hátt og bænda- félög liinna Norðurlandanna hafa gert undir sömu kringumstæðum." Samþykkt með samhljóða atkvæðum. 10. Álit framleiðslunefndar. A) Einkasala á eggjum og garðávöxtum. Garðar Halldórsson flutti tillögu nefnd- arinnar í því efni og mælti fyrir henni. Hún var svo: „Fundurinn felur stjórn Stéttarsambands bænda og Framleiðsluráði að vinna af alefli að því, að lög- um um framleiðsluráð verði breytt á þann veg, að framleiðendum garðávaxta, gróðurhúsaafurða og eggja verði gert mögulegt að fá í sínar hendur einkasölu og innflutning þessara vara. Á meðan framanskráð ákvæði koma ekki til fram- . kvæmda, beinir fundurinn því til Framleiðsluráðs að gæta eftirtalinna atriða: 1. Að tekið sé nægilegt tillit til geymslukostnaðar kartaflna með hækkandi verði. 2. Að meiri verðmunur verði gerður á úrvals og 1. flokki kartaflna en verið hefur eða að ekki verði gerðar jafnstrangar matskröfur til úrvals flokks og s.l. haust.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.