Freyr - 01.10.1951, Blaðsíða 18
304
FRE YR
yfir hnjúka, sem gyltir eru af skini síð-
degissólar og yfir sendna suðurströnd
landsins, þar sem bára brotnar við sand,
og þar sem erlendir veiðiþjófar liggja rétt
úti fyrir að veiðum. í 200 metra hæð ber
fuglinn okkur yfir Þykkvabæinn, þar sem
fólk er úti að hauststörfum, og fram hjá
Vík í Mýrdal er flogið rétt framan við
drangana, en í þorpinu eru bílar og fólk
á fartinni. Svo taka við sandar og ósar, og
sandar aftur og grynningar langt fram í
sæ. Tæpum klukkutíma eftir að létt var á
Reykjavíkur-flugvelli er lent á sandinum
sunnan við Fagurhólsmýri. Hvílík hrað-
ferð! Forðum var þessi för margar dag-
leiðir, hvort sem farið var fótgangandi eða
á hestbaki, en leiðin er ófær nútíma sam-
göngutækjum öðrum en flugvélunum Vötn-
in eru að vísu brúuð, nema Skeiðará, en
verður hún nokkurntíma brúuð, svo að
þessi leið verði fær bifreiðum? Þetta var
áður torfærasta leið þessa lands og ekki
fær öðrum en vönum vatnahestum og þaul-
æfðum ferðamönnum. Það mátti fyrr til tíð-
inda telja, ef menn úr öðrum landshlutum
voguðu sér út á þær torfærur, sem um allar
aldir hafa verið á leiðinni til Öræfa. í dag
er það engin nýlunda, því að nú er farið
á einni stund það, sem áður þurfti viku til
að komast. En gestrisnin er sýnilega í blóð
borin fólkinu hér, því að móttökurnar eru
eins og vegfarandinn hefði lagt á sig viku
för og mikið erfiði til þess að ná áfanga-
stað — en það er bara ein stund síðan mað-
ur drakk kaffið heima hjá sér í Reykjavík
og nú er kaffi til reiðu hér á Fagurhóls-
mýri.
★
í septemberbyrjun 1950, þegar aðalfund-
ur Stéttarsambands bænda var haldinn að
Kirkjubæjarklaustri, gistu 14 manns á
svefnsal yfir sláturhúsinu. Var þá rætt um
landsins gagn og nauðsynjar langt fram á
nótt og bar margt á góma, og meðal ann-
ars möguleikar á því að flytja líflömb úr
Öræfum og Suðursveit á fjárskiptasvæðin.
Á þessi mál hafði að vísu verið drepið áður,
en þá þóttu þau fjarstæða. Nú sýndist ýms-
um að prófa mætti þó þessa leið og var
málið fært á almennan umræðugrundvöll.
Um mánaðamótin september og október
var það orðið að veruleika, því að flugvél
frá Flugfélagi íslands var útbúin til þess
að flytja líflömb úr Öræfum — um 600
samtals — að Stóra-Kroppi í Borgarfirði, en
þaðan voru þau flutt á bílum heim til
bænda vestan Hvítár í Borgarfirði.
Og hér er ég í för þessari sem áhorfandi,
er hyggst að geta þess síðar á prenti, hverj -
ar aðfarir eru notaðar við að koma lömb-
um Öræfinga áleiðis til Mýramanna — lif-
b'lulningurinn frá Reykjavík er
sildarmjöl sem Orœfabœndur nota
að vetrinum.
Ljósm.: G. K.