Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.10.1951, Qupperneq 19

Freyr - 01.10.1951, Qupperneq 19
FREYR 305 andi lömbum heilum á húfi. Um undan- farin haust hefir fénu í Öræfum verið slátrað og afurðirnar síðan fluttar loftleið- is til höfuðstaðarins, en nú — nú er það lifandi peningur, gangandi fé, sem um er að ræða. Áður en flutningar hófust voru tveir sendimenn gerðir út frá Mýramönnum til þess að annast fjárkaupin, vega lömbin og skrásetja þau. Voru það Gunnar bóndi á Ölvaldsstöðum í Borgarhreppi og Ólafur bóndi á Litla-Skarði í Stafholtstungum. Átti ég eftir að mæta þeim að starfi þar í Öræfum næsta dag. Nú er ég lentur hér á Fagurhólsmýri, hefi drukkið kaffi og er kominn þar að, sem lömbin eru í haldi, því nú skal lesta. Undir Blesakletti, neðan við Mýrina, hef- ir fjárrétt verið gerð. Lóðréttur stapavegg- urinn er hér á tvær hliðar, en grjótveggur á hinar tvær, en í réttinni eru lömbin, sem bíða farsins um loftin blá. Drengir tveir eru á réttarveggnum og aðstoða við að ná lömbunum þegar starfið byrjar, en frá rétt- inni eru lömbin borin í fanginu að flug- vélinni, um 30 metra vegalengd. Á meðan við drukkum kaffið hafði síldarmjölið ver- ið tekið, svo nú eru stíurnar tómar innan- borðs. En það tekur ekki langan tíma að fylla þær á ný. Röskar hendur grípa lömb- in í réttinni. Þau eru ekki þung, enda fara bændurnir léttilega með þau og í vélinni er þeim raðað í stíurnar. Þungi hvers lambs er þekktur, svo leggja má saman og sjá hve þungur farmurinn er. Fyrstu ferð- irnar voru allt að 100 lömb í ferð, en lömb- in virðast vænni því vestar sem kemur á fjárkaupasvæðið og bændurnir á Fagur- hólsmýri gera ráð fyrir að færri lömb verði í næstu ferðum, því að fjárkaupamennirn- ir hafa gefið í skyn að lömbin séu þyngri í Svínafelli og Skaftafelli en raun var á í Austur-Öræfum. Þessar aðfarir við flutn- ing lambanna þykja í frásögur færandi. Dönsk blaðakona hefir verið með í einni ferð og blað það, er gerði hana út í leið- angurinn, hefir birt myndir og frásögn um atburði þessa, og hér er nú Hollendingur — þó ekki hinn fljúgandi — sem ljósmynd- ar og hyggst segja frá þessum atburðum í heimalandi sínu: hvernig íslenzkir bændur flytja lömb sín landshluta í milli. Hér stendur flugvélin nú á sandinum neð- an við stapann, sem endur fyrir löngu hefir verið sæbrattur sjávarhamar. Undir klett- inum brotnar nú engin alda, því margir kílómetrar eru til sjávar, en hér getur þó að líta vogrek af ýmsu tagi, sem venjuleg- Lömbin standa i réttinni undir Blesakletti og biða farsins til Borg- arfjarðar. Þetta eru spennandi riagar fyrir krakkana. Ljósm.: G. K.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.