Freyr - 01.10.1951, Page 25
FRE YR
311
Verðl agsgrundvöl 1 ur-
inn 1951
1. sept. 1951 — til 31. ágúst 1952..
Eins og kunnugt er á 6 manna nefnd
að finna verðgrundvöll landbúnaðaraf-
urða. Eru þrír nefndarmanna tilnefndir
af stjórn Stéttarsambands bænda, en
hinir þrír af eftirtöldum aðilum: einn
frá Sjómannafélagi Reykjavíkur, einn af
Alþýðusambandi íslands og einn af
Landssambandi iðnaðarmanna. Verði
allir aðilar sammála um verðlagsgrund-
völlinn öðlast hann gildi, ella sker yfir-
dómur úr, þar sem hagstofustjóri er
oddamaður. Hvor aðili fyrir sig getur
sagt verðlagsgrundvellinum upp fyrir
febrúarmánaðarlok ár hvert. Tvö undan-
farin ár hefir verðgrundvellinum ekki
verið sagt upp. Þegar ekki er sagt upp
reiknar hagstofustjóri út verðlagsgrund-
völlinn eftir þeim verðbreytingum, sem
orðið hafa og eftir gerðu samkomulagi
þar um.
Þær breytingar, sem orðið hafa á verð-
grundvellinum frá fyrra ári, eru þessar:
Innlent fóðurmjöl, þ. e. síldarmjöl, fiski-
mjöl og karfamjöl, hefir minnkað að magni
úr 1250 kg í 650 kg og verðið lækkað úr kr.
2.64 á kg í kr. 2.26 á kg.
Útlendur fóðurbætir, maís o. fl., hefir
aukist úr 1500 kg í 1770 kg og verðið hækk-
að úr 1740 kr. í 3929.00 kr.
Tilbúinn áburður má heita að standi í
stað að magni, en verðið hefir hækkað úr
kr. 2.574.00 í kr. 3.074.00.
Viðhald fasteigna hefir hækkað úr kr.
1212.00 í kr. 1454.00.
Kostnaður við vélar hefir hækkað úr kr.
2.022.00 í kr. 2.245.00.
Flutningskostnaður hefir hækkað úr kr.
828.00 í kr. 1104.00.
Kaup bóndans hefir hækkað úr kr.
29.020.00 í kr. 33.306.00.
Aðkeypt vinna hefir hækkað úr kr.
10.820.00 í kr. 12.418.00.
Aðrir liðir gjalda og tekjumegin standa
óbreyttir, svo og frádráttarliðirnir. Alls hef-
ir útgjaldahlið grundvallarins hækkað úr
kr. 51.323.00 í kr. 58.806.00.
Það verð, sem áætlað er að bændur fái
fyrir helztu framleiðsluvörurnar, er: kr.
2.47 fyrir mjólkurlítra, kr. 11.00 fyrir kg af
dilka- og geldfjárkjöti, kr. 12.00 fyrir kg
af gærum, kr. 10.00 fyrir kg af ull og kr.
1.88 fyrir kg af I. fl. kartöflum. Mjólk á
þá að hækka til bóndans frá f. á. um 32 aura
á lítra og kjötið um kr. 1.25 á kg. Það at-
hugist, að hið áætlaða verð til bóndans er
meðalverð.
Hinir einstö.ku liðir grundvallarins eru
fundnir þannig: Innlendi fóðurbætirinn er
það magn, sem selt er frá 1. júlí til 31. júní
ár hvert .Útlendi fóðurbætirinn það magn,
sem inn er flutt frá 1. júlí til 31. júní. Hvort
tveggja deilt með tölunni 6000 (þ. e. tölu
bænda). Innfluttur áburður er tekinn á
sama hátt. Verðið er fundið eftir því verði,
sem hefir verið á þessum vörum hjá fjór-
um stærstu kaupfélögunum: Kaupf. Árnes-
inga, Borgfirðinga, Eyfirðinga og Héraðs-
búa. Viðhald fasteigna eftir þeim breyting-
um, sem orðið hafa á árinu á timbri, þak-
járni og málningu. Kostnaður við vélar,
eftir verðbreytingum, sem orðið hafa á við-
gerðum, varahlutum, benzíni og smurolíu.
Flutningar, eftir þeim breytingum, sem orð-
ið hafa á flutningatöxtum á mjólk og vör-
um hjá fyrrnefndum kaupfélögum. Vinna
bóndans er reiknuð, samkvæmt kaupi
Dagsbrúnarverkamanns í ágúst og aðkeypt