Freyr

Årgang

Freyr - 01.10.1951, Side 28

Freyr - 01.10.1951, Side 28
314 PREYR Til þess að fyrirbyggja misskilning skal þess getið, að ýmsum mundi hafa sýnzt þar flest vera í röð og reglu og þess lítið gæta, að byggingaframkvæmdir stæðu yfir. Ég kem í fjós og mjólkurhús. Ég lít á flest það, sem notað er við hirðingu, mjaltir og mjólkurmeðferð og ég verð að segja frá hlutunum eins og þeir komu mér fyrir sjón- ir. Þarna er ekkert það í útbúnaði, er full- komnara geti talizt en hjá ýmsum þeirra, sem nú eiga ný fjós með tilheyrandi útbún- aði. En það sem þarna er eftirtektarvert — og eftirbreytnisvert — er umgengnin. Fjós- ið er nýtt. Það er byggt úr steinsteypu, klætt innan með asbesti, en stoppað með torfi. Suðurveggur er úr timbri og asbesti, en út- búinn er hann þannig, að gert er ráð fyrir að fjósið verði stækkað þá leið síðar, ef vill. Básar i fjósi eru 12, með timburklæddum pöllum. Flór er 75 cm breiður, stétt 100— 110 cm breið. Alfa-Laval mjaltavél er í fjósinu. í klefa við fjósið fer fram kæling, en í kæliþró rennur vatn úr bæjarlæknum, sem kemur ofan af há-fjalli. — Hitinn í honum leikur á þetta frá fjór- um upp í 13 stig á Celcius, segir Halldór, og spurningu minni um hve fljótt mjólkin komist í kælinn, svarar hann: ■— Við hell- um mjólkinni strax í brúsana og setjum þá í kælinn, en hann rúmar tvo 40 lítra brúsa og fjóra 25 lítra brúsa. Ég sendi nú aldrei mjólk til samlagsins oftan en annan hvern dag og fer þá oftast þriggja mála mjólk, stundum ögn meira, en annars er ekki flutt mjólk að vetrinum nema tvisvar í viku. Héðan eru 3 kílómetrar út á veg, þar sem mjólkurbílarnir koma og taka mjólkina. Þessvegna verður hún stundum að standa um óákveðinn tíma, þvi ekki koma mjólk- urbílarnir alltaf á sömu mínútunni. — En þar standa brúsarnir náttúrlega á palli, varðir fyrir sól og vindi — skýt ég inn í. — Ónei, ekki er það nú, en það virðist nú ekki koma að sök. — En ekki eru kvillar í kúnum þínum, þess mundi fljótt verða vart og mjólkin flokkast eftir því. — Jú, það hefir nú komið fyrir að kýrn- ar hafa fengið júgurbólgu, en þegar það hefir skeð erum við vön að mjalta þær kýr sér og mjólkinni úr þeim er þá ekki bland- að saman við aðra mjólk. Kálfarnir fá hana. Aðeins einu sinni hefir borið á bráðri júgurbólgu, en hún var strax lækn- uð með penicillin-stílum. — En ég sé ekkert sérstakt, sem geti gef- ið tilefni til þess, að mjólk þín flokkast bet- ur en annarra. — Ég veit heldur ekki til þess, að hér séu aðrar aðferðir notaðar en almennt gerist. Við hreinsum mjaltavélarnar á þann hátt sem mælt er fyrir og notum klóramín í dauðhreinsarann. — Og mjaltirnar? — Þær eru framkvæmdar eins og hjá öðrum. Við þurrkum júgur kúnna með vot- um klút, en hann er bara vættur í vatni, og svo er mjaltað eins og gengur. — En mjólkurílátin? — Þau eru æfinlega þvegin úr sjóðandi sódavatni, síðan skoluð með köldu vatni og þar næst með sjóðandi vatni, bæði dunk- ar og fötur, en aldrei þurrkað. Þegar heita skolvatninu hefir verið hellt burt setjum við lokin strax á, svo ílátin standa aldrei opin. Þegar mjólkurílátin koma frá sam- laginu er stundum súr mj ólkurseytill í lögg. Stundum fáum við skyr heim i dunk. Þegar þetta kemur fyrir eru hlutaðeigandi dunkar æfinlega þvegnir úr tvennum sóda- vötnum. Og áður en mjaltir byrja skolum við öll ílát. — Svo þetta eru þá þær aðferðir, sem daglega eru um hönd hafðar og árangur- inn er: alltaf fyrsta flokks mjólk. — O — ekki er það nú. Það kemur fyrir að hún fer í annan flokk, en það er ekki oft. — Nei, það er varla hægt að segja, þegar það hendir ekki einu sinni á ári að með- altali. — Það skeði þó tvisvar á síðasta sumri. En í eitt skipti lenti mjólkin í öðrum flokki og það er mér alveg óskiljanlegt. Það var seinni part vetrar, ég held í febrúar, í stórhríð og frostum. Fyrir mörgum árum kom hún einu sinni í annan flokk, en þá

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.