Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1951, Page 34

Freyr - 01.10.1951, Page 34
320 FREYR sáttarorð á milli ef í odda skarst um skoð- anir, og leita að þeirri niðurstöðu, er bezt varð fundin. Kom þá í góðar þarfir hið glaða og þýða geðslag hans samfara góðri greind og þekkingu. Davíð Jónsson var einlægur og óvenju- legur bjartsýnismaður og virtist sá eigin- leiki, ásamt óbifandi trúnaðartrausti til æðri máttarvalda, fara vaxandi með aldr- inum og líkamlegri hrörnun. Mátti næst- um svo að orði kveða, að honum fyndist, hin síðari árin einkum og til hinztu stund- ar, að árið í ár væri ennþá bjartara og glæsilegra en árið í fyrra. Slík var lífsskoð- un hans og virtist elckert geta haggað henni, livorki andstæðir atburðir eða ellihrörnun, nema síður væri. Hann virtist horfa yfir og út fyrir hin erfiðari fyrirbærin og eygja fremur birtuna og gleðina á bak við þau, þar sem í fjarska blánaði fyrir ströndd hins ókunna lands. Davíð var vel skáldmæltur og orti marg- ar smellnar tækifærisvísur. Þó mun hon- um hafa látið bezt að yrkja erfiljóð eftir látna vini og samstarfsmenn. Kemur þar bert í ljós hin bjarta og einlæga guðstrú hans. í kvæði, sem hann orti nokkru fyr- ir andlátið, og sungið var við jarðarför hans, sem kveðja til vina og vandamanna, segir hann: „Mig á fagnaðarfund leiðir föðurins mund. Gleðjist þér, gleðjast ber, því vor guð hjá oss er.“ Og fagnandi, með hreinu og barnslegu trúnaðartrausti, tók hann í þá hönd. Um bólusetningu gegn garnaveiki Ritstjóri Freys, hr. Gísli Kristjánsson, hefur beðið mig að gefa lesendum blaðsins nokkrar frekari upplýsingar um, hvernig ástatt sé um bólusetningu gegn garnaveiki í sauðfé. Nokkrir lesendur blaðsins munu hafa óskað slíkra upplýsinga, og þar sem ljóst er, að ýmislegur misskilningur er á kreiki um þetta mál, er sjálfsagt að verða við þessari ósk. Þá er fyrst að líta á hver reynsla er af bólusetningu gegn garnaveiki erlendis: í Frakklandi hefur slik bólusetning verið reynd síðan 1925. Þar hafa verið notaðir lifandi garnaveikissýklar af kúastofni. Höf- undar og fyrirsvarsmenn þessarar bólu- setningar þar í landi hafa naumast fært fullar sönnur á gagnsemi hennar, heldur haldið því fram með almennum orðum, sem sinni reynslu, að hún kæmi að haldi. Bólu- efni þetta mun hafa verið allmikið notað öðru hverju ,en í flestum löndum, þar sem garnaveiki hefur verið um langan aldur í stofninum, gerir hún ekki að jafnaði mik- ið vart við sig nema á stöku stað. Það er þessvegna ekki auðvelt að gera sér grein fyrir, hvort bólusetning, eins og þessi í Frakklandi, hefur gert gagn eða ekki, þar sem samanburðartilraunir hafa ekki verið gerðar. Utan Frakklands mun þetta bóluefni lengi vel lítið eða ekki hafa verið reynt, nema hvað Dr. Hagan við Cornell háskól- ann í Bandaríkj unum reyndi það árið 1935. Samkvæmt skýrslu hans sýktust átta af tíu bólusettum dýrum, en sjö af tíu ó- bólusettum. Hinsvegar drápust fleiri af þeim óbólusettu, og Hagan taldi, að öllu at- huguðu, að aðferðin verðskuldaði frekari prófun. Franska bóluefnið er, eins og áður segir, lifandi garnaveikissýklar af kúastofni. Sá stofn er, að því er talið er, ekki til hér á landi. Stofninn, sem hér gerir usla, er sauð- fjárstofn, en hann er frábrugðinn kúa- stofninum i því m. a., að nær ógerningur er að rækta hann utan líkamans, og því ekki hægt að laga bóluefni úr honum. Jafn- vel þótt talið væri, að bóluefni af þessari gerð kæmi að haldi gegn garnaveiki, virð- ist sem það væri fullkomið glapræði að ætla að dreifa þessum lifandi kúasýklum út um allt land í bólusetningarskyni. Nóg er nú tjónið orðið af innflutningi sauðfjár- garnaveikisstofnsins, sem upp á síðkastið hefur jafnvel sýkt nokkuð af kúm, þótt

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.