Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDACUR 14. JÚLÍ2005 Fréttir DV Bílvelta á Þingeyri Bflvelta varð um klukkan fjög- ur í gær rétt við flugvöllinn á Þingeyri. Sam- kvæmt heimildum frá lög- reglunni á ísafirði var öku- maður bflsins fluttur til að- hlynningar á sjúkrahúsið á ísafirði með minniháttar meiðsli. Að sögn lögreglu höfðu þegar verið gerðar ráðstafanir til að fjarlægja bifreiðina, en hún er talin vera mikið skemmd eftir veltuna. Gekk ekki slysalaust Allt virðist meira og minna hafa gengið á aft- ur fótunum við byggingu íþróttahúss á Suðureyri. Haft er eftir Björgmundi Guðmundssyni verktaka að ekki hefði veitt af því að fá prest til að blessa húsið í upphafi verks. „Fyrir það fyrsta hrundi úr hlíðinni ofan í steypu- mót í grunninum. Þá kom stálgrindin allt of seint og þegar gluggarnir í húsið komu voru fjöl- margir þeirra brotnir. Svo slasaðist verkstjór- inn f vor og handleggs- braut sig," sagði Guð- mundur. Sagt er frá þessu á bb.is. Verslunarmanna- helgi? Sigmar Vilhjálmsson sjónvarpsmaður. „Ég held að ég verði bara staddur með frúnni í Dan- mörku, í góðu yfirlæti um verslunarmannahelgina. Ann- ars hefég bara verið hér og þar undanfarnar verslunar- mannahelgar, allt frá þjóðhá- tlö I Eyjum til Reykjavíkur. Við ætlum að taka okkur frí frá sýningunni Bítl í Loftkastalan- um þessa helgi og skella okkur til Danmerkur. Svo vippar maðursér bara aftur í Bltlið þegar maður kemur heim." Hann segir / Hún segir „Ég ætla að vera I Danmörku um verslunarmannahelgina. Það er ekki möguleiki að ég fari heim til þess að fara á úti- hátið, ég er borgarbarn og reyni bara að halda mig I stór- borgum um þessa helgi eins og alltaf. Ég hefaldrei farið neitt þessa helgi þvi ég fíla ekki útilegustemningu. Efég myndi fara I útilegu hérí Dan- mörku þá myndi ég taka tölv- una með mér þvl hér er þráð- laust net á öllum tjaldstæð- um." Katrín Atladóttir tölvunarfræðingur. Fasteignamarkaðurinn sýnir á sér nýja hlið og aðra en fólk hefur átt að venjast að undanförnu. Landsþekktur skólastjóri, stjörnuarkitekt og sonur hótelskóngs eiga í vandræðum með að selja stóreignir sínar í hjarta höfuðborgarinnar. Smáragata 10 Valdimar Jónsson, sonurJóns Ragnars- \ sonar hótelkóngs, vill 85 milljónir fyrir húsið, enda að- staða I kjallara fyrir þjónustu- fólk. Laufásvegur 68 Þorvarður Elíasson og Inga Rósa Sigursteinsdóttir vilja 90 millj- ónir fyrir 313 fermetra höll, sem var áður | íeigu Alberts heitins Guðmundssonar knattspyrnu - og stjórnmálamanns. Smáragata 7 Ögmundur Skarp- héðinsson arkitekt og Guðrún Nor- dal vilja 80 milljónir fyrir 300 fer- metra hús. Fyrstu einkenni lækkunar á fasteignamarkaði eru farin að koma í ljós í hjarta höfuðborgarinnar, 101. Ríkmannlegar hallir sem boðnar eru til kaups á 80 til 90 milljónir króna seljast ekki. Fast- eignasalar bera sig þó vel og segja sumarið alltaf hægja á mark- aðnum og svo séu menn reyndar orðnir svo góðu vanir á undan- förnum mánuðum og bregði því eilítið í brún þegar falleg hús á besta stað rjúka ekki út umsvifalaust. Þrjár hallir á besta stað í miðbæ Reykjavíkur hafa verið á sölulista óeðlÚega lengi miðað við það ástand sem ríkt hefur. Um er að ræða ein- býlishúsin á Laufásvegi 68, Smára- götu 10 og svo Smáragötu 7. Hótelkóngur Á Smáragötu 10 eru settar 85 milljónir króna þótt brunabótamat sé aðeins 29 milljónir króna. „Þetta er virkilega skemmtilegt hús, byggt af miklu rflddæmi árið 1931," segir Hinrik Qlsen á Fast- eignamiðstöðinni. „Á samliggjandi „Þetta er virkilega skemmtilegt hús, byggt afmiklu ríki- dæmiárið 1931." stofum er sams konar gólfdúkur og upprunalega var settur á veislusali Hótels Borgar. I kjallara eru svo vist- arverur fyrir hjú eða þjónustufólk," segir Hinrik, en SmáragatalO er 375 fermetrar ef bflskúr er talinn með. Þar býr nú Valdimar Jónsson ásamt fjölskyldu sinni, en Valdimar er son- ur hótelkóngsins Jóns Ragnarssonar sem lengi var kenndur við Valhöll og Hótel örk. Stjörnuarkitekt og Nordal Handan götunnar búa þau Ög- mundur Skarphéðinsson arkitekt, sem þekktastur er fýrir að hafa teiknað höll Orkuveitunnar uppi á Höfða og Guðrún Nordal, dóttir Jó- hannesar Nordal fyrrverandi seðla- bankastjóra. Húsið er númer 7 og vilja eigendur fá um 80 milljónir fyr- ir það. Húsið er alls um 300 fermetr- ar og teiknað af Gunnlaugi Halldórs- syni arkitekt í fúnkisstfl. Skólastjórinn Þriðja höllin í 101 sem nú er í bið- stöðu á söluskrám fasteignasala er Laufásvegur 68. Þar búa Inga Rósa Sigursteinsdóttir og Þorvarður Elías- son, fyrrverandi skólastjóri Verzlun- Skortur á heimilislæknum hjá Heilsugæslustöðvum Reykjavíkur Löng bið eftir heimilislæknum „Nei, það er ekki er hægt að vera á biðlista eftir heimilis- lækni," voru svörin í afgreiðslunni á Heilsugæslustöð- inni í Efstaleiti. Þar eru dæmi um að fólk hafi búið í hverfinu árum sam- an án þess að fá fast- an heim- ilis- lækni. María Björg Hreinsdóttir býr í Breiðholtinu og faér ekki heimilis- lækni í sínu heimahverfi. „Ég er bara svo heppin að vera heilsuhraust," segir María. Hún flutti í hverfið fyrir tveimur árum og fékk þá neitun þeg- ar hún spurði hvort hún gæti fengið fastan heimilislækni. „Ég fer frekar á læknavaktina í Smáralind ef ég þarf á læknisaðstoð að halda, það skiptir ekki máli fyrst ég er ekki með fastan lækni í mínu hverfi," segir María. „Við komumst ekki yfir að sjá um þessi mál," voru svörin í heilbrigðis- ráðuneytinu, þegar blaðamaður hringdi þangað til að spyrja um skort á heimilislæknum í Reykjavík. „Ástandið er að skána," segir Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir. Matthías viðurkenndi þó að fólk án heimilislækna væri visst vandamál, en að ástandið væri skárra hér en í öðrum löndum. Þess má geta að blaða- maður bjó um árabil í Dan mörku og fékk að velja á milli heim- ilislækna um leið og hann skráði sig inn í landið. ír n L I m dórsson „Skortur á heimilislæknum er visst vandamál." arskólans. Vilja þau hjón fá 90 millj- ónir fyrir eignina sem er 313 fer- metrar. Á þald eru norskar steinflísar og í stigagangi fimm fermetra steindur gluggi eftir Gerði Helga- dóttur. Flott hús sem Albert Guð- mundsson, fyrrum fjármálaráðherra og stofnandi Borgaraflokksins, bjó lengst af í. Lækka verðið! Fasteignasalar eru sammála um að eignir seljist aldrei á hærra verði en einhver er tilbúinn til að greiða fyrir þær. Hvort verðlagning á þess- um þremurhúsum í 101 sé of há geti enginn svarað annar en markaður- inn sjálfur. Treg sala bendi eingöngu til þess að lækka verði verðið um tíu til tuttugu prósent og sjá viðbrögðin við því. Fannst eftir leit Leitað var að manni á Esjunni á þriðjudaginn. Maðurinn, sem er 65 ára, var talinn hafa týnst uppi á Esju og lögðu því tugir manna og björgunarhundar af stað í leitina. IGukkan tíu um kvöldið fannst maðurinn þó kaldur og þrekaður. Hann hafði sjálfur komist niður af fjallinu við illan leik. Leitin var afar umfangsmikil því allar björg- unarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru í startholunum. Á hverju ári lendir fólk í vandræðum á Esj- unni, enda allra veðra von þar þótt fjallið sé stutt frá bænum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.