Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 14.JÚÚ2005 Síðast en ekki síst DV Missti vinnuna út af öryggisgleraugum Austurglugginn segir frá því í dag að Austfirðingurinn Guðmundur Ástþórsson hafi misst vinnu sína hjá Olíudreifingu á Austurlandi um síð- ustu áramót. Þegar blaðamaður DV hafði samband við hann sagðist hann hafa fengið umslag frá fyrir- tækinu sem hann átti ekki von á. Við opnun þess kom í ljós að umslagið innihélt uppsagnarbréf. „Ég var mjög hissa á að fá þessa jólagjöf frá þeim," segir Guðmundur. Öryggisgleraugnaleysi Guðmundar inni á vinnusvæði hafði þau áhrif að hann fékk uppsagnar- bréf. „Ég var stoppaður af öryggis- fulltrúa og var ekki með gleraugun á Ha? Reyðarfjörður Unnið er að byggingu álvers. mér á svæðinu. Mér hafði ekki verið sagt á öryggisnámskeiði fyrirtækis- ins að ég þyrfti að nota gleraugu inni í olíubilnum, það er ekkert ryk þar,“ segir Guðmundur. Hann segir að í framhaldinu hafi honum verið meinað að fara inn á svæðið. „Það er greinilega eitthvaö sérstakt ryk þama, dínamítryk eða eitthvað," segir hann. í október var honum gert að skrifa afsökunarbréf til Bechtel. „Það sem varð mér svo endanlega að falli var að mæta korteri of seint í viðtal.“ Milli jóla og nýárs fékk hann eins og áður segir sent uppsagnarbréf í jólá- gjöf. Honum þykja skiptin ekki jöfn, enda heyrist það sjaídan að fólk skipti á afsökunarbréfi og uppsagn- arbréfi. Hvað veist þú um Hafnarfjörð 1. Hvað heitir bæjarstjóri Hafnarfjarðar 2. Hvað eru Hafnfirðingar kallaðir? 3. Hvað heitir hverfiskráin í Hafnarfirði þar sem maður var hogginn með exi? 4. Hvað búa margir í Hafn- arfirði? 5. Hvaða tvö íþróttafélög eru í Hafiiarfirði. Svör neðst á síðunni Hvað segir mamma? „Núerég stoltasta móðir norðan Alpafjalla," segir Auður I. Ottesen, móðirrauð- hærðasta manns ís- lands, Hálf- dáns Marðar Gunnarssonar. "Þegar hann kom I heiminn kom mér það ofboðslega á óvart að eignast rauöhærðan dreng, og enn meira á óvart að hann skyldi vinna titilinn. Hann er mitt eina barn svo ég veit ekki hvort ég hefði eignast fleiri hárliti. Mér hefur enn ekki verið boðið með til írlands, en ég myndi gjarnan vilja að hann færi með einhverjum rauðhærð- um, það væri best. Hálfdán er samt lít- ið fyrir visklið svo það erýmislegtsem hann fær ekki frá Irunum. Hann getur samt vel sungið og er mjög mælskur, það má hann eiga. Svo er hann með ofboðslega mikla skipulagshæfileika og er mjög ráðrlkur. Svo hefur hann vakið mömmu sína inn I nútímann." Hálfdán Mörður Gunnarsson hlaut um helgina titilinn rauðhærðasti ís- lendingurinn. Hann vann keppni í þeim flokki á irskum dögum á Akranesi. Hann vinnurnú að útgáfu tímarits og hefur einnig samið drög að skáldsögu. Hann mun fara á næstu dögum til Dyflinnar á írlandi i boði, en það voru verðlaunin fyrir háralitinn. Gott hjá starfsfólki kvennafangelsis I Kópavogi aó láta Isafjaróar-Beggu ekki vaóayfirsig. 1. Lúðvík Geirsson 2. Gaflarar 3. A. Hansen 4.22 þúsund manns. 5. FH og Haukar. Isleifur missir svetn Ekki vegna deilna nm Snoop Kristín Tómasdóttir mætti í gær til leiks með femíníska hugsjón á öldum ljósvakans gegn röppurun- um Dóra DNA og Badda í Forgotten Lores. Ástæðan er, eins og margir vita, koma rapparans víðffæga Snoops Dogg hingað til lands. Það sem ef til vill hefur gleymst í umræð- unni er þeir aðilar sem flytja inn Snoop Dogg, fyrirtækið Event. “Ég sá þetta alls ekki fyrir," segir ísleifur Þórhallsson, framkvæmda- stjóri Event. Hann botnar hvorki fsleifur Þórhallsson Sá ekkert fyrir um deil- ur vegna Snoops en sefur þó um nætur. upp né niður í því fári sem komið er upp í fjölmiðlum vegna tónleikanna, en fagnar þó röklegri umræðu um málið. “Þegar 50 cent kom hingað til lands sagði enginn neitt. Hann er miklu meiri glæpon," segir hann. Grunnrök femínista eru þau að með tónleikunum sé verið að bjóða óhörðnuðum unglingum upp á morð og nauðganir, meðal annars með grófum textasmíðum og fortíð tónlistarmannsins. Kristín Tómasdóttir Gengur fyrirhópi fem- Inista sem vilja ekki Snoop á klakann. ísleifur segist einungis þekkja Snoop af hinu góða; úr grínmynd- um, MTV og þáttum eins og Satur- day Night Live og Jay Leno. „Það er verið að máia skrattann á vegginn í þessu," segir hann, þar sem það sé á valdi foreldra óharðnaðra ung- linga hvort þeir sjái tónlistarmanninn eða ekki, „Ef hann væri rithöfund- ur og gæfi út bók eða væri listmálari sem málaði myndir væri tekið öðru- vísi á þessu. Munurinn er sá að Snoop er listamaður sem kemur úr gettó- inu." Aðspurður hvemig hann sofi á nóttunni, með það á bak- inu að vera maðurinn á bak við deilurnar segir hann það vera lítið mál. „Ég sef lítið út af undirbúningi en ég missi ekki svefn út af deiiunum." gudmundur@dv.is Snoop Dogg Fem- ínistar segja hann breiða útslæman mál staó. fsleifur þekkir hann bara afgóðu. Islendingar kaupa hjólhýsi grimmt Rúv sagði frá því í gær að mikil aukning sé orðin í sölu hjólhýsa hér á landi. Frá ámnum 1993 til 2003 vom að meðaltali skráð 20 ný eða notuð hjólhýsi árlega hjá Umferðar- stofu. Árið 2003 jukust skráningar upp í 38 og í fyrra varð mikil spreng- ing þegar 147 hjólhýsi voru skráð hjá Umferðarstofu. Tjaldvagnar og fellihýsi virðast vera að þróast út í hjólhýsamenningu hér á landi. Menn velta vöngum yfir því hvert ísland stefni í hjólhýsamálum, hvort ísland komi til með að stofna hjólhýsahverfi, eins og tíðkast vfða í Bandaríkjunum og ganga undir | Hús á fiutningi Hús í Bandarfkjun- um bíöur flutnings I nýtthverfi. heitinu „trailer park". íslend- ingar virðast á hinn bóginn misskilja er- lenda heitið, og kalla hverfin í Bandaríkjunum hjólhýsahverfi, en bein þýðing væri í fljótu bragði eftirvagns-hverfi. "Þetta er algjörlega tvennt ólíkt," segir Arnar Barðdal, hjá Vík- urverki. Hann segir hjólhýsamenn- inguna hér á landi vera tengda Hjólhýsi á (slandi Svona lítur hefð- bundiö hjólhýsi út. aðstæður hér heima vera aðrar en úti. „Þetta er miklu meiri lúxus héma, þú getur feng- ið allt í þau hér." Hjólhýsa- Jí ' \ hverfi hef- ferðalögum og því að njóta náttúmnni. „Hér ferðast fólk á milli staða, en úti býr fólk í hjólhýsum sem plantað er niður í hverfi og hreyfas.t þau ekki þaðan f nokkur ár.“ Hann segir urþólöng- um verið á Laugarvatni, en það er einnig mjög ólíkt hverfum Bandaríkjamanna, þar er fólk ein- ungis yfir sumarið og nýtur góða veðrisins. „Hér heima er þetta ferðavagn, en úti heimili," segir Amar. Lárétt: 1 naust,4 kynd- ill,7 konungur,8 auð- uga, 10 aur, 12 nár, 13 ritfæri, 14 böggl, 15 eyði, 16 heiti, 18 kropp,21 út- hverfu,22 stinn,23 kæpu. Lóðrétt: 1 glaður, 2 beiðni, 3 enni, 4 gabb, 5 aðstoð, 6 sigti, 9 vömb, 11 kantur, 16 skagi, 17 leyfi, 19 for, 20 fataefni. Lausn á krossgátu nej 07'-*ne 61 'jg L i 'sau 91 'jbqbí 11 'ejjsj 6 'ejs g 'Qj| s 'n6ui>|>j3|q þ 'iQus||efj £ '>|sp z 'Jáq i :jjajQO| nun £Z 'IJJS ZZ 'n6uoj iz 'JJeu 81 'ujeu 91 'J9S s i '|Qn>( y i jjjs £ L '>|!| 2 L eÍQa o l 'e>|jJ 8 'ilPfs / 'sA|q y 'jojq t :jjajeq m&íi'j þour \j\05!ö0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.