Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Síða 11
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 14. JÚU2005 11
Systir Gísla Þorkelssonar segir Qölskylduna vera að takast á við áfallið vegna morðsins á Gísla.
Hún hitti Gísla síðast þegar hann kom til Bandaríkjanna í heimsókn til hennar ásamt syni sínum.
Fjölskyldan syrair Gísla Þorkelsson
„Þetta er hrikalegt. Öll fjölskyldan er í sjokki," segir Þórkatla
Donnely, systir mannsins sem var myrtur á hrottalegan hátt
í Suður Afríku. Maðurinn hét Gísh Þorkelsson. Iik hans
fannst steypt í öskutunnu á sunnudaginn. Borin voru kennsl
á líkið í gær.
„Gísli var yngsti bróðir minn.
Hann var í heimsókn hjá mér
ásamt syni sínum í maí,“ segir
Þórkatla, sem býr Pensylvaníu í
Bandaríkjunum. Hún segir Gísla
hafa geislað af gleði; þeir feðgamir
hafi teflt og notið lífsins í faðmi
fjölskyldunnar. „Hann fór svo aft-
ur til Afríku þann 24. maí. Það síð-
asta sem hann sagði var að kunn-
ingjafólk hans hefði boðist til að
sækja hann út á völl og keyra hann
heim."
Þetta sama kunningjafólk er nú
í gæsluvarðhaidi vegna morðsins.
Tefldu í kvöldsólinni
Þórkatla segir Gísla alltaf hafa
líkað vel við Afríku. Þar hafi hann
búið síðustu tíu ár. „Gísli ferðaðist
mikið um ævina og ákvað að lok-
um að setjast að í Afríku. Hann
hefur ekki verið giftur en eignaðist
son sinn ungur að árum. Þeir eru
líkir feðgarnir; bráðgáfaðir og
fróðir og miklir áhugamenn um
skák. Þegar Gísli bjó á íslandi
keppti hann í skák þegar hann var
„Maður hafði heyrt af
þessum glæpum í
Suður Afríku en þetta
er virkilega ógeðfellt.
Það gerir þetta svo
enn verra hvernig
farið varmeð líkið."
yngri. Þegar þeir komu hingað til
mín í heimsókn tefldu þeir
feðgamir á pallinum hjá mér í
kvöldsólinni."
Örlagaríkt símtal
Gísli rak fyrirtæki í Afríku og var
nýbúinn að selja hús sitt þegar
hann var myrtur. „Hann fékk
ágætis verð fyíir raðhúsið og ætl-
aði að finna sér annan stað. Pen-
ingarnir vom allir í banka. Ætli
fólkið hafi ekki verið á eftir þeim,“
segir Þórkatla sem fékk örlagaríkt
símtal á þriðjudaginn. „Lögreglan
Gisli Þorkelsson og Þórkatla
Donnely systir hans LátGísla
hefur fengið mikid a fjölskylduna.
í Suður-Afríku hringdi í mig og lét
mig vita að þetta væri Gísli. Lík-
lega hefur hann haft símanúmerið
mitt á sér. Ég fékk áfall. Trúði varla
því sem hann sagði.“
Eins og í glæpamynd
Á tilkynningum frá lögreglunni
í Suður-Afríku hefur mátt skilja að
Gísli sé frá Vestmannaeyjum.
Þetta segir Þórkatla að sé rangt.
Hann hafi búið í Kópavogi en son-
ur hans í Vestmannaeyjum.
Þórkatla segir hræðilegt hvern-
ig farið hafi verið með bróður
hennar. „Maður hafði heyrt af
þessum glæpum í Suður-Afríku en
þetta er virkilega ógeðfellt. Það
gerir þetta svo enn verra hvemig
farið var með líkið. Þetta er líkast
einhverri glæpamynd," segir Þór-
katla sem tekur einn dag fyrir í
einu f sorginni.
simon&dv.is
TIL SÖLU OG SÝNIS
að Auðbrekku 24 Kópavogi
Heitir rafkynntir og hitaveitukynntir pottar, með stýrikerfi, nuddi,og hreinsibúnaði.
Einnig fáanlegt fullkomið stjórnkerfi frá Kjörorku ehf, fyrir hitaveitukynnta potta.
kr. 339.000 kr. 348.000 kr.379.000 kr.384.000
Stöðugur kjörhiti
Tölvustýrt kerfi Kjörorku
tryggir ávallt stöðugan
kjörhita laugarvatns
uppá brot úr gráðu.
39.
8löndunarhiti\
39C
Valtn potthft*
37»39
Vaiiö hitastig i potti
Start
Kveíkir á potti
Naeturh Frostv
Hítastig potts tO gr.
Fvlla/Ta&ma
Pott
ítthrti
pqw^mcT rat »*
BtóncKxwwrúU
F>**tt**yi Tm?
« »
StodvaOur
Rautt l|ós
, /VíOvorun á
Grœnt liOs
Stýring á
Kaltvatn
Ál 10-45 mldtur
Skoöa
‘ViOvorun á skoOa
aöaiskjá 5 sek
Nevsiuvatn
Tœmt at viO brottfor
KJÖRORKA
Auðbrekka 24 Kópavovur
Slml: 487-8000 - 892-4600
Netfang: kjororka@kjororka.com Heimasíða: WWW.kjororka.com