Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 14.JÚLÍ2005
Sport DV
I Doktorinn
I Shaquille
O'Neat hefur
[ bætt menntun
i vopnabúr sitt
ogerorðinn
snobbaður.
Bandaríkin á
sigurbraut
Bandaríska kvennalandsliðið
heldur áfram sigurgöngu sinni og 1
vikunni vann það sinn áttunda
landsleik sinn í röð með því að
valta yfir Úkraínu í vináttulands-
leik sem fram fór í Portland í Or-
egon. Við vonumst þó eftir að
þessari sigurgöngu Ijt'tki hjá þeim í
næsta leik sein er
gegn íslandi sunnu-
r ’daginn 24. júlí í Car-
‘ son í k'alifomfu. ís-
land og Bandaríkin
y y , mætast þá í þriðja
^ ' sinn á innan við
B einu ári, en þessi
\ sömuliömættust
einmitt í tveimur
vinátmlands-
leikjum í lok
september í
iyrra. A-Iandslið
kvemia hefur alls
leikið sjö sinnum
gegn Bandaríkj-
unuin, gert eitt
jafntefli en tapað
j hinum leikjunuin.
' Bandaríska liðið
I i varð Ólympíu-
í : meistari f f>Tra og
\ \ hefur ekki fengið
! á sig mark í þeim
r' \ sex leikjum sem
] - það hefur leikið á
l árinu.
Viktor stiga
hæstur í 10.
umferð
Viktor Bjarki Amarsson, leik-
maður Fylkis, var stigahæstur allra
leikmanna Landsbankadeildar-
innar í 10. umferð í draumaliðs-
leiknum á draumadeildin.is. Vikt-
or hlaut átta stig í umferðinni en
næstir á eftir honum
t ‘ komu fjórir leikmenn
\ . ,, með sex stig. Það
vom markverð-
/ & \ irnir Daði Lár-
i \ V usson úrFH,
5 lúistins- '
' son hjá ÍBV og
! Kjartan Sturluson
_ __i_:i_______x
»X* sem leikur með Val
ásamt lan Jefis
k leikmanni ÍBV. Einherji nr. 1
", var stigahæsta lið umferðar-
■' innar f leiknum með alls 50
stig en þar á eftir kom Uinp Bizkit
með 48 stig.
Menn
leiksins hjá
OgVodafone
Áhorfendur á leikjum Lands-
bankadeildar karla geta valið
mann leiksins með því að senda
SMS í símanúmerið 1900. Glæsi-
legir vinningar em í boði í þessum
leik sem OgVodafone
stendur fyrir en
meöal vinn-
inga er Nokia
3230mynda-
vélasími og W
Qarstýrður VOdafOn<
Ferran-bíll. 1
10. umferð-
inni var Ólafúr
Páll Snonason val-
inn maður leiksins í sigri FH á
Keflavík, Birkir Kristinsson mark-
vörður ÍBV í leiknum gegn Fram,
Viktor Bjarki Amarsson fyrir frá-
bæra frammistöðu með F'yiki gegn
KR, Magnús Már Lúðvíksson hjá
Þrótti í jafhteflisleik gegn ÍA og í
viöureign Grindavikur gegn Val
var það Matthías Guðmmidsson
sem valinn var inaður leiksins en
hann skoraði sigunnark Vals í
leiknum.
Sagt er að allir milljarðarnir hans Romans Abramovich nái að búa til aðdráttarafl
sem gerir félagsskipti til Chelsea ómótstæðileg fyrir nær alla leikmenn heims.
Hvít-Rússinn Alexander Hleb er undantekning frá reglunni en hann skrifaði loks-
ins undir samning við Arsenal í gær.
Ég Iralði ekki áhuge á
aö fana til Chelsea
Það var loksins í gær sem bundinn var endi á margra vikna við-
ræður á milli forráðamanna Arsenal og Stuttgart um kaupverð á
Alexander Hleb, miðjumanninum frá Hvíta-Rússlandi, sem sló í
gegn með Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í fyrra. Hinu upphaf-
lega 8,5 milljón punda tilboði Arsenal var hafnað af Stuttgart
sem varð einmitt til þess að Chelsea gerði sig líklegt til að stela
Hleb af Arsenal á síðustu stundu með ómótstæðilegu gylliboði.
Hleb var hins vegar löngu búinn
að gera upp hug sinn. Hann vildi fara
til Arsenal og áhugi Chelsea skipti
hann engu máli. Að lokum komust
félögin að samkomulagi um kaup-
verð upp á 10,7 milljónir punda og
vom samningar loks handsalaðir í
gær.
Stóð við loforðin
„Chelsea sýndi mikinn áhuga og
ég er mjög upp með
mér vegna þess. Þeir
em, eins og árangur
þeirra á síðustu
leiktíð sýnir, algjört
toppfélag með
stórkostlegan leik-
mannahóp og þjálf-
ara en ég var löngu búinn að
ákveða að fara til Arsenal,“ segir hinn
24 ára gamli Hleb, sem hefur á síð-
ustu ámm þótt einn mesti spenn-
andi miðjumaður í þýsku deildinni.
„Ég er á því að Arsenal henti mér
mjög vel og sá mikli áhugi sem
Arsene Wenger hafði á mér skipti
miklu máli. Eg gaf þeim loforð mitt á
sínum tíma og það var engin ástæða
til að ganga á bak þeirra orða,“ bætti
Hleb við.
Wenger sannfærði mig
Hleb kveðst hlakka mikið til þess
að hefja leik í ensku úrvalsdeildinni
og telur hann þann bolta sem er spil-
aður í henni henta sér nokkuð vel.
Hleb þykir afar fjölhæfur og flinkur
miðjumaður sem er vanur að spila
fyrir aftan framherjana eða á vinstri
kanti. Hæfileikarnir em svo sannar-
lega fyrir hendi. Hleb er fljótur með
afbrigðum og fáir knattspyrnumenn
í heiminum í dag hafa jafn gott vald á
boltanum og Hleb þegar hann er
kominn á fulla ferð.
Á síðustu leiktíð lagði enginn upp
jafn mörg mörk og hann í Þýskalandi
- hann átti alls 14 stoðsendingar, en
upp við mark andstæðinganna vom
honum heldur mislagðir fætur þar
sem hann skoraði aðeins tvö mörk.
„Ég heimsótti Arsenal í lok síðasta
tímabils og sá leik liðsins gegn Liver-
pool. Stemningin var ólýsanleg og ég
fékk gæsahúð langt niður á bak. Ég
get ekki beðið eftir að ganga út
á völlinn sem
leikmaður
Arsenal,"
segir Hleb og
bætir við að
hann hlakki
mikið til að
vinna með
Arsene Wenger.
„Það tók mig ekki langan tíma að
sjá að Wenger er rétti þjálfarinn fyrir
mig,“ segir Hleb. „Hann rökstuddi
fyrir mér hvert hann stefndi með fé-
lagið og útskýrði fyrir mér markmið
og ffamtíðarsýn þess. Ég var ekki
lengi að sannfærast og ég er alveg
viss um að hann mun gera mig að
betri leikmanni."
þeim sjálfur. Þetta er bara eitthvað
sem er mér í blóð borið.“
Hleb segist munu njóta góðs af
því að spila með betri samherjum
hjá Arsenal en hjá Stuttgart, þar sem
það hafi iðulega verið hann sem var
skotmark andstæðinganna í leikjum
Stuttgart í fyrra. „Lappirnar á
mér voru þaktar mar-
blettum eftir hvern
. einasta leik í Þýska
landi. Það er ótrú-
legt hvað
mótherjarnir
komust upp
með að sparka í
mig. Hjá Arsenal
em aðrir leik-
„Ég á að
skorameira
og það er
þáttur í mín-
um leik sem
ég er að virtna
að"
menn sem andstæðingarnir reyna
ffekar að stöðva. Það þýðir að það
mun losna um mig og gefa mér meiri
tíma með boltann. Það verður góð
tilbreyting ifá því sem áður var,“ seg-
ir Hleb.
Heimild: Soccernet
Meiri tími í Englandi
Hleb segist vel meðvitaður
um eigin getu og er ekki sáttur
við sína frammistöðu með
Stuttgart í fyrra. „Ég á að skora
meira og það er þátmr í mín-
um leik sem ég er að vinna að,“
viðurkennir Hleb sem hefur
aðeins skorað 13 sinnum í 137
leikjum í úrvalsdeildinni í
Þýskalandi. „Allt frá því ég var lít-
ill strákur hafa samherjar mínir
haft forgang. Ég reyni alltaf að búa til
færi fyrir aðra áður en ég leita að
Alexander Hleb
Býryfirmiklu
jafnvægi þegar
hann erkominná
ferðinameð
boltann og eiga
varnarmenn
iðulega í mestu
vandræðum með
aðnáafhonum
boltanum.
Shaquille O’Neal baunaði á nýliða LA Lakers í vikunni.
Doktor Shaq er snobbaður
Miðherjinn Shaquille O’Neal
kom fram í sjónvarpsþætti í Los
Angeles í vikunni, en hann lék sem
kunnugt er með liði Lakers þar í
borg um árabil. Þegar upp úr
sauð á milli hans og Kobe
Bryant á sínum tíma,
fór hann frá liðinu í
fússi og settist að í
sólinni á Flórída á ný.
Þegar fjölmiðlar í
Los Angeles spurðu
hann hvað honum
þætti um mennta-
skólastrákinn
Andrew Bynum, sem
Lakers valdi í nýliða-
valinu á dögunum,
stóð ekki á svörunum frekar en
venjulega.
„Segið honum að Shaq virði
ómenntaða vandræðaunglinga ekki
viðlits," sagði hann. „Segið honum
að afla sér menntunar fyrst, þá getur
hann talað við mig. Þangað til getur
hann kallað mig Doktor Shaq, því ég
er að skrifa doktorsritgerðina mína,"
sagði tröllið.
O’Neal útskrifaðist nýverið með
mastersgráðu frá háskólanum í
Phoenix og stefnir á að ljúka dokt-
orsnámi í sálfræði, afbrotafræði eða
íþróttasálfræði. Menntun hans virð-
ist hafa gert hann að mennta-
snobbara því í kjölfarið er hann far-
inn að kalla sig Doktor Shaq, en það
yrði þá ekki í fyrsta sinn sem hann
tekur upp nýtt viðurnefni.
O’Neal var í framhaldinu spurður
hvernig gengi í samningaviðræðun-
um við Miami Heat, þar sem mein-
ingin er að framlengja núverandi
samning hans, sem hann undirritaði
upphaflega sem leikmaður Los
Angeles Lakers.
„Við gerum okkur grein fyrir því
hvaða vægi ég hef hjá liðinu og fyrir
okkur er þetta bara spurning um að
komast að fagmannlegri niðurstöðu
í málinu," sagði O’Neal, sem að öllu
óbreyttu hefði unnið sér inn hvorki
meira né minna en þrjátíu milljónir
dollara á næsta tímabili.
baldur@dv.is