Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 14.JÚLÍ2005
Sport DV
I
í
I
I
I
juruLirmii luj
sís ssssr
sssií3sr^»“
«*íií
Liverpool vill
Milito
Spænska liðið Real Zaragoza
segir að vamarmaðurinn Gabriel
Milito sé ekki tii sölu. Rafael Beni- |
tez, framkvæmdastjóri Liverpool,
kom með tilboð uppá u.þ.b. 7,5 |
milljónir punda fyrir þennan 24
ára argentínska landsliðsmann.
Evrópumeistarar Liverpool eru i
leit að liðsstyrk í vömina hjá sér en
Milito var nálægt því að ganga tii
liðs við Real Madrid
fyrir tveimur ^
m
]
ámm. Það
strandaði síðan á
því að leik- '
maðurinn
átti við
meiðsli að
stríða i hné.
„Hann er
mjög mikil-
vægur fyrir lið-
ið og við viijum
ekki selja hann.
Við erum búnir að
bjóða honum nýj-
an þriggja ára
samning. Ég er
bjartsýnn á að
samningar náist"
sagði Miguel Pardeza, stjómar-
maður hjá Real Zaragoza. Milito er
sem stendur í heimalandinu,
Argentínu, þar sem hann er í sum-
arfríi.
Ðerfey kemur
til Akranesar
Hið fomfræga enska knatt-
spymulið, Derby County, leikur
æfingaleik við Landsbankadeild-
arlið ÍA á Akranesvelli næsta
þriðjudag klukkan 19. Þessi heim-
sókn Derby hingað til lands er
hluti af tmdirbún
ingstímabili fé-
lagsins fyrir
enska keppnis-
tímabilið sem ,
hefst í ágúst. Ðer- j
by varð Eng- ,
lands- j
meistan
1972 og
1975 en
það lék til
úrslita um úr-
valsdeildarsæti
sfðasta vor. Framkvæmdastjóri
liðsins er Phil Brown sem er nýtek-
inn við liðinu en hann hefur tmd-
anfarin ár verið aðstoðarknatt-
spymustjóri hjá úrvalsdeildarlið-
inu Bolton Wanderers. Vonast er
til að heimsókn Derby sé aðeins
byijunin og að ensk lið fari f ríkari
mæli að heimsækja ísland til að
leika æfingaleiki á undirbúnings-
tímabili sínu.
Nýr þjálfari
hjá Parma
Mario Beretta hefur verið ráð-
inn nýr þjálfari ítalska liðsins
Parma. Beretta var rekinn frá Chi-
evo seint á síðasta tímabili eftir að
liðið var komið niður í fallsvæðið.
Það kom þó ekki í veg fyrir áhuga
Parma en félagið var sjálft í mikÖli
fallbaráttu á síðasta leiktfmabili en
náði að bjarga sér með þvf að
leggja Bologna í umspili. Beretta
er 45 ára og á vandasamt verk fyrir
höndum enda er Parma í mjög
slæmum málum fjárhagslega og
ljóst að haim mun ekki hafa fúllar
hendur fjár þegar kemur að leik-
mannakaupum. Carmignani sem
stýrði Parma seinni hluta sfðasta
tímabils mun nú snúa sér að þjálf-
un hjá unglingaliði félagsins.