Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Page 40
PfáZtctíJíOt Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^jnafnleyndar er gætt. q r-> Q cj Q SKAFTAHLlÐ24,105ftEYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMiSSÐSOOO 690710 111117 $ Steindór Andersen kvæðamaður var brattur á þjóðlaga- hátíð sem haldin var á Sigluflrði um síð- ustu helgi. Kom hann þangað akandi í bíl með reiðhjól í skottinu og var ekki fyrr bú- inn að troða upp en hann yf- irgaf bæinn með stefnuna á Strandir. Þar tók hannhjól- ið úr skottinu og sást síðast til hans hjóla fyrir Horn- bjarg með stefnuna í há- norður. Meðal gesta á þjóð- lagahátíðinni var Bjöm Jör- undur, tónlistarmaður og fyrrum ritstjóri, ásamt for- eldrum sínum, en hann er ættaður frá Siglufirði... í kartöflugörðunum heima! Ekkert Þjoðhatiöarlajg nogu ptt Hreimur og Vignir bjárga malinu „Þetta er svona eins og með út- boð, ef ekkert tilboð er nógu gott er öllum hafnað. Hjá okkur var þetta svipað," segir Tryggvi Már Sæ- mundsson hjá Þjóðhátíðarnefnd. Þjóðhátíðamefnd stóð fyrir keppni í lagasmíðum og hugðist velja eitt lagið sem opinbert lag Þjóðhátíðar í Eyjum. í staðinn fyrir að velja eitt aðsent lag fékk Þjóðhátíðamefndin Hreim Öm Halldórsson, söngvara úr Landi og sonum, og Vigni Snæ Vig- fússon, gítarleikara í írafári, til þess að semja lagið. Tryggi segir lagið vera ferskt. „Ég er nýbúinn að fá demóið í hendurnar og get ekki ann- að sagt en að það sé mjög gott. Per- sónulega flnnst mér það betra en í fyrra, þetta er meira stemningslag sem hentar vel á Þjóðhátíð. Aðsendu lögin vom ekki nægilega mikil stemningslög." Tryggi segir Þjóðhátíðarnefndina ekki þurfa að borga Hreimi og Vigni sérstaklega fyrir lagið. „Við sjáum um að borga hljóðverskostnað en þeir fá STEF-gjöldin. Þeir munu svo koma hingað til Eyja og flytja lagið." Árni Johnsen mun sem fyrr vera í aðalhlutverki á hátíðinni og fékk hann að vera með í ráðum varðandi lagið. „Ámi var sammála okkur í nefndinni að ekkert þeirra laga sem bámst til okkar væri nógu gott. Hann hefur þó ekki enn heyrt lagið sem Hreimur og Vignir em að semja." Hreimur Halldórsson vildi ekki kannst við að þeir félagar hefðu ver- ið beðnir um að semja Þjóðhátíðar- lagið. „Við vomm bara beðnir um að senda lag inn í keppnina, allir eiga kost á því að gera slíkt." í fyrstu ætluðu þeir að vinna gmnn- inn að laginu f sameiningu. „Vignir lá á rosalega góðum gmnni að lagi svo við ákváðum að nota hann. Ég fór því bara í textavinnu. Þannig höfum við unnið þetta lag. Þetta lag er meira „akústískt" miðað við lög und- anfarinna ára ■ sem hafa verið meira „epísk". ' Við ætlum að reyna að skapa ,svona útilegu stemningu. Hafa þetta fyr- ® ir fólkið í tjöld- unum," segir Hreimur. Sólstrandastemming á Austurlandi Sólarkremið rennur út í Lyiju og hvert að- sóknarmetið á fætur öðm er sett í sundiaug Egilsstaða þessa dag- ana. „Við fáum 800-900 manns á dag í sund þeg- ar veðrið er svona gott," segir Bjöm Benedikt Benediktsson, starfs- maður sundlaugarinn- ar. Tfl samanburðar má nefna að á venjulegum degi er fjöldinn 300. f Lyiju á Egilsstöðum fengust þær upplýsingar að mikið væri selt af sólarvöm þessa góðu sumardaga. „Sumir em komnir með sólarexem og þeim er bent á að kaupa sér gott „aftersun"," segir af- greiðslustúlka í apótekinu. Að sögn starfsstúlkunnar er mikið um ferða- menn á svæðinu sem njóta veður- blíðunnar. „Hér er margt fólk og margir að elta góða veðrið," segir Sigríður Dóra Hafldórsdóttir starfsmaður á tjald- svæðinu á Egils- stöðum. „Hér var íþróttamót um _____________ helgina og því mikfl stemning, segir hún. Dóra giskar á að á annað hundrað manns gisti tjaldstæðið í nótt. „Hér em allir hálfberir og flat- maga á tjaldstæðinu," segir Dóra í sumarskapi. ferðalangar flykkjastí sólina fyriraustan Kári hagnast Verðmæti eignar Kára Stefáns- sonar í fyrirtækinu DeCode hefur aukist um það sem nemur rúmlega 325 milljónum frá því á sama tíma fyrir ári, ef gert er ráð fyrir því að eignarhlutur Kára hafi verið sá sami á þeim tíma. Gengi bréfana var 9,81 dalur þegar hlutabréfamarkaður Nasdaq var skoðaður í gær en fyrir ári síðan var gengið 7,9 dalir. Hins vegar ef litið er á eign Kára þegar gengi bréfanna var sem lægst síðast- liðið ár er aukningin mun meiri eða um 802 mflljónir króna þegar gengi bréfanna stóð í 5 dollurum þann 15. apríl. Ef marka má heimasíðu Nas- daq á Kári 2625,292 hluti í fyritækinu sem hefur þó lækkað aðeins síðast- liðna tvo daga. Hækkanimar sem hafa verið nokkuð stöðugar síðastliðna tvo mánuði em taldar vera vegna já- kvæðra rannsókna og niðurstaðna lyfjaþróunar hjá fyritækinu. Því em væntingar fjárfesta um að jákvæðra Mikil hækkun. Kári Stefánsson geturglaðst þessa dagana þvl bréfhans I DeCode hafa hækkað verulega undanfarið ár. frétta sé að vænta. Kári Stefánsson er því ekki á flæðiskeri staddur um þessar mundir. UTSALA 1 ai i u i Verð með 20% afslætti kr. 1.192,- )8ium gi iskum í Margar tegundir af garðálfum. r Verð með 20% afslætti kr. 472,- v20% 20", 24", 28” og 32" 20" ferðataska. Verð áður kr. 2.990, Verð með 20% afslætti kr. 2.392,- Verð með 20% Verð með 20% afslætti kr. 316,- afslætti kr. 472,- Ferðatöskur í settum og í stöku. 20% ‘> töskur. vM áður kr. (3.990,-. Voið með 20'. afslættl kr. 5.592,- Otrúlega búðin K r i n o' Í5 1 a n • F j ö r ö u r • K e f 1 a v í k

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.