Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 20. ÁQÚST2005
Fréttir EKV
Slegist um
yfiráð
Geri, félag í eigu Þóris
Haraldssonar fram-
kvæmdastjóra Mjólkurfé-
lagsins og Kristins Björns-
sonar fyrrverandi forstjóra
Skeljungs, hefur undanfar-
ið keypt hlutabréf af hlut-
höfum Mjólkurfélagsins.
Fimmta þessa mánaðar
gerðu þeir Þórir og Kristinn
öllum hluthöfum, sem ekki
höfðu þegar keypt, kauptil-
boð. Sláturfélag Suðurlands
gerði þá sömu hluthöfum
tilboð á genginum 1,3. Geri
hækkaði samstundis tilboð
sitt til jafns við tilboð Slát-
urfélagsins. Tilboð beggja
renna út 26. þessa mánað-
Lofa að
klára í ágúst
Verktakafyrirtækið Lás
ehf. hefur lofað bæjarráði
Vesturbyggðar að leggja
nótt við dag svo takast
megi að ljúka öðrum
áfanga íþróttahússins á
Patreksfirði eigi síðar en 31.
ágúst. Verkið hefur tafist
mjög og á fundi bæjarráðs í
vikunni var bókað að ráðið
væri orðið langeygt eftir
verklokum. Upphaflega átti
smíði hússins að ljúka um
síðustu áramót. Bæjarráð
hefur áður hótað dagsekt-
um yrðu verkinu ekki lokið
á þeim tíma.
Kaupverð
eðlilegt
Kaupverð borgarinnar á
Stjömubíósreitnum var
eðlilegt.
Þetta kemur
fram í út-
tekt innri
endurskoð-
unar á
kaupunum
sem kynnt var á borgar-
ráðsfundi á fimmtudag.
Niðurstaðan er sú að útboð
leiddi til þess að borgin
endurseldi byggingarreit-
inn á lóðinni með hagnaði
jafnframt því að fjölga bíla-
stæðum á austari hluta
Laugavegar. Sjálfstæðis-
menn höfðu gert athuga-
semdir við kaupin. Á fund-
inum áskildu fulltrúar Sjálf-
stæðismanna sér rétt til að
tjá sig um málið síðar, enda
töldu þeir margt krefjast
frekari athugunar og skýr-
inga.
Alvarlegt bílslys varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar í
gær. Strætisvagn og vörubíll skullu saman og liggur bílstjóri strætisvagnsins á
sjúkrahúsi alvarlega slasaður.
Hormuleg aökoma
Vegfarendur sögðu að-
komuna að slysinu hafa
verið hörmulega.
--------------------
Alvarlegt umferðarslys varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar
og Suðurlandsbrautar um tíuleytið í gærmorgun. Strætisvagn af
stofnleið 2 var á leið í átt að Hlemmi þegar vörubíll sem var á leið
norður Kringlumýrarbraut ók inn í framhlið hans á gatnamótunum
með þeim afleiðingum að hann snerist í 90 gráður og endaði uppi
á hálfkláraðri umferðareyju. Fjórir sjúkrabílar og lögreglubílar fóru
á slysstað ásamt tækjabíl Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Bflstjóri strætisvagnsins liggur
alvarlega slasaður á fótum á gjör-
gæsludeild Landspítala-Háskóla-
sjúkrahúss. Við slysið missti hann
neðan af báðum fótleggjum sínum,
frá hnéi á öðrum og við ökkla á
hinum. Hann gekkst undir mikla að-
gerð í gærmorgun en er þó ekki í lífs-
hættu. Vegfarendur sem komu að
slysstað sögðu aðkomu að slysinu
hafa verið hryllilega.
Farþegar klipptir út
Tækjabfll slökkviliðsins var sendur
á vettvang til að ná farþegunum út úr
vagninum. Klippa þurfti súlur úr
vagninum til þess og í framhaldinu
voru flórir þeirra sendir á slysadeild til
aðhlynningar með minniháttar
meiðsl og tveir farþegar eru enn undir
eftiriiti lækna. Gatnamótin sem slysið
varð á eru af mörgum talin ein hættu-
legustu gatnamót í Reykjavfk. „Hver
einasti vegfarandi þarf að vera við
þessu búinn," segir Óli H. Þórðarson
formaður Umferðarráðs.
Hefðu beltin bjargað?
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
Við slysið missti hann
neðan afbáðum fót-
leggjum sínum, frá
hnéi á öðrum og við
ökkla á hinum.
reglunni í Reykjavík kastaðist bflstjóri
strætisvagnsins út úr bflnum. Talið er
að hann hafi ekki verið í bflbelti, en
ekki liggur ljóst fyrir hvort belti hafi
verið í vagninum. „Reglan er sú að ef
belti er til staðar í bfl á að nota það,"
segir Óli H.
Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs. segir bflbelti ekki vera
í öllum strætisvögnum og því miður
sé ekki nógu mikið um það að þau
séu notuð, séu þau fyrir hendi.
„Atvinnubflstjórar eiga að vera í
beltum eins og aðrir. Það sést á þessu
að slysin gera ekki boð á undan sér,"
segir Óli H.
Verður skoðað
„Þetta mál verður tekið til skoð-
mwM
-
unar út frá öllum hhðum," segir
Ásgeir Eiríksson, aðspurður um hvort
bflbeltanotkun vagnstjóra verði
skoðuð sérstaklega í framhaldi af slys-
inu. Hann segir að skoðað verði hvað
hægt sé að gera betur. „Við munum
einnig reyna að aðstoða alla sem
Mikið skemmdur Eins
og sjá má skemmdist
strætisvagninn mjög mik-
ið við áreksturinn.
tengjast þessu slysi," segir Ásgeir.
Rauði Krossinn veitir þeim sem vilja
áfallahjálp með mflligöngu Strætó bs.
í fréttatilkynningu frá Strætó bs. segir
að íyrirliggjandi upplýsingar bendi til
þess að ekki megi rekja orsök slyssins
tfl mistaka af hálfu bflstjórans.
Mótmælandinn
Útlenskir mótmælendur hafa
flætt yfir landið eins og nýir flæk-
ingsfuglar að undanförnu. Þeir hafa
skrifað skilaboð á veggi, látið óðslega
og fengið meiri athygli hjá lögregl-
unni en nokkur innlendur nauðgari
eða morðingi.
Þeir hafa verið kallaðir atvinnu-
mótmælendur, sökum þess að þeir
teljast stunda mótmæli af fæmi
atvinnumanna. Enda em íslensk
mótmæli vanalega meira eins og
ósamþykki, þar sem fólk skrifar
nöfnin sín undir lista hinna ósam-
mála. Svarthöfði veit reyndar að út-
lendingamir eru ekki atvinnumenn.
Þeir em í sumarfríi.
Þegar Svarthöfði var nýútskrifað-
Svarthöfði
ur úr menntaskóla og vann sem lag-
ermaður tók hann sér sumarfrí eins
og gengur og gerist. Sumir jafrialdra
hans fóm í Atlavík eða mesta lagi til
Mallorca. En vorið 1970 ákvað Svart-
höfði að fara í ferð lífs síns. Það var
mótmælaferð til Stokkhólms. Ekkert
var jafnskemmtilegt og að leggja
undir sig sendiráð íslands og krefjast
sósíah'skrar byltingar. Fiðringurinn
fyrir næstu mótmæli var óstjómleg-
ur. Ungu tölvunördin í dag geta ekki
ímyndað sér þetta.
Mótmælendurnir sem komu til
íslands stunda aðra vinnu en mót-
mæli. Líklega vinna þeir flestir skrif-
stofuvinnu og þurfa að lyfta sér upp
endmm og sinnum. Eins og gengur
og gerist. Og það þekkja margir ungir
menn sem gerst hafa femínist-ar að
adrenalínið og rómansinn skemma
ekki fyrir þegar forfæra á unga hug-
sjónastúlku með rjóðar kinnar.
ísland er orðið heitasti reiturinn í
Evrópu fyrir ferðamenn. Hingað
sækja margir hommar vegna frelsis-
ins, kynóðir vegna frjálslyndisins og
náttúmunnendur vegna hinnar
villtu náttúm. Svarthöfði telur full-
víst að ísland sé lflca að verða heitasti
staðurinn í Evrópu til að mótmæla.
Viðbrögð íslensku lögreglunnar
við þessum örfáu mótmælenda-
hræðum hafa aðeins orðið til þess að
auka á spennuna hjá þeim. í stað
þess að leyfa þessum krökkum að
spreyja á veggi, prfla upp í krana og
sulla skyri, eins og börn gera, elti
löggan þá eins og uppreisnarmenn.
Þeir fengu það sem þeir vildu:
ómælda athygli og spennuna sem
fylgir mótmælendahlutverkinu.
Hver nennir að mótmæla ef enginn
horfir á?
Líklega er þetta mikið heillaskref.
Senn verður mótmælaferðamanna-
iðnaðurinn blómleg atvinnugrein á
landinu.
Svarthöföi
Hvernig hefur þú þaö?
Ég hefþað bara mjög fínt," segir Sigurður Óli Þorleifsson iínuvörður. „Á sunnudag-
inn verð ég fjórði dómari í Island - Hvíta-Rússland og á mánudaginn dæmi ég Fram
og Fyiki. Þetta er búið að vera gottsumar. Gaman að þessu."