Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Qupperneq 10
7 0 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005
Fréttir ÖV
Nína er ástríðufull og einlæg
manneskja sem elskar alla í
kringum sig.
Hún getur verið þrjósk og á
það til að einspila í fót-
bolta.
„Hún er fyrst og fremst frábær
leikkona. Svo hefurhún ofboðs-
lega mikla jákvæða
orku og er með bein í
nefinu. Ég veit ekki hvort
það sé kostur eða galli
að hún er mjög þrjósk,
það fellur kannski mitt á milli.
Svo þegar hún spilar fótbolta
mætti hún gefa meira á mig. “
Jón Atli Jónasson rithöfundur og leik-
skáld.
„Nina hefur bara kosti. Hún er
frábær manneskja, frábær vinur
og ótrúlega skemmtileg.
Hún er ein afmínum
bestu vinkonum og er
eins og klettur, traustog
hlý. Eini gallinn sem ég
finn er aðhúná kannski
ofmarga vini. Hún mættihafa
meiri tlma fyrir mig. “
Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona.
„Manni finnst maður vera
hennar besti vinur i hvert skipti
sem maður hittir hana,
hún knúsar og kyssir
mann og það er engin
tilgerð íþvl. Það er ekk-
ert plat við hana. Hún er
ástrlðufull manneskja og leik-
kona, fyndin og skemmtileg. Svo
er hún ein afallra bestu ungu
leikkonunum. Maður þarfað
setjast niður og rembast til að
finna einhverja galla á hana."
Björgvin Franz Gíslason leikari.
Nína Dögg Filippusdóttir er fædd þann 25.
febrúar 1974.Hún útskrifaðistúrLeiklistar-
skóla íslands árið 2001. Um þessar mundir
er Nlna á fullu viö æfingar á nýjasta verki
Vesturports, Woyzeck. I verkinu mun hún
syngja dúett meö sjálfum Nlck Cave.
Ástarvika í
Bolungarvík
Ástarvikan hefst í Bol-
ungarvík á morgun. Hjarta-
laga blöðrum verður sleppt
til himins og boðið upp á
kaffihlaðborð sem sam-
anstendur af hjartakökum
og ástarpungum. Þá verða
sungnir ástarsöngvar. Ýmsir
viðburðir í Bolungarvík
næstu vikuna eiga að verða
til þess að hvetja til ástleitni.
Meðal annars sultugerð,
ljóðaupplestur og stórdans-
leikur með Sálinni hans
Jóns míns. Markmið vik-
unnar er að fjölga Bolvík-
ingum og er verðlaunum
lofað fyrir afraksturinn á
uppskeruhátíð í maí á
næsta ári.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent út tilkynningu þar sem varað er við er-
lend-um svikahröppum sem látast vera prestar. Platprestarnir senda gúmmí-
tékka til íslands í von um að hafa fé af grunlausum hótelstarfsmönnum. Al-
þjóðadeild lögreglunnar er með málið til skoðunar en þeir sem létu glepjast
töpuðu hundruðum þúsunda og fá peningana sína líklega aldrei aftur.
Höfn í Hornafirði
Svindlarar herjuðu á
heimamann.
Óprúttnir erlendir svikahrappar hafa í sumar reynt að hafa fé af
ferðaþjónustuaðilum með blekkingum. Lögregla er með nokkur
mál þessu tengd á sínu borði og Samtök ferðaþjónustunnar hafa
varað félagsmenn sína við svikunum.
þess hversu stórar pantanir var um
að ræða gat lítil endurgreiðsla
numið hundruðum þúsunda króna.
Hefði Halldór í Hvammi orðið við
þessari ósk hefði hann tapað
miklum fjármunum þvi fljótlega
kom í ljós að ávísunin var plat og
pöntunin líka. Hann tilkynnti lög-
reglunni á Höfn um málið sem sendi
það áfram til Alþjóðadeildar lögregl-
unnar í Reykjavik.
Ekki hafa þó allir sem fengu
svona pantanir verið jafn grandvarir
og Haildór Sævar.
DV hefur heimildir fyrir þvi að
nokkrir aðilar hafl látið glepjast af
þessu svindli og sent út peninga.
Ólíklegt er að það tjón verði þeim
nokkurn tímann bætt.
Halldór Sævar Birgisson sem
rekur Gistiheimilið Hvamm á Höfn í
Hornafirði er einn þeirra sem svika-
hrapparnir reyndu að hafa fé af.
Oftar en einu sinni bárust honum
pantanir frá erlendum svikahröpp-
um og voru þær yfirleitt fyrir stóra
hópa í tíu daga til hálfan mánuð.
Ávísanir voru síðan sendar sem
fyrirfram greiðsla fyrir pöntunun-
um.
Nokkrir látið glepjast
Áður en greiðslan fyrir pöntun-
unum náði í gegn barst tilkynning
frá svindlurunum, ýmist um smá-
vægileg forföll eða ósk um umboðs-
laun. Farið var fram á að lítill hluti
fyrirframgreiðslunnar væri endur-
. greiddur og sendur aftur út. Vegna
„Yfirleitt erilla qð
þessu staðið hjá
svindlurunum og fólk
sér þá fljótt í gegnum
þetta."
Látast vera prestar
Erna Hauksdóttir hjá Samtökum
atvinnulífsins segir að brugðist hafa
verið við með því að senda tilkynn-
ingu til félagsmanna. í henni er
varað við svindlurunum og sagt frá
starfsháttum þeirra. „Svona mál
koma alltaf upp öðru hvoru. Yfirleitt
er illa að þessu staðið hjá svindlur-
unum og fólk sér þá fljótt í gegnum
þetta," segir Erna. Hún segir
svindlarana oft kynna sig sem presta
í von um að uppskera aukinn trú-
verðugleika. „Þeir halda líklega að
það gefl betri raun en ella," bætir
hún VÍð.ri@dv.is
Erna Hauksdóttir Fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferða-
Þjónustunnar er búin að vara
félagsmenn við svindlurunum.
Bæjarstjóri Seyðisfjarðar segir reikning vegna löggæslu á dansleik út í hött
Bæjarstjóri ítrekar að dansleikur er ekki útihátíð
„Þetta er sannarlega ekki útihátíð
og engan vegin hægt að skilgreina
þetta sem slíkt,“ segir Tryggvi Harð-
arson bæjarstjóri á Seyðisfirði en
hano undirbýr nú stjórnsýlsuákæru
á hendur dómsmálaráðuneytinu
vegna reiknings sem sýslumaðurinn
á Seyðisfirði sendi fyrir löggæslu á
dansleik sem haldinn var á Herðu-
breið fýrr í sumar.
Tryggvi segir dansleikinn hafa
verið haldinn í tengslum við ár-
legalistahátíð ungs fólks; Lunga. Á
hátíðinni kemur ungt fólk á aldrin-
um 15 til 25 ára saman og vinnur að
ýmis konar listsköpun f nokkra daga
og sýnir svo afraksturinn. í kjölfarið
hefur svo verið venja að bærinn
haldi dansleik fýrir ungmennin.
„Það eru haldnir dansleikir vítt
og breitt um landið. Það er því brot á
jafnræðisreglum að fara að tína út
einhverja einstaka dansleild," segir
Tryggi og bætir við að hann skilji alls
ekki forsendumar sem sýslumaður-
inn gefur sér fyrir því að rukka lög-
gæslukostnað fyrir þennan dansleik.
Síðustu ár hefur Tryggvi látið sig
hafa það að borga fýrir löggæsluna,
En í ár ákvað hann að láta ekki bjóða
sér þetta lengur.
„Nú fannst mér nóg komið. Það
er ekki skattgreiðendum bjóðandi
að misbjóða þeim með þessum
hætti. Ég mun fylgja þessu máli alla
leið og heyri ekki annað en að full
samstaða sé innan bæjarstjómar og
bæjarráðs Seyðisfjarðar.
Út í hött Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri
Seyðisfjarðar, segir ekki hægt að skilgreina
dansleik sem útihátíð.Dansleikurinn sem um
ræðir varhaldinn IHerðubreið um miðjan
júli I tengslum við árlega listahátið ungs
fólks;Lunga