Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005
Helgarblað DV
Eggertsson, læknir og
borgarfulltrúi ætlar aö
hætta í stjórnmálum í
vor. Hann er vonsvikinn
yfir upplausn Reykjavík-
urlistans og gagnrýnir
flokkana fyrir aö taka
ákvörðun sem ekki sé í
þágu borgarbúa. Hann
útilokar ekki frekari þátt
töku í stjórnmálum í
framtíöinni en íhugar aö
flytja til útlanda á næsta
ári. Dagur og Arna Dögg
Einarsdóttir kona hans
eiga von á barni i lok
september en fyrir eiga
þau rúmiega ársgamla
dóttur.
I JBB
hafði farið í klippingu,“ segir Dagur
og Ama brosir við matseldina,-
svakalega myndarleg, komin rúma
átta mánuði á leið. „Ég held reynd-
ar að þetta hafi verið samsæri hjá
systur hennar til þess að koma okk-
ur saman. Ama var að læra læknis-
ifæðina í Sviþjóð og við lifðum
mjög fióknu lífi, á meðan við vorum
að reyna að púsla sambandi okkar
saman. Ég var á síðasta vetri í iækn-
isfræðinni og að skrifa ævisögu
Steingríms Hermannssonar og hún
í Stokkhólmi. Eftir læknisffæðina
beið ég svo með kandídatsárið og
flutti út til ömu og tók masterspróf
í alþjóða mannréttindalögum í
Stokkhólmi. Síðan fluttum við
hingað heim. Þetta byrjaði þannig
sem svona millilandasamband þar
sem stundum þurfti talsverða út-
sjónarsemi til þess að láta ailt
ganga,“ segir Dagur og útilokar ekki
að flytja aftur út, jafitvel til Banda-
ríkjanna eða Bretlands.
Baklandið í Árbænum
„Ég ólst upp í Fylkishverfinu og
er í raun bara svona úthverfastrák-
ur í heimsókn í miðborginni.,“ seg-
ir Dagur þar sem hann situr við
borðstofuborðið í rómantískri og
hundrað ára gamalli íbúð ungu
hjónanna við Oðinstorgið. Heimil-
ið er smekklega innréttað með
mjög sterkum skandinavískum
áhrifum sjöunda áratugarins á
sinn einfalda hátt. „Mér finnst ekki
ólfldegt að við flytjum aftur til út-
landa og verðum þar eitthvað,"
segir Dagur og víkur sér að borgar-
málunum sem skipta hann greini-
lega miklu máli. Dagur er klárlega
hugsjónapólitíkus en ekki
framapotari. Hann hefur frestað
faglegum metnaði sínum í læknis-
fræðinni fyrir hagsmuni og hug-
sjónir sem hann berst fyrir sem
Reykvíkingur. „Ég ætla svo sannar-
lega ekki að láta mitt eftir liggja í
vetur eins og ég hef gert hingað til,
en ég geri ekki ráð fyrir að fara í
framboð í vor,“ segir Dagur og úti-
lokar sérffamboð eða þátttöku
með núverandi stjómmálaflokk-
um. „Fyrir mér snýst þetta ekki um
mig. Mér fannst Reykjavíkurlistinn
snúast um sameiginlegar hugsjón-
ir mjög stórs hóps fólks í borginni
með hagsmuni sína að leiðarljósi
en ekki flokkanna. Mér fannst það
heillandi. Ég held að það hafi alla
tíð verið leynivopn Reykjavíkur-
listans," segir Dagur.
Hagsmunir flokka teknir
fram yfir fólkið
Dagur er greinilega ósáttur við
ákvörðun þeirra flokka sem stóðu
að Reykjavíkurlistanum að bjóða
ffam hver í sínu lagi. Hann segir
það benda til aukins sjálfstrausts
þeirra að halda að þeir geti unnið
borgina án þess að hafa Reykjavík-
urlistann. „Ég held að þeir hafi
tekið flokkshagsmuni fram yfir
hagsmuni kjósenda sinna sem er
félagshyggjufólk sem er fyrst og
fremst að hugsa um hvemig borg
það vill búa í. Ég held að það hafi
haft næstu alþingiskosningar jafn
mikið í huga þegar það var að spá í
þessi spil innan sinna raða. Það er
alveg nýtt og ekki gott fyrir Reykja-
víkurlistann á þessu kjörtímabili að
flétta þessu svona inn f pólitíska
hagsmuni á landsvísu. Þetta er
mjög óskynsamlegt út frá þeim
hugsj ónum sem ég hef verið að tala
og beijast fýrir. Ég held að með því
að hafa Reykjavíkurlista sem er
opinn og með skýrt borgarstjóra-
efrú með afgerandi umboð, þá
hefðu þessar kosningar unnist í
vor,“ segir Dagur sem augljóslega
hefur takmarkaða trú á því að
flokkamir þrír nái að mynda aftur
samstöðu um stjóm borgarinnar.
Hann óttast að missa borgina í
hendur Sjálfstæðismanna sem
hann segir hafa verið veika í minni-
hluta í borgarstjóm. Hann segir
samstöðuna í minnihlutanum hafa
verið litla og ólíkar skoðanir hinna
eldri og yngri fulltrúa í mörgum
mikilvægum málum.
Eg hafði sagt það áður en það
var ljóst hvort Reykjavíkur-
listinn biði fram að ef svo
yrði ekki myndi ég ekki gera ráð
fýrir því að fara í framboð. Ég mun
bara snúa mér að öðrum verk-
efnum," segir Dagur B. Eggerts-
son, borgarfulltrúi Reykjavíkurlist-
ans. „Þetta er bara nýskeð þannig
að við höfum ekkert náð að ræða
það," segir Dagur og gjóir augum
til Ömu eiginkonu sinnar sem
stendur við eldhúsborðið og útbýr
salat með kvöldverðinum. Dagur
og Ama em bæði læknar og Ama
starfar nú á krabbameinsdeild
Landspítalans. Þau eiga eina rúm-
lega ársgamla dóttur og eiga von á
öðm bami í september.
Kynntust með óvæntum
hætti
Ama og Dagur kynntust árið
1998 og vom þá bæði í læknanámi,
Dagur á fslandi og Ama í Stokk-
hólmi þar sem fjölskylda hennar
býr. „Systir Ömu var með mér á ári
í læknisfræði og ég kynntist Ömu í
rauninni þar sem systir hennar var
svo lengi í klippingu. Mér hafði ver-
ið boðið í mat hjá þeim systrum og
Ama sat uppi með mig á meðan við
biðum eftir systur hennar sem
c
Astfangin saman
Arnaog Dagur hafa
verið saman í 7 ár.
Heiða litla Aðalheiður
dóttir Dags og Örnu er
rúmlega ársgömul.