Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Síða 23
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005 23 m segir Dagur og bendir á að til þess að auka aðgengi enn meira þyrftu ýmis þjónusta sem nú er hjá rfldnu að flytjast til sveitarfélaganna og neifiir þjónustu við aldraða, fatl- aða og heilsugæslu. Önnur mál sem eru svona sýnileg em til dæm- is hlutir eins og parísarhjól í Laug- ardalnum og loftbrú frá Reykjavík fyrir rokktónlistarmenn sem em að koma sér á framfæri erlendis," segir Dagur og bendir á að stóm flóknu málin séu þó oftar tíma- frekari. Tónlistarhús að fæðast Dagur hefur reynt að taka vaktir sem læknir enda mikilvægt að halda sér við í læknisfræðinni. „Ég reyndi að vinna sem læknir framan af á kjörtimabilinu og tók vaktir á bráðamóttökunni. En eftir að ég eignaðist dóttur og tók við skipulagsmáiunum er það eigin- lega óvinnandi vegur,‘‘segir Dagur. Hann vísar á bug gagnrýni um að lítið hafi gerst í uppbyggingu borg- arinnar í tíð Reykjavflcurlistans. „Við höfum snúist frá þeirri meg- instefnu um að ný byggð gangi út á að vinna ný lönd í útjaðri byggðar- innar. Við höfum hins vegar tekið til við að þétta byggðina og hugsa hana inn á við. Skipuleggja svæði hér í og við miðborgina og mæta þannig hugmyndum nýrrar kyn- slóðar sem vill heldur búa í mið- borg en í úthverfum," segir Dagur og bendir á uppbyggingu við Mýr- argötu og austurhöfnina sem dæmi. Hann segir tónlistarhús nú innan seilingar eftir langt og flókið ferli. „Það er búið að fara í gegnum skipulagssamkeppni og samning- arferli milli rflás og borgar. Nú er það komið í samningskaupaferli. Þetta endurspeglar allt saman að hluta til stærð verkefnisins sem er jú gríðarleg íjárfesting til áratuga eða alda og verður því að vanda til verksins. Þetta mun verða mikil lyftistöng íyrir miðborgina og Kvosina og verða um leið flaggskip fyrir nýju Reykjavflc og um leið nýja ísland." Ólafur Elíasson með í hönnun tónlistarhúss „Hluti af þessu samnings- kaupaferli er að þeir hópar sem eru að keppa um að fá verkefnið hefur hver um sig fengið til liðs við sig heimsþekkta arkítekta sem hafa teikn- að sambærileg hús annars staðar í heiminum. Það er verið að keppa í góð- um lausnum í; arkítektúr, útliti, skipu- lagi og rekstri. Það er nú kornið í gegn- um tvær umferðir og hópunum hefur fækkað úr ijórum í tvo og nú í septem- ber mun einn standa eftir sem sigur- vegari. Þeir hópar sem eftir eru er ann- ars vegar hópur sem er kenndur við Fasteign og em að vinna með dönskum arkítektunum Scmith, Hammer og Larsen, í samstarfl við fleiri. Síðan em hópur sem kallar sig Portus sem er reyndar lflca að vinna með dönskum ar- kítektum sem heita Henning Larsen Tegnestue og Ólafl Eb'assyni myndlist- armanni og fleirum. Þetta er náttúrulega rosalega stórt ferli og það þarf að vanda vel ti! hvers einasta skrefs í því og þar af leiðandi tekur þetta langan tíma. En meginat- riðið er að það er gríðarlegur gangur í þessu og niðurstaðan mun liggja fyrir innan ti'ðar." Upphaf og endir „Hlemmur plús er Iflca verkefni sem mér hefur þótt mjög spennandi. Þar var A;;í U verið að vinna með hugmyndir um að Hlemmur verði svona megintengikerfi almenningssamgangna í borginni. Þar sjáum við fyrir okkur svigrúm fyrir um 1000 nýjar íbúðir á vannýttum reitum allt í kring. Síðan er það svæðið upp við Elliðavoga. Þannig myndi Brýggjuhverf- ið sem nú þegar er orðið til stækka alveg inn í Vogahverfið. Við myndum hleypa af stað íbúðamppbyggingu í Dugguvogi og Skútuvogi og hengja svæðið saman með göngubrúm og slflcu. Þannig vær- um við komin með nýtt og gríðarlega spennandi hverfl," segir Dagur en leggur áherslu á að ákvarðanir þurfi að fara að taka varðandi nýja byggð á flugvellinum íVamsmýrinni. „Enginn sem vill láta taka sig alvar- lega í borgarstjómarkosningum í vor getnr skilað auðu í sambandi við Vatns- mýrina. Við höfum verið í miklu sam- ráði við þá aðila sem tengjast Vams- mýrarsvæðinu og verðum með hug- myndasamkeppni um framti'ðarskipu- lag hennar í vetur.Ég held að menn séu að komast út úr skotgröfunum með þessa umræðu þar sem verður til sam- eiginleg sýn þar sem helst verður hægt að sameina hagsmuni flestra: höfuð- Dagur og Arna eiga von á barni Arna starfarsem læknirá krabbameinsdeild og er Isérnámi I lyflækningum. Pabbastelpa Heiðu líður vel i fanginu á pabba á meðan Arna ræðir málin við tengdaforeldra sína sem voru I heimsókn. Fór í læknisfræði til að forðast pólitík Dagur og Ama hafa enn ekki tekið ákvörðun um ffamhaldið. Hann segir líf þeirra oft taka óvænta stefnu og þau hafa augljós- lega gaman að því að hafa hreyfan- leika á lífi sínu og ráðgera ekki að skjóta rótum neins staðar á næst- unni. „Við erum hvomgt neinir öryggisffldar og látum þetta ekki hafa mikil áhrif á okkur," segir læknirinn Dagur sem lítið hefur náð að starfa sem læknir þar sem pólitískar hugsjónir hans hafa for- gang. „Ég fór nú upphaflega í læknisfræðina til þess að reyna að komast hjá því að fara í pólitík. Var þar að reyna að velja að það sem ætti vel við mig væm samskipti við fólk, auk þess sem mér finnst læknisfræðin mjög spennandi. Mér finnast heilbrigðismál og svona lýðheilsa gríðarlega spenn- andi mál. Ég held að þau verði kjaminn í stjómmálum framtíðar- innar," segir Dagur sem útilokar ekki aðkomu sína á pólitískum vettvangi sfðar meir. „Mér finnst það sem ég er að fást við skipta svo miklu máli. Þótt það sé ekki nema tímabil af ævinni þá skipti gríðar- legu máli að maður skilji eitthvað eftir sig. Það þarf ekki að vera stórt heldur er gott að sjá hugsjónir sem maður hefur barist fyrir detti inn í einhverjum áföngum," segir Dagur og telur sig hafa náð að koma mörgum af sínum hug- myndum í gegnum flókið kerfið á meðan hann hefur starfað að borgarmálum. Hann segir þolin- mæði mikilvæga í pólitfldnni en með því að undirbúa sig vel fyrir marga langa fundi megi koma mikilvægum hugsjónum í fram- kvæmd. Einfaldar flókin ferli „Ég settist niður áður en ég ákvað að taka sæti á listanum á sínum tíma og fór yfir þau mál sem ég vildi beita mér fyrir. Ég er svo alltaf með þann lista á bakvið eyrað. Framan af kjörtímabilinu var ég meira með mál sem sneru inn á við og mér finnst skipta gríð- arlegu máli. Þetta er núna að birt- ast í því að við erum að opria þjón- ustumiðstöðvar í öllum hverfum í september þannig að fólk getur sótt alla þjónustu á einum stað,“ borgar, landsbyggðar og samgöngu- kerfisins," segir Dagur sem nú er einn eftir í Reykjavflcurlistanum eftir að flokkamir sem að honum stóðu hafa tekið ákvörðun um að slíta samstarfinu í vor. „Það er mikill heiður ef ég er upp- haf og endir R-listans," segir hann og hlær, „en R-listinn mun starfa áfram saman í vetur fram að kosningum í vor. Við erum að vinna eftir okkar kosninga- stefnuskrá. Það skiptir mig ekki per- sónulega neinu máli að standa svona einn fýrir utan. Mér finnst ég hafa feng- ið alveg frábært tækifæri til að taka þátt í að hafa áhrif á borgina í þessum hópi. Það er eitthvað sem stendur fyrir sínu, hvað sem flokkamir gera í sínum fram- boðsmálum. Mér er það efst í huga að menn standi saman og klári þau mikil- vægu verkefni sem okkar umboð snýst um,“ segir Dagur. Foreldrar hans, Egg- ert Gunnarsson dýralæknir og Berg- þóra Jónsdóttir lifefnafræðingur em mætt í mat eftir að hafa farið í göngutúr um miðborgina með litla bamabamið sitt, Ragnheiði Huldu, dóttir Örnu og Dags. freyr@dv.is m L,- " te §H mm. m —* ■23* Vonbrigði að R-listinn hættir Dagur óttast að borgin lendi í höndum Sjálfstæðismanna. iT ' «4 Dagur ætlar að hugsa málið Hugsanlega flyturhann tilútlanda með fjölskylduna á næsta ári. Fallegt heimili við Óðinstorg Fjölskyldan er samrýmd og foreldrar Dags komu i kvöldmatinn. ----- -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.