Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Síða 42
<s
42 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005
Helgarblað DV
Sólveig Eiríksdóttir er eins og margir vita mikill matgæðingur og rak á tímabili veitingastaðinn
Grænan Kost. Hún hefur verið grænmetisæta í rúma tvo áratugi og er því þekkt fyrir að matreiða
gómsæta grænmetisrétti. Þar sem hún hefur þennan mikla áhuga á eldamennsku er ekki skrýtið að
eldhús heimilisins sé í hæsta gæðaflokki. Eldhúsið er hjarta heimilisins og má þar finna mörg af
kraftmestu matreiðslutækjum veraldar.
„Eg fór að kaupa mér
matvinnsluvél um dag-
inn. Þegar ég rétti fram
kortið spurði afgreiðslu
maðurinn mig hvort ég
vissi ekki örugglega að
þetta væri sama
vél og meist- M ! í
arakokkarnir
Migetla og
Jamie Oliver ^ggg§
nota," segir j %á
Sólveig. 1 KfC
„Eldhúsið er hjarta heimilisins.
Þetta er stærsta herbergið í húsinu.
Meira að segja stærra en stofan. Ég
verð að hafa þetta almennilegt fyrst ég
eyði svona miklum tíma hérna," segir
Sólveig Eiríksdóttir matgæðingur.
„Það má eiginlega segja að eldhúsið
sé samkomusalur heimilisins. Það er
svo stórt að hér komast allir fyrir og
höfum við fjölskyldan gaman að því að
hjálpast að. Sérstaklega ég og Elli,
maðurinn minn, því hann hefur mik-
inn áhuga á eldamennsku eins og ég.“
Þriggja hestafla ofurblandari
Það er alveg þess virði fyrir Sólveigu
að sanka að sér góðum græjum fyrst
hún hefur svona mikið dálæti á eldhús-
inu. „Uppáhaldsgræjan mín er bland-
ari. Þetta er enginn venjulegur bland-
ari því hann er næstum þriggja hest-
afla. Við erum að tala um tæki sem er
kröftugra en gamli Austin mini bíllinn
sem ég átti þegar ég var hippi," segir
Sólveig og hlær. Notar hún blandarann
mest til að búa til möndlu- og sesam-
mjólk en það eru vinsælir réttir á heim-
ilinu.
Tæki meistarakokka
Sólveig tekur sér tíma til að velja
réttu tækin sem prýða eiga eldhúsið
enda er ekki um neitt venjulegt eldhús
að ræða. „Ég fór til dæmis að kaupa
mér mjög góða matvinnsluvél um dag-
inn. Þegar ég rétti fram kreditkortið
spurði afgreiðslumaðurinn mig hvort
ég vissi ekki örugglega að þetta væri
sama vél og meistarakokkarnir Nigella
og Jamie Oliver nota. Ég hafði ekki
hugmynd um það þegar ég var að velja
tækið en ég veit að þau hljóta að nota
eitthvað kraftmikið og er ég því ánægð
með kaupin," tekur Sólveig fram.
Hélt hún væri hippi
Það fer ekki famhjá neinum að eld-
hús Sólveigar er fremst í flokki fylking-
ar þegar um er að ræða gæði. En það er
ekki að ástæðulausu. „Elli, maðurinn
minn segir að ég sé algjör tækjasjúk-
lingur og er það eflaust rétt ef marka
má ofurblandarann og meistaravélina.
Ég var samt ekkert að átta mig á því fyrr
en nýlega. Mér fannst ég alltaf vera svo
mikill hippi í mér og handgerði allt
sem ekki var hægt að stinga í samband.
Þess vegna var eins gott að Elli hannaði
nýja eldhúsið og hafði það nógu stórt.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað
ég ætti mikið af tækjum sem taka mik-
ið pláss. Ég er meira að segja með spes
græjuskáp," útskýrir Sólveig.
Pjattrófa í eldhúsinu
„Ég tel mig vera mjög skipulagða í
eldhúsinu enda er ég óskaplega mikil
njattrófa," segir Sólveig og brosir. „Til
allrar hamingju er maðurinn minn líka
pjattrófa í eldhúsinu og er því sjaldnast
drasl á borðunum hér á bæ. Ég hef
komist.að því að það sparar rosalegan
tíma. Til dæmis að vaska upp jafnóð-
um. Þá get ég matreitt heilu farmana af
gómsætum sælkeraréttum."
iris@dv.is
Sólveig Eiríksdóttir við hlið of-
urblandarans góða Hann er
kraftmeiri en siátturvéi.
Sólveig kann svo sannarlega að
fikra sig áfram í eldhúsinu Feer
hún sér oft möndiu- og sesammjólk
í morgunsárið.
Ljúffengur möndluhristingur
með hreinu súkkulaði Það væi
" eflaust algjör unun að gæða sér á
þessum drykk.
i Möndlur og hnetureru
haldi hjá Sólveigu Nota
þær mikið I matreiðslu.