Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Qupperneq 45
DV Sport
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005 45
mSrnm. _§
5. SEPTEMBER 1987 KR-VÖLLUR
Valsmenn tryggðu sér (slandsmeistaratitlinn með 2-0
sigri á nágrönnum sínum á KR-vellinum. Valur hafði
gert 0-0 jafntefli við Fram í leiknum á undan en
mörk þeirra Hilmars Sighvatssonar og Sigurjóns
Kristjánssonar í fyrri hálfleik tryggðu sigurinn á KR
og um leið titilinn. Valur var þá komið með fimm
stiga forskot á Fram þegar aðeins ein umferð var
eftir en Skagamenn sem voru í öðru sætinu fyrir 17.
umferðina töpuðu þar 3-4 fyrir Víði.
6. SEPTEMBER 1980 KEFLAVlK
Valsmenn tryggðu sér (slandsmeistaratitilinn með
2-1 sigri á Keflavík suður með sjó. Fyrir leikinn var
Valur með þriggja stiga forskot á Framara
sem áttu leik daginn eftir og með tapi Vals í
Keflavík gat komið upp mikil spenna fyrir
lokaumferðina. Valsmenn skoruðu hins veg-
ar tvö mörk á fyrstu 24 mínútunum og unnu
góðan sigur en í umferðunum á undan höfðu
Valsmenn unnið erfiða útileiki í Vestmannaeyjum
og upp á Akranesi. Mörkin mikilvægu í Keflavík
skoruðu þeir Magnús Bergs og Magni Blöndal Pét-
ursson og var mark Magna sérstaklega eftirminni-
legt enda þrumuskot af löngu færi.
gJS
3. SEPTEMBER 1983 AKRANESVOLLUR
Skagamenn tryggðu sérfyrsta (slandsmeistaratitilinn í sex ár með 1-1
jafntefli við (BV á Akranesvelli í 17. umferð. GuðbjörnTryggvason kom
ÍA yfir á 85. mínútu og það skipti ekki máli þótt Eyjamenn jöfnuðu
rétt fyrir leikslok. Skagamenn höfðu þriggja stiga forskot á KR fyrir
leikinn sem hafði tapað 0-1 fyrir Keflavík nokkrum dögum áður og
því nægði Skagamönnum að krækja í stig því þetta var síðasta
sumarið þar sem aðeins voru gefin tvö stig fyrir sigur. Þetta var aðeins
þriðja tap KR á tímabilinu en liðið gerði 10 jafntefli þetta sumar.
■. - . ■ , T.' . '
1 -, imH BMIMmíwmibb
.
■
i
I
feíÍIJÉg
5. SEPTEMBER 1992 AKRANES
Skagamenn urðu fyrstu nýliðarnir í sögu efstu deildar
til þess að vinna meistaratitilinn þegar þeir unnu 3-1
sigur á FH uppi á Skaga 117. umferðinni. Á sama tíma
töpuðu Þórsarar 3-1 fyrir KR á KR-vellinum og Skaga-
menn voru því komnir með fimm stiga forskot á
KR og Þór og ekkert varð því að úrslitaleik nýliða
Þórs og (A í 18. umferðinni. Skagamenn voru
reyndar undir í hálfleik en svöruðu með þremur
mörkum á fyrstu 18 mínútum seinni hálfleiks eftir
eina góða hálfleiksræðu Guðjóns Þórðarsonar.
3. SEPTEMBER 1988 LAUGARDALSVOLLUR
Framarar voru með (slandsmeistaratitilinn innan seiiingaralla seinni um-
ferðina eftir 1-0 sigurá Val í 10. umferðinni en eftir hann voru
Framarar komnir með tíu stiga forskot.Titilinn kom síðan á end-
anum í Safamýrina eftir 3-2 sigur á KA í 15. umferð. Fram komst í
2-0 í leiknum en KA-menn gáfust ekki upp og jöfnuðu en það var
síðan ÓmarTorfason sem skoraði sigurmarkið og tryggði Fram ís-
landsmeistaratitilinn en þetta var þá 14. sigur liðsins í 15. leikjum.
sEPT£MBER
Þ /M F þ
S M
8
ÁGÚST
Þ M F
11. SEPTEMBER 1999 LAUGARDALSVOLLUR
KR-ingar urðu (slandsmeistarar í fýrsta sinn í 31 ár með 4-0 sigri á Víking-
um á Laugardalsvellinum en leikurinn var í 7. umferð. KR hafði fimm
stiga forskot á ÍBV fyrir leikinn og þar vóg þungt 2-0 sigur á Eyja-
mönnum á KR-vellinum 28. ágúst. Rúmlega 3000 stuðningsmenn
Vesturbæjarliðsins mættu í Dalinn til þess að verða vitni af þessari
stóru og langþráðu stund. Guðmundur Benediktsson kom KR yfir úr
umdeildu víti en KR-liðið sýndi þó enga meistaratakta fyrr en á síðustu
20 mínútunum þegar þeir bættu við þremur mörkum og 1-1 jafntefli
(BV í Keflavík gerði það að verkum að KR var með sjö stiga forskot fyrir
lokaumferðina.
's 16 17 '8 19 20
22 23 24 25 26 27
28 29 30 31
OKTÓBER
M Þ M F
F L
29 30
Gó&ur gegn Valsmönnum FH-ingarhafa nú unniö fimm deildarleiki I röö gegn
Val I efstu deild og töpuðu síöast fyrir Valsmönnum 19. ágúst 1995 en það sumar féll
Hafnarfjarðarliðið úr deildinniAllan Borgvardt tryggði FH1-0 sigur i fyrri leiknum d
Hliðarenda með marki strax á 12. mlnútu leiksins en hann er llklegur til að komast á
blað á sunnudaginn. Borgvardt hefur skorað fimm mörk Islðustu
tveimur leikjum sinum og þá hefur hann skorað fjögur mörk í þremur
deildarleikjum gegn Val, þar aftvivegis sigurmark, fyrst 13-2 sigri á
Hllðarenda sumarið 2003 og svo aftur I fyrri leiknum I ár.
4 S 6
1° II 12 13
t 17 18 18 20 21 22
\24 25 26 27 28 29
1, SEPTEMBER 1984 LAUGARDALSVÖLLUR
Skagamenn unnu átta leiki í röð um miðbik móts og voru komnir með tfu
stiga forskot eftir 12. umferð.Tvö töp í röð þýddu hins vegar að (slands-
meistaratitillinn var ekki þeirra á mettíma og hann kom síðan loksins í
hús eftir 0-0 jafntefli við KR í 16. umferð en í leiknum á undan höfðu
Skagamenn unnið 3-1 sigurá KA. Með jafnteflinu við KR náðu Skaga-
menn sjö stiga forskot á Keflavlk þegar tvær umferðir voru eftir og tit-
illinn varð þeirra annað árið [ röð.
1, SEPTEMBER 2003 GRlNDAVlKURVÖLLUR
KR-ingar tryggðu sér (slandsmeistaratitilinn með 3-1 sigri í Grindavík því á
sama tíma tapaði Fylkir0-1 á heimavelli fyrirSkagamönnum. KR-ingar
höfðu fjögurra stiga forskot á Fylki fyrir þessa leiki 16. umferðar en
voru komnir með sjö stiga forskot þegar aðeins tveir leikir voru eftir.
KR-ingar lentu undir í leiknum en svöruðu með þremur mörkum og
fengu síðan fréttirnar úr Árbænum þar sem Kári Steinn Reynisson
skoraði sigurmark (A á 86. mínútu og sendi titilinn [ Vesturbæinn.
V