Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005 3 „Hvar getur maður séð eitthvað skemmtilegt hérna?" spurði Nelly Hall blaðamann en hún sat niðri á Lækjartorgi í gær og las í kort með eiginmanni sín- um Reginald. Þau ætluðu að skoða sig um í borginni í einn Skyndimyndin dag og voru á leiðinni til Færeyja. „Við ætlum að skoða þessar eyjur hér á hjara veraldar og svo förum við heim til Englands," sagði Reginald og fannst heldur kalt á íslandi. „Voðalega haust- ar snemma hjá ykkur," sagði hann við blaðamann hálfsúr í bragði en svo var stefnan tekin á Þjóðminjasafnið. Spurning dagsins Viltu fá Þorstein Joð aftur í sjónvarpið? Hver? „Ég veit bara ekki hverhann er.“ Kristín Kragh nemi. „Ég hefenga skoöun á því." Maríanna Friðfinnsdótt- ir nemi. „Nei, mér finnst hann leiðinleg- ur." Jan-Fredrik Winter, starfsmaður í Kringlunni. Þorsteinn Joð hefur enn vakið athygli landsmanna og nú er það fyrir heimildarmyndina um Ásu ömmu sem sýnd var í Ríkissjón- varpinu í síðustu viku. Myndin hefur vakið verðskuldaða athygli og minnir okkur á hversu flinkur kvikmyndagerðarmaður hann er. Okkur fannst rétt að spyrja almenning hvort hann vildi Þorstein aftur í sjónvarpið. „Já, endilega. Hann erfínn." íris Dögg Kristmunds- dóttir. Rosalega skemmti- legur tími Steinar Viktorsson og Árni Magn- ússon, núverandi félagsmálaráð- herra, voru með þáttinn í takt við tímann í rúm tvö ár á FM 957 á árunum 1992 til 1994. Þáttur- inn var í loftinu á milli þrjú og sex og nutu þeir félagar mikilla vinsælda. Gamla myndin að þessu sinni er frá kynningarmyndatöku útvarpsstöðvarinnar árið 1993 og Steinar mundi vel eftir henni. „Ég man þetta vel. Við áttum að bregða á Goðir saman Árni Magnússon og Stein ar Viktorsson bregða hér á leik í kynning- armyndatöku fyrir FM 957 árið 1993. Gamla myndin leik og Það er stað- reynd... ...að tíu prósent af þjóðartekj- um Rússa koma afsölu vodka. Orðatiltækið að brjóta afsér klafann merkir að brjótast undan einhverju neikvæðu og langvarandi. Líkingin er dregin afþvíþegar skepnur hrista eða brjóta afsér klafa. Málið og vera með einhver fífla- læti. Þetta var rosalega skemmtilegur tími. Árni er afspyrnuskemmtilegur náungi, skarpur og vel geftnn og fínn út- varpsmaður. Hann er með þessa strigabassarödd sem virkar vel. Við komum vel út í hlustendakönnun- um enda var líftími þáttarins lengri en venjan var á þessum tíma," sagði Steinar sem rekur vefinn travelnet.is í dag en það er upplýsingavefur um ísland fyrir erlenda ferðamenn. Kvótið „Það þýðir ekki að maður hafi ekki séð að sumir hafi reynt að minsnota það frelsi sem fengið er. Það er alltaf gert," sagði Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráð- herra, í viðtali við DV í lok árs 2002 þegar hann ræddi um aukið frelsi í íslensku viðskiptalífi. ÞAU ERU FEÐGIN Útvarpsmaðurinn & söngkonan Útvarpsmaðurinn geðþekki Jónas Jónasson er faðir söngkonunnar Berglindar Bjarkar Jónasdóttur.Jónas hefur um árabil stýrt við- talsþættinum Kvöldgestum á Rás 1 og ávallt hlotið mikið loffyrir. Dóttir hans Berglind Björk er líklega þekktust fyrir að vera meðlimur í söngtríóinu Borgardætrum ásamtþeim Andreu Gylfadóttur og Ellen Kristjánsdóttur. Kaupauki: . Fartölvubakpoki, mús og MSOneNoté fylgir öllum Toshibatölvum. rac— j 3 fyrir 1 Micrösoft hugbúnaöur fyrir þrjár heimilistölvur á aðeins $ 13.900 kr. TM tölvukaupalán 100% lán til allt aö 36 mánaöa á 9,5% vöxtum. Einnig býöst fartölvutrygging fyrir lántakendur. Greitt er fyrir eitt ár en annað ár er frítt. SAMSTARFSAÐILAR: Penninn - Haliarmúla / Pennlnn - Akureyri - www.penninn.is / Tölvuþjónusta Vesturlanda - Boroames - tvest®simnet.is Netheimar - Isafjórður - www.netheimar.com / Eyjatolvur - Vestmannaeyjum - www.eyjatolvur.com Tótvuþjónusta Vals - Keflavik - tvabOml.b / Tölvu- og taárjabúðin - Ólafsvfk Martötvan - Höfn í Hornafirði - www.martolvan.is jk SKEIFUNNI17 SÍMI: 550 4000 www.ta8tollval.is Oplð virka daga 9-18, laugardaga 11-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.