Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Side 25
DV psdagurinn sé það að dagurinn væri skemmtilegur og léttur, bæði fyrir okkur og gest- ina," svarar Hildur spurð um áherslur þeirra fyrir daginn stóra. Talið berst að veislunni og Hildur útskýrir einlæg að eftir sjálfa at- höfhina gengu þau Valtýr niður tröppumar úr kirkjunni og þar stóðu gestimir til hliðar við þau og hrísgijónum rigndi yfir þau. „Við gengum síðan úr kirkjunni að veislusalnum og allir gestirnir í hafarófu á eftir okkur,“ segir hún einlæg. „Það var stutt að ganga og besta veður ársins þannig að það var ljúft að ganga. Við stukkum síð- an rétt snöggvast í HeUisgerði með Guðrúnu móðursystur minni sem tók myndir af okkur þar,“ segir hún og sýnir blaðamanni myndimar. Samlokur og kampavín uppi á hóteli „Við vildum ekki láta gestina bíða lengi og vomm því fljót og það gekk vel. Þegar við komum bauð móðir mín alla velkomna og veislu- stjóramir okkar tóku við. Það vom Brúðhjónin Valtýr Gauti og Hildur « við vildum helst leggja dherslu á að dagurinn væri skemmtilegur og léttur, bæði fyrir okkur og gestina. “ Eva Kamilla Einarsdóttir og Bjöm Steinbekk. En okkur fannst svo mik- ilvægt að eiga góðar myndir af gest- unum og þess vegna kom ljós- myndari síðar í veisluna, Hörður Sveinsson, og tók myndir í veisl- unni sjálfri.“ Hildur segir að eftir að gestir höfðu fengið mat og kökur hafi danskennari mætt í veisluna og kennt öllum h'nudans. „Það var mjög skemmtilegt. Það var svo gaman að sjá alla reyna að halda í við danskennarann," segir hún og hlær. „Eftir að danskennslan var búin mætti plötusnúðurinn, hann Jói B úr Gullfossi og Geysi, og spilaði skemmtilega tónlist og allir gestim- ir dönsuðu. Það var mjög gaman að sjá alla skemmta sér svona vel" seg- ir hún og brosir fallega, ánægð með daginn góða. „Þegar við létum okkur svo hverfa þá vom gestimir allir enn í miklum dansi, vinur okkar keyrði okkur þá á 101 hótel þar sem við gistum. Þegar þangað var komið áttuðum við okkur á því að við höfðum nánast ekkert borðað allan daginn," segir hún kímin og heldur áfiam: „Við fengum þá sendar upp samlokur og kampavín." Bleikir vængir og engar lummur „Dagurinn á að vera skemmti- legur fyrir brúðhjónin og gestina, það er um að gera að þiggja alla þá hjálp sem manni býðst," segir Hild- ur. „Mér finnst líka rosalega sniðugt að hafa danskennslu í brúðkaup- inu, það urðu allir svo kátir af dans- inum og að hafa góðan plötusnúð er algjört aðalatriði og það er líka al- veg yndislegt að eiga svona góðar myndir úr veislunni þannig að ég mæli mjög með því að hafa ljós- myndara í veislunni sjáifii. Brúðkaup er eitthvað sem mað- ur heldur aðeins einu sinni og mér fannst svo gaman að sleppa mér lausri í litavali og skreytingum, mig langaði bara til þess að allt væri bleikt og dúlló," segir hún sæt á svip. „Ég lét meira að segja litlu brúðarmeyjuna, frænku mína, hana Helgu Margréti Agnarsdóttur, vera með bleika vængi," segir hún og hlær. „Ég vildi ekki vera með eitt- hvað sem væri mjög smart núna en lummó eftir 5 ár, heldur bara hafa þetta eins og mig dreymdi alltaf um þegar ég var lítil. Helst hefði ég vilj- að setja My httle pony-hest framan á brúðarbílinn, en fann engan í tæka tíð," segir hún hlæjandi. „Svo mæli ég með því að panta svona gott veður eins og við fengum og svona yndislegan mann eins og minn sem var alveg sama hvað ég vildi gera á deginum okkar." Dugleg að heimsækja ísland „Það er góð stemning hjá fslend- ingunum í Danmörku og þeir eru alltaf til í að hjálpa hver öðrum," segir Hildur spurð um Danmörku, en þau hafa búið í þrjú ár þar í landi. „Munurinn á íslandi og Dan- mörku fyrir okkur er aðallega sá að fjölskyldan okkar er öll á íslandi og gömlu vinimir, en við erum dugleg að koma í heimsóknir til íslands og vinir okkar og fjölsky'lda eru lika iðin við að heimsækja okkur í Dan- mörku," svarar hún og brosir fahega þegar kvatt er. FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005 25 Dirty Dancing eralltaf besta dansmyndin „Enginn setur elsku út í horn!“ flottur og . kvikmyndum. Fjöldinn allur af dansræmum hefin konúðút ne hafa sumar venð betn en aðrar. Magasín tók til nokkrar dansmyndir 8 PATEICK SWAV7J2 JEKHU-CU GbEV eins og draumur hennar sé að ræt- ast. Þegar hún neitar svo yfirmann- inum um kossa og kjass er hún rekin og draumar hennar gerðir að engu. Hún getur ekki einu sinni kennt dans lengur en þá koma ráðagóðir krakkar til bjargar og hún heldur dans-fjáröflunarsamkomu. Barist með dansi Kvikmyndin You got served fjall- ar um tvo gettó-stráka og danshópa þeirra sem dansa til þess að öðlast virðingu og peninga. Skyndilega kemur nýr danshópur inn í myndina og skorar á þá. Þeir verða að búa til flott og ögrandi spor til þess að sigra þá. Svik, prettir og brestir í vináttu leggja svo stein í götu þeirra. Að lokum hreinlega verða þeir að sam- einast til þess að sýna nýja dans- hópnum hver dansar best. f mynd- inni leikur Omarion söngvari í strákahljómsveitinni B2K. irtur dans „Nobody puts Baby in the com- er," sagði Patrick Swayze í kvik- myndinni Dirty Dancing þegar ein- hver var að abbast upp á kærustuna hans. Það mun enginn maður í heiminum koma til með að vera jafii svalur og Swayze er í þessari mynd. Baby, sem leikin er af Jennifer Grey, fer í sumarbúðir með fjölskyádunni. Þar hittir hún danskennarann Johnny Castle og dansa þau grimm- an dans fram eftir öllu sumri. Þegar sumri fer að halla þá þurfa þau að fara að ákveða sig í tilhugalífinu.. Maður þarf að kunna að dansa til að vera töff íslandsvinurinn Julia Stiles leik- ur Söm, unga ballerínu, sem flytur úr litlum smábæ og í fátækrahverfi Chicago. Þar snýst allt um hver er bestur að dansa. Hún kynnist Chenille og þær verða bestu vinkon- ur. Hægt og rólega verður hún svo ástfangin af danskónginum og vandræðagemsanum Derek sem er bróðir Chenille. f kvikmyndinni er frægt atriði þar sem Derek kennir Söm hvemig eigi að bera sig í gettó- inu. Draumar um dans Jessica Alba leilcur Honey í sam- nefndri mynd. Hún er 22 ára gömul og gerir fátt annað en að dansa og spá í dansi. Hún fær svo að dansa og semja dansinn í myndbandi með frægum tónlistarmanni og virðist HaveTiie TlMli Ov Vou* lmt GUNNARI l4 OLIVER' 1 Vorkenni ■ Hollpiood Bo Henríksen Her &nú KEMUR UT ALLA FIMMTUDAGA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.