Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Andvíg sameiningu Yfir helmingur þeirra sem hafa tekið þátt í könn- uninni á strandir.is er and- vígur sameiningu sveitarfélaga á Ströndum. Kosið verður um sam- einingu sveitarfé- laga þann 8. októ- ber en von var á kynningar- bæklingi sameiginlegrar kynningarnefhdar sveitarfé- laga í fjórum nyrstu hrepp- um Strandsýslu vegna kosn- inganna í síðustu viku. Kynningarbæklingurinn hefur enn ekki skilað sér í hús og vita íbúar heldur ekki hvað kynningamefndin leggur tii málanna íyrir íbú- ana að velta vöngum yfir. Auglýsingafé til Iraks Þjóðarhreyfingin hefur ráðstafað þeim tæpu 25 þúsund krón- um sem vom afgangs af söfnun hreyfingar- innar fyrir auglýsingu í NewYorkTimes. Féð var afhent Rauða krossinum til hjálpar stríðshrjáðum borgumm í írak. Auglýsing- in var birt 17. janúar á þessu ári en í henni var komið á ffamfæri andstöðu við stuðning íslenskra stjóm- vaida við innrásina í írak. Alls söfiiuðust tæpar 4,2 milljónir króna en auglýs- ingin kostaði rúmar þijár og hálfa milijón og skrifstofu- og stjómarkostnaður nam um hálfri milljón. Ný fréttastöð? ' - f Júlíus Vífill Ingvarsson, lögmaöur og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins. „Ég fagna þessu framtaki og hlakka til að fá þessa stöð í loft- ið. Ég horfi mikið á fréttir og horfi t.d á Sky og BBC News þar sem égget fengið fréttir allan sólahringinn. Þeirsem valdir hafa verið I þetta verkefni eru þekktir afkraftmikilli frétta- mennsku. Ég hlusta þó ekki á fréttir gagnrýnislaust og veg og met þaö sem ég heyri. Ég hugsa aö þessi stöð verði mikilvæg l fréttamiðlun fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. “ Hann segir / Hún segir „Ég ernú bara að heyra þetta fyrst núna en ég er ekki týpan sem nennir að horfa á fréttir allan daginn. Þrátt fyrir það finnst mér framtakið sniðugt og vona að þetta gangi vel. Mér finnst best að hlusta á út- varpsfréttirnar á RÚV klukkan sex því þá get ég gert eitthvaö á meðan ég hlusta. Ég óttast ekki að þetta verði ofmikil samkeppni við Ríkisútvarpið, það er þaðgott að það stend- urýmislegtafsér." Thc Inv Mm <4 Inttf Andrea Jónsdóttir útvarpskona á rás tvö Eftirmeðferðarheimilum hefur fækkað í Reykjavík vegna breytinga á styrkjakerfi. Borgin segir að offramboð sé á slíkum heimilum og skjól fyrir heimilislausa skili meiri árangri. 12 spora hús ið Bless,bless, Reykjavlk. 12 spora húsið mun leggja niður starfsemi sína í Reykjavík um næstu mánaðamót. Breyting á styrkjakerfí Reykjavíkurborgar hefur leitt til fækkunar á eftirmeðferðarheimilum. Borgin segir að heimilin fái sömu greiðslu fyrir hvern Reykvíking í eftirmeð- ferð og telur fækkun meðferðarheimila vera vegna offramboðs á þeim. Egill Guðjóns- son. Heldur ótrauður áfram. Um næstu mánaðamót mun eft- irmeðferðarheimilið 12 spora húsið leggja niður starfsemi sína í Reykja- vík en ráðgerir að opna að nýju í Hafnarfirði eftir áramót. Ástæða íok- unarinnar er fjárskortur sem að sögn Egils Guðjónssonar, for- stöðumanns 12 spora hússins, má rekja til niðurskurðar hjá Reykjavíkurborg á styrkjum til meðferðarheimila. Sextíu prósent niðurskurð- ur „Fysta verk Bjarkar Vilhelms- dóttur í embætti formanns félags- málaráðs var að afturkalla mjög gott styrkjakerfi sem Helgi Hjörvar setti á laggirnar. Fjöldi meðferðarheimila naut góðs af þessu kerfi en nú hafa fjögur heimili þurft að hætta starf- semi,“ segir Egill en íjárveiting Reykjavíkurborgar til 12 spora húss- ins minnkaði um sextíu prósent við niðurskurðinn. Egill segir að niður- skurðurinn muni ekki stöðva starfsemi heimilisins heldur leiti forsvarmenn „Fysta verk Bjarkar Vilhelmsdóttur í emb- ætti formanns félags- málaráðs var að aft- urkalla mjög gott styrkjakerfi sem Helgi Hjörvar setti á lagg- irnar." þess á náðir annars sveitarfélags. Egill segir þó enga biturð vera hjá 12 spora húsinu í garð Reykjavíkur- borgar. Breyttar áherslur Lára Björnsdóttir félagsmála- stjóri kom af fjöllum þegar DV bar mál 12 spora hússins undir hana. „Reykjavíkurborg styrkir öll áfangaheimili í Reykjavík með því að kaupa af þeim þjón- ustu. Áður var reglan sú að við borguðum fyrir hvert rúm og þannig fengu heim- ilin fastar greiðslur frá borg- inni. Reglunum var svo breytt þannig að nú er greitt fyrir ^ hvern Reykvíking sem leitar sér eft- irmeðferðar og þannig kunna greiðslumar að hafa minnkað til þeirra heimila sem ekki em fullnýtt sem og til þeirra heimila sem hýsa einstaklinga með lögheimili utan Reykjavíkur," segir Lára og bætir við að skýrsla um þessi mál gefi til kynna að offramboð sé á eftirmeð- ferðarstofnunum. „Við sjáum aftur á móti mikla þörf á úr- ræðum fyrir heim- ilislausa og vilj- um einblína á það því slík heimili hafa gef- ist vel,“ segir Lára. Verjandi lét gamminn geisa í lokaræðu Lögreglan gagnrýnd í réttarsalnum „Þetta em vond vinnubrögð sem ber að fordæma," sagði Þorsteinn Einarsson lögmaður um rannsókn lögreglu á þjófnaðarbrotum skjól- stæðings síns sem tekin vom fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Skjólstæðingur hans er eiturlyfja- neytandi sem gefið er að sök ellefu þjófnaðir eða tilraunir til þjófnaðs. Um litlar fjárhæðir er að ræða, ann- ars vegar smáhnupl úr Hagkaupum og Skífunni og innbrot í bíla hins vegar. Sum brotin játar skjólstæðingur Þorsteins, en það var rannsókn lög- reglu á þeim brotum sem ekki em játuð sem var gagnrýnd harðlega af Þorsteini í gær. Benti hann á að í framburði vitna og í skýrslum lög- reglu sé óljóst um hvem sé verið að ræða og gengið sé að vísu að skjól- stæðingur hans hafi framið öll brot- inn sem ákært er fyrir. „Rannsókn lögreglunnar á málinu er í skötulíki og sannar ekkert," sagði Þorsteinn í lokaræðu sinnu og krafðist um leið að skjólstæðingur sinn yrði sýknað- ur. Fulltrúi ákæmvaldsins sagði framburð sakborningsins fjarstæðu- kenndan og útskýringar hans ótrú- verðugar. En á það blés Þorsteinn. „Auðvitað em líkur á því að skjól- stæðingur minn hafi framið þessi brot. Það skiptir bara engu máli. Það verður að sanna það fyrir dómin- um.“ Arrnfríður Einarsdóttur mun kveða upp dóm í málinu á mánu- dag. Ekkert aksjón á Aksjón Akureyrska sjónvarpsstöðin Aksjón er gjaldþrota og em sex störf í hættu. Aksjón var stofnuð 1996 og náði sendisvæði stöðvar- innar til Akureyrar og nágranna- sveita með samtals um sautján þúsund íbúa. Samkvæmt áhorfs- mælingu Gallups stilltu níu af hverjum tíu Akureyringum á stöðina í viku hverri en frétta- og dægurmálaþátturinn Korter var uppistaðan í dagskrá stöðvarinn- ar. Samver mun áfram senda út fréttaþátt á tíðni Aksjón, að minnsta kosti fyrst um sinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.